Zelensky bregst við orðum Trump: „Rússar verða að binda enda á stríðið“

Fundur Zelensky í Hvíta hús­inu fer fram í dag. Eftir þrýst­ing frá Trump segir for­seti Úkraínu að hann sé bund­inn af stjórn­ar­skrá til að gefa ekki frá sér land­svæði. Rússar verði að binda enda á stríðið sem þeir hófu.

Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, segir það undir Rúss­landi komið að binda enda á inn­rás­ina, rétt áður en mik­il­vægur fundir stendur fyrir dyrum með Donald Trump, sem þrýstir á Úkraínu að gefa upp land­svæði og hætta við áform um að aðild að NATO. 

Síðar í dag mun Zelensky funda með for­seta Banda­ríkj­anna, í kjöl­far þess að Trump átti fund með Pútín í Alaska á föstu­dag. Sá fundur leiddi ekki til vopna­hlés, en Trump er far­inn að beita sér fyrir frið­ar­samn­ingi í stað þess að krefj­ast þess að vopna­hlé verði komið á. Seint í gær sagði hann að Zelensky gæti bundið enda á stríðið sem hefur staðið yfir í þrjú og hálft ár, „nán­ast strax, ef hann vill.“ En það kæmi ekki til greina fyrir Úkraínu að end­ur­heimta land­svæði sem Rússar hafa tekið yfir eða ganga í NATO.  

„Zelensky, for­seti Úkraínu, getur bundið endi á stríðið við Rússland nán­ast strax, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár