Mynd: EPA

Samkomubönn og félagsforðun virðast skila árangri

Ítalir eru ein elsta þjóð heims. Suður-Kóreu­menn er í hópi þeirra yngstu. COVID-19 leggst þyngst á þá sem eldri eru og gæti þetta skýrt mis­mun­andi dán­ar­tíðni milli landa. Á Ítalíu virð­ast dæmin sanna að sam­komu­bönn skili árangri í bar­átt­unni við veiruna.

Sam­komu­bann tók gildi á Íslandi þann 13. mars. Með sam­komu­banni er átt við skipu­lagða við­burði þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Við öll minni manna­mót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Yfir þrjú þús­und manns eru í sótt­kví í heima­húsum um allt land og mega ekki eiga í nánum sam­skiptum við fólk utan heim­il­is­ins.

Þetta eru rót­tækar aðgerðir. En þær hafa þegar sýnt gildi sitt ef horft er til Ítalíu sem er nú miðja far­ald­urs­ins í heim­inum.

Á ensku er talað um „social distancing“ og átt við að fólk haldi fjar­lægð sín á milli, heils­ist til dæmis ekki með handa­bandi, faðmist eða kyss­ist. Bragi Valdimar Skúlason, íslensku­fræð­ingur og bjart­sýn­is­maður með meiru, hefur lagt til þrjár þýð­ingar á hug­tak­inu; félags­forðun, hóp­beygur eða faðm­flótti.

Félags­forðun er nauð­syn­leg nú um stundir vegna þess að COVID-19, sjúk­dóm­ur­inn sem nýja kór­ónu­veiran veldur, smit­ast á milli ein­stak­linga. Smitleið er snerti- og dropa­smit, svipað og inflú­ensa. Það þýðir að veiran getur dreifst þegar veikur ein­stak­lingur hóstar, hnerrar eða snýtir sér og annar ein­stak­lingur andar að sér dropum/úða frá þeim veika eða hendur meng­ast af dropum og við­kom­andi ber þær svo upp að and­liti sínu.

Smitum á Íslandi fjölgar dag frá degi og svoköll­uðum þriðja stigs smitum einnig. Þá eru dæmi um smit sem ekki hefur tek­ist að rekja til utan­ferða ann­ars fólks. Þetta gefur vís­bend­ingu um að hætta sé á að COVID-19 geti nú farið að smit­ast hraðar milli fólks en hingað til.

Maður á gangi um götu í ítölsku borginni Napolí.
Maður á gangi um götu í ítölsku borg­inni Napolí.

En eru félags­forðun, sam­komu­bann og sótt­kví, að skila árangri?

Um miðjan febr­úar var 38 ára karl­maður í smá­bænum Codogno í Norður-Ítalíu sá fyrsti til að grein­ast með nýju kór­ónu­veiruna í land­inu. Yfirvöld á svæð­inu brugð­ust skjótt við og um 50 þús­und manns sem bjuggu í bænum og næstu bæjum var sagt að halda sig heima.

Aðgerð­irnar náðu til borg­ar­innar Lodi sem er skammt frá Mílanó. Þar virð­ast þær hafa skilað góðum árangri því hægt hefur á útbreiðslu veirunnar, sér­stak­lega miðað við aðrar borgir og bæi sem gripu til sam­bæri­legra aðgerða en mun síðar. Að hægja á útbreiðsl­unni kann að hljóma eins og frestun á vand­anum. En svo er þó ekki. Þetta er meðal ann­ars nauð­syn­legt til að dreifa álagi á heil­brigð­is­kerfi yfir sem lengstan tíma.

Frá 24. febr­úar tók smitum að fjölga hratt á öðrum stöðum á Ítalíu, m.a. borg­inni Bergamo. Á meðan yfir­völd í Lodi gripu til aðgerða var það ekki raunin í Bergamo. Þar voru engar tak­mark­anir settar – ekki fyrr en tveimur vikum síðar er stjórn­völd á Ítalíu ákváðu að ein­angra Lobardia-hérað sem bæði Bergamo og Lodi eru innan, þann 8. mars.

Vís­inda­menn hafa einnig borið saman dán­ar­tíðni og ald­urs­sam­setn­ingu Ítalíu og Suður-Kóreu til að sýna fram á að afleið­ingar far­ald­urs­ins geti orðið mis­mun­andi milli landa.

Dán­ar­tíðni á Ítalíu vegna veiru­sýk­ing­ar­innar er mjög há og kom það sumum í opna skjöldu. Ítalir eru taldir heilsu­hraustir upp til hópa og búa flestir við góð kjör miðað við margar aðrar þjóðir. En ítalska þjóðin er ein sú elsta í heimi, 23,3% hennar er yfir 65 ára. Í Kína eru 12% þjóð­ar­innar yfir 65 ára.

Þetta bendir til þess að dán­ar­tíðni í löndum þar sem með­al­aldur er hár verði meiri en í löndum þar sem hann er lágur enda eru aldr­aðir í einna mestri áhættu að fá alvar­leg ein­kenni COVID-19.

Þá skiptir menn­ing landa einnig máli, til dæmis hvað varðar sam­skipti milli kyn­slóða. Á Ítalíu er hefð fyrir því að kyn­slóð­irnar eigi í nánum sam­skiptum. Afi og amma búa gjarnan inni á heim­ili barna sinna og barna­barna. Við þær aðstæður aukast að mati vís­inda­manna líkur á því að eldri borg­arar kom­ist í snert­ingu við sýkta ein­stak­linga.

Ítalir standa á svölunum heima hjá sér og hlusta á nágrannana syngja.
Ítalir standa á svöl­unum heima hjá sér og hlusta á nágrann­ana syngja.

Við sam­an­burð á far­aldr­inum á Ítalíu ann­ars vegar og í Suður-Kóreu hins vegar kemur í ljós að flestir þeir sem smit­ast hafa í síð­ar­nefnda rík­inu eru á aldr­inum 20-29 ára. Á Ítalíu hafa fáir á þeim aldri greinst en það segir þó alls ekki alla sög­una. Á Ítalíu hefur verið lögð áhersla á sýna­töku hjá fólki sem sýnir þegar ein­kenni á meðan Suður-Kóreu­menn hafa tekið mun fleiri sýni og hjá öllum ald­urs­hópum.

Rann­sóknir sem þegar hafa verið gerðar á dán­ar­tíðni mis­mun­andi landa benda til þess að hún sé minni hjá þjóðum þar sem með­al­ald­ur­inn er lágur. Suður-Kórea er í þessum hópi.

Með­al­aldur þjóða hækkar með auk­inni vel­megun. Þannig er með­al­aldur vest­rænna ríkja mun hærri en þeirra fátæk­ari. Þetta gæti, að sögn vís­inda­manna, orðið til þess að draga úr áhrifum far­ald­urs­ins í þeim löndum þar sem heil­brigð­is­kerfin eru hvað veik­ust, til dæmis í Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár