Suður-Kórea stígur skref til baka

Fjölgun nýrra smita í Suður-Kóreu síð­ustu daga þykir sýna þá hættu sem getur skap­ast þegar tak­mörk­unum á sam­komum fólks er aflétt. Yfirvöld hafa aftur gripið til aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Um 500 skólar í Suður-Kóreu hafa frestað því að hefja starfsemi á ný vegna fjölgun smita undanfarna daga.
Um 500 skólar í Suður-Kóreu hafa frestað því að hefja starf­semi á ný vegna fjölgun smita und­an­farna daga. Mynd: EPA

Skyndi­leg fjölgun nýrra til­fella af COVID-19 í Suður-Kóreu hefur orðið til þess að stjórn­völd hafa hert tak­mark­anir að nýju í höf­uð­borg­inni Seúl. Fjöldi nýrra smita er nú meiri en hann hefur verið í tæp­lega tvo mán­uði. Óttast er að önnur bylgja far­ald­urs­ins sé að skella á suð­ur­kóresku þjóð­inni.

Stjórn­völd í Suður-Kóreu hafa frá upp­hafi far­ald­urs­ins hlotið lof fyrir við­brögð sín. Fyrsta til­fellið greind­ist 20. jan­úar og þegar mest lét í mars voru að grein­ast um 500 smit á dag. Í land­inu býr 51 milljón manna og þar hafa frá upp­hafi greinst 11.344 smit af kór­ónu­veirunni. Tæplega 270 hafa lát­ist vegna COVID-19.

Í gær greindust hins vegar 79 ný smit, þar af 67 í höf­uð­borg­inni þar sem um helm­ingur þjóð­ar­innar býr.

Það sem veldur ótta er að þetta er þriðji dag­ur­inn í röð sem nýgreindum fjölgar hratt. Heil­brigð­is­ráð­herr­ann brást þegar í stað við með því að gefa það út að höf­uð­borg­ar­búar skuli forð­ast ónauð­syn­legar sam­komur og hvatti hann fyr­ir­tæki til að halda starfs­mönnum sem finna fyrir flensu­líkum ein­kennum heima.

Í vik­unni greindust að minnsta kosti 69 smit meðal starfs­manna einnar stærstu vef­versl­unar Suður-Kóreu, Coupang. Fyr­ir­tækið er með höf­uð­stöðvar í Seúl. Yfir 4.000 starfs­menn og við­skipta­vinir vöru­húss versl­un­ar­innar eru í ein­angrun. Þessi nýju til­felli eru rakin til hópsmits meðal gesta nokk­urra næt­ur­klúbba í höf­uð­borg­inni í byrjun mán­aðar.

Fjöl­miðlar í Suður-Kóreu hafa greint frá því að stjórn­endur Coupang hafi ekki séð til þess að starfs­menn­irnir gætu haldið tveggja metra fjar­lægð sín á milli. Þá hafi þeir ekki látið þá bera and­lits­grímur. Einnig hefur komið fram að þeir starfs­menn sem sögð­ust finna fyrir ein­kennum voru beðnir að halda áfram að mæta í vinn­una, m.a. konu á fimm­tugs­aldri sem er talin vera sú fyrsta í hópi starfs­manna vef­versl­un­ar­innar sem smit­að­ist af COVID-19.

[links]Suður-Kórea fór þá leið í aðgerðum sínum að skima ítar­lega fyrir veirunni, rekja smit af kappi og setja sýkta í ein­angrun. Ekki var gripið til harðra lokanna eins og í mörgum öðrum löndum. Hins vegar var fólk hvatt til félags­forð­unar, þ.e. að halda fjar­lægð sín á milli, forð­ast mann­marga staði og þar fram eftir göt­unum.

Til að bregð­ast við fjölgun nýrra smita hafa yfir­völd ákveðið að frá og með morg­un­deg­inum verði söfnum og almenn­ings­görðum lokað á ný. Þá eru fyr­ir­tæki hvött til að bjóða starfs­mönnum upp á sveigj­an­legri vinnu­tíma svo margir séu ekki í sama rými á sama tíma. Íbúar Seúl hafa svo verið hvattir til að forð­ast mann­marga staði, m.a. veit­inga­staði og bari. Þá hafa trú­fé­lög verið beðin að sýna sér­staka var­kárni á sam­komum sínum.

Næstu vikur mikilvægar

„Næstu vær vik­urnar munu skera úr um það hvort okkur tekst að koma í veg fyrir fleiri smit á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herr­ann Park Neung-hoo. „Við munum þurfa að hverfa aftur til félags­forð­unar í ríku mæli ef okkur mis­tekst.“

Hann benti á að smit­leið­irnar væru helst á fjöl­mennum vinnu­stöðum og í mann­mergð skóla og karíókí-bara. Um 500 skólar hafa frestað því að opna bygg­ingar sínar fyrir nem­endum.

Aðgerðum suð­ur­kóreskra stjórn­valda var aflétt um allt landið þann 6. maí. Fyrstu dag­ana virt­ist sem aflétt­ingin hefði lítil áhrif en í þess­ari viku breytt­ist allt. Þykir þetta und­ir­strika hætt­una sem getur skap­ast þegar til­slak­anir eru gerðar á tak­mörk­unum á sam­komum fólks. Fjölmörg lönd eru nú að stíga skref í þá átt í þeirri við­leitni að veita súr­efni inn í sam­fé­lög sín og efna­hag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár