Ríkisstjórnin hafi tekið „pólitíska ákvörðun“ um að setja sveitarfélög í „spennitreyju“

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að sveit­ar­fé­lögin á Íslandi muni verða lengur að vinna sig út úr heims­far­aldr­inum en þau hefðu þurft að vera sökum póli­tískra ákvarð­ana sem teknar voru í fyrra.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir að standa ekki nægi­lega vel við bakið á sveit­ar­fé­lög­unum í land­inu í gegnum heims­far­ald­ur­inn, í erindi sem hann hélt á fjár­mála­ráð­stefnu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga í dag.

Þar sagði Dagur að „póli­tísk ákvörðun“ hefði verið tekin um að setja sveit­ar­fé­lög lands­ins í „fjár­hags­lega spenni­treyju“, sem útlit sé fyrir að þau verði í næstu 4-5 ár.[links]

Hann sagði útlit fyrir að rík­is­sjóður kæm­ist hratt út úr far­aldr­inum, Reykja­vík­ur­borg og önnur stærri sveit­ar­fé­lög hefðu sömu­leiðis mögu­leika á því að spjara sig, en minni sveit­ar­fé­lög lands­ins væru flest ein­ungis rétt að halda sjó í rekstr­inum og ættu erfitt með að fara í fjár­fest­ingu eða við­hald, sem hefði reyndar verið „krónískur skortur“ á fyrir far­ald­ur­inn líka.

Í erindi Dags kom fram að hann teldi að rík­is­stjórnin hefði ekki skilið mik­il­vægi þess að sveit­ar­fé­lögin stæðu sterk í gegnum far­ald­ur­inn og fjár­festu, en sömu­leiðis hefðu sveit­ar­fé­lögin verið nokkuð ósam­stíga í sínum mál­flutn­ingi um stöðu mála.

[adspot]

Af þeim sökum hefðu við­brögð rík­is­ins hvað sveit­ar­fé­lög varðar ein­kennst af hiki og að lokum hefði verið skilað auðu, á meðan að hin Norð­ur­löndin og fleiri ríki hefðu stutt mynd­ar­lega við sveit­ar­stjórn­ar­stigið með beinum fram­lögum.

Í erindi Dags kom einnig fram að hann teldi að á Íslandi væri land­lægt van­mat á mik­il­vægi sveit­ar­fé­laga og að skökk sýn væri á fjár­mála­legan veru­leika þeirra. Ríkið færi mun dýpra og hraðar niður þegar gæfi á bát­inn, en tekju­stofnar sveit­ar­fé­laga væru treg­breyt­an­legri, færu hægar niður og hægar upp á móti.

Það muni því taka lengri tíma fyrir sveit­ar­fé­lög lands­ins að vinna sig út úr far­aldr­inum en þurft hefði að verða. Afleið­ing­arnar verði þær að efna­hags­lega áfallið muni bitna á nær­þjón­ustu við íbúa sem sveit­ar­fé­lög veita, til dæmis í skól­unum, sem eng­inn vilji að verði nið­ur­staðan, hvorki sveit­ar­fé­lögin né þau sem fara fyrir rík­is­stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár