Vaxtahækkun skekur markaði

Janet Yellen seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna segir stöðu efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum sterka um þessar mundir. Efna­hag­skreppan sé að baki og frek­ari vöxtur í kort­unum.

Þó það kunni að hljóma smá­mál fyrir ein­hverjum, þegar Seðla­banki Banda­ríkj­anna hækki stýri­vexti úr 0,5 í 0,75 pró­sent, þá er fjarri því að svo sé. Janet Yellen til­kynnti um ákvörð­un­ina í gær og rök­studdi ákvörð­un­ina ekki síst með því, að staða efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum væri sterk.

En hvað er það sem valda­mesti Seðla­banki heims­ins horfði til þegar kom að ákvörð­un­inni? Hvaða hluti þarf að hafa í huga þegar vaxta­á­kvarð­anir eru metnar?

Fimm atriði, til ein­föld­unar sagt, má telja til sér­stak­lega.


1. Þegar hrunið varð á fjár­mála­mörk­uðum, á árunum 2007 til 2009, lækk­aði Seðla­bank­inn vexti og hélt þeim í 0,25 pró­sentum í næstum átta ár. Í des­em­ber í fyrra voru vextir fyrst hækk­aðir, og þá um 0,25 pró­sentu­stig. Á þeim tíma kom Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn þeim skila­boðum áleiðis að vaxta­hækk­unin væri hugs­an­lega of snemma á ferð­inni, þar sem staða efna­hags­mála í heim­inum væri við­kvæm. Vaxta­á­kvarð­anir seðla­bank­ans hafa víð­tæk áhrif á mark­aði í heim­inum og það er margt sem þarf að hafa í huga þegar þær eru ann­ars vegar. Banda­ríkja­dalur er lang­sam­lega stærsta gjald­eyr­is­vara­forða­mynt heims­ins en um 63 pró­sent af öllum gjald­eyr­is­forða er í Banda­ríkja­dal. Vaxta­á­kvarð­anir seðla­bank­ans geta þannig varðar stórar og smáar þjóðir miklu þegar kemur að vaxta­kostn­aði þeirra og vaxta­kjörum almennt.

2. Yellen sagði í rök­stuðn­ingi sínu fyrir ákvörð­un­inni í gær að það væri mik­il­vægt fyrir Banda­ríkja­menn að vita það, að staða efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum væri sterk og ætti eftir að batna enn frekar á næsta ári. Meðal ann­ars þess vegna voru vext­irnir hækk­aðir, en þeim hefur verið haldið lengi lágum, eins og áður sagði. „Staðan á vinnu­mark­aði er sterk og það sama á við um sveigj­an­leik­ann í hag­kerf­inu,“ sagði Yellen. Samkvæmt spám bank­ans verður hag­vöxtur á bil­inu 2 til 3 pró­sent á þessu ári en atvinnu­leysi mælist nú 4,5 pró­sent.

3. Boðaðir eru enn meiri vaxta­hækk­anir á næsta ári ekki síst vegna þess að útlit sé fyrir vax­andi hag­vöxt og meiri verð­bólgu­þrýst­ing vegna vax­andi eft­ir­spurnar. Verð­bólgu­mark­mið bank­ans er tvö pró­sent. Til sam­an­burðar er verð­bólgu­markað Seðla­banka Íslands 2,5 pró­sent.

4. Í yfir­lýs­ingu Yellen komu ekki fram neinar vænt­ingar um hvernig Donald J. Trump, sem tekur við sem for­seti Banda­ríkj­anna í byrjun næsta árs, myndi stýra málum þegar kemur að efna­hags­málum. Hann hefur sjálfur sagt að hann vilji auk hag­vöxt og að stefnan á fyrsta ári hans sé 3 til 4 pró­sent. Örv­un­ar­að­gerðir hans eiga að fel­ast í skatta­lækk­unum og mun minna reglu­verki heldur en nú tíðkast, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg. Ekkert liggur þó fyrir í þessum efnum. Vaxta­á­kvarð­anir á næsta ári munu vafa­lítið taka mið af því hvernig stefna Trumps verður útfærð.

5. En skiptir ákvörð­unin um að hækka vexti ein­hverju máli fyrir Ísland? Óbeint, já. Vaxta­munur minnkar en eins og kunn­ugt er lækk­aði Seðla­banki Íslands vexti sína úr 5,25 pró­sentum í 5 pró­sent. Lán­töku­kostn­aður í Banda­ríkja­dal mun aukast við vaxta­á­kvörð­un­ina, og er sér­stak­lega horft til þess að vextir á hús­næð­is­lánum í Banda­ríkj­unum geti haldið áfram að hækka á næstu miss­erum. Fyrstu við­brögðin á mark­aði við vaxta­hækk­un­inni voru þau að gengi Banda­ríkja­dal styrk­ist gagn­vart helstu myntum. Á Íslandi fór verðið á Banda­ríkja­dal úr 112 krónum í 115 krónur, á fyrsta við­skipta­degi eftir vaxta­hækk­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár