Flugvöllur í Vatnsmýri þar til nýr völlur hefur verið byggður

Nið­ur­stöður skýrslu til sam­göngu­ráð­herra um Reykja­vík­ur­flug­völl mæla með því að nýr flug­völlur verði byggður áður en frek­ari lok­anir verði í Vatns­mýri.

Reykjavíkurflugvöllur er varaflugvöllur fyrir alþjóðaflug á Íslandi.
Reykja­vík­ur­flug­völlur er vara­flug­völlur fyrir alþjóða­flug á Íslandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný skýrsla um hlut­verk Reykja­vík­ur­flug­vallar í örygg­is­kerfi lands­ins var kynnt í dag og skilað til Jóns Gunn­ars­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Skýrslu­höf­undur er Þorgeir Pálsson, fyrr­ver­andi flug­mála­stjóri og pró­fessor emeritus við HR.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er í stuttu máli að Reykja­vík­ur­flug­völlur eigi að vera í Vatns­mýri þar til búið er að ganga úr skugga um að hægt sé að byggja nýja flug­völl sem geti tekið við hlut­verki Reykja­vík­ur­flug­vallar sem vara­flug­völlur á Íslandi. Enn sé óvissa um að ákjós­an­leg­asti kost­ur­inn í þeim efnum – í Hvassa­hrauni – henti sem flug­vall­ar­stæði.

Sam­göngu­ráð­herra hefur einnig skipað nefnd og falið henni að finna ásætt­an­lega lausn á fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur er gert ráð fyrir að flug­völl­ur­inn verði farin úr Vatns­mýri árið 2024 og að þar rísi blönduð byggð íbúða, versl­unar og þjón­ustu.

Skýrslan er gerð af Þorgeiri að beiðni Jóns Gunn­ars­sonar, sem í febr­úar óskaði eftir úttekt, skil­grein­ingu og mati á því örygg­is­hlut­verki sem Reykja­vík­ur­flug­völlur gegnir. Einnig var óskað eftir mati á því hversu vel aðrar stað­setn­ingar flug­vallar fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið myndu upp­fylla þetta hlut­verk.

Um örygg­is­hlut­verk Reykja­vík­ur­flug­vallar segir að að „öryggi þjóð­fé­lags­ins og flug­ör­yggi gera það að verkum að tveir flug­vellir verði að vera á Suð­vest­ur­landi“.

Þorgeir segir í skýrsl­unni að aðeins einn kostur komi til greina sem nýtt flug­vall­ar­stæði í þessum efnum. Það sé Hvassa­hraun en að enn eigi eftir að gera umhverf­is­mat vegna fram­kvæmda þar og rann­saka hversu vel það svæði henti raun­veru­lega fyrir flug­völl.

Annars er það nið­ur­staða Þorgeirs að flug­völlur í Hvassa­hrauni geti sinnt því hlut­verki sem Reykja­vík­ur­flug­völlur sinnir nú, mjög vel og jafn­vel betur en völl­ur­inn í Vatns­mýri. Hvassa­raun henti betur fyrir þær stóru flug­vélar sem íslensk flug­fé­lög noti í auknum mæli, enda verði hægt að tryggja lengd flug­brauta þar betur.

Skýrslan um örygg­is­hlut­verkið fjallar einnig um að óvið­un­andi sé að ekki sé flug­braut í suð­vestur/norð­austur á suð­vest­ur­horni lands­ins. Neyð­ar­brautin svo­kall­aða á Reykja­vík­ur­flug­velli var í þeirri stefnu, en henni var lokað í fyrra. Önnur flug­braut í þeirri stefnu er í Keflavík en henni var lokað á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Til tals hefur komið að opna flug­braut­ina í Keflavík, en ekki hefur enn orðið af því.

Nefnd

Jón Gunn­ars­son hefur skipað nefnd sem skal finna ásætt­an­lega lausn á fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Hreinn Loftsson hæsta­rétt­ar­lög­maður verður for­maður þeirrar nefndar. Aðrir í nefnd­inni eru Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir, fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri á Tálkna­firði, Róbert Guð­finns­son, athafna­maður á Siglu­firði og Linda Gunn­ars­dóttir flug­stjóri.

Jón hefur sagst vera reiðu­bú­inn til þess að hefja við­ræður um fram­tíð flug­vall­ar­ins, ef þær umræður taki mið af eft­ir­far­andi skil­yrðum:

  • „Flug­vellir á suð­vest­ur­horni lands­ins þurfa að upp­fylla skil­yrði um að allir lands­menn kom­ist til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu innan 3,5 klst ferða­tíma. Þjón­ustan verði sam­bæri­leg við núver­andi flug­völl er varðar getu og afköst.
  • Af örygg­is­sjón­ar­miðum þurfa tveir flug­vellir sem þjónað geta milli­landa­flugi með góðu móti að vera á suð­vest­ur­horni lands­ins.
  • Stjórn­völd geta ekki skuld­bundið sig við dag­setn­ingar til þess að opna nýjan flug­völl fyrr en stað­setn­ing og hönnun liggur fyrir og að öll skil­yrði um þjón­ustu flug­vall­ar­ins og fjár­mögnun af fjár­lögum eru upp­fyllt.
  • Flug­vellir á suð­vestur hluta lands­ins þurfa að upp­fylla skyldur örygg­is­hlut­verks gagn­vart íbúum lands­ins, þar með talið almanna­varn­ar­hlut­verks, leitar- og björg­unar og sjúkra­flugs. Jafn­framt er mik­il­vægt að góð aðstaða fyrir kennslu- og þjálf­un­ar­flugs séu á slíkum flug­velli.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár