Stærsta bylgjan hingað til

Sótt­varna­læknir segir COVID-bylgj­una sem nú stendur yfir þá stærstu hingað til. Hann hvetur almenn­ing til að sýna sam­stöðu um hertar aðgerðir. „Við verðum að standa saman og taka enn eina brekk­una í þess­ari bar­áttu,“ segir Víðir Reyn­is­son.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller komu saman á upplýsingafundi almannavarna í dag eftir tæplegar þriggja mánaða hlé.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Alma Möller komu saman á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag eftir tæp­legar þriggja mán­aða hlé. Mynd: Bára Huld Beck

Þríeykið, Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn, Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, komu saman á ný á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna síð­degis eftir tölu­vert hlé en síð­asti upp­lýs­inga­fundur almanna­varna vegna COVID-19 fór fram 12. ágúst eða fyrir tæpum þremur mán­uðum.

„Við­vör­un­ar­merkin eru skýr, smitum fjölgar mikið og það hefur áhrif á dag­legt líf fjöl­margra. Heil­brigð­is­kerfið er undir álagi og bognar smám saman,” sagði Víðir. 167 smit inn­an­lands­smit greindust í gær og hafa aldrei verið fleiri.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra til­kynnti um hertar sam­komu­tak­mark­anir að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Tak­mark­anir munu taka gildi næsta mið­viku­dag þegar fjölda­tak­mark­anir fara úr 2.000 manns í 500.

Grímu­skylda verður tekin upp og sú aðgerð tekur gildi á morg­un. Opn­un­ar­tími veit­inga­staða verður skertur enn á ný um tvær klukku­stund­ir. Opið verður til kl. 23 á kvöldin og síð­ustu gestir skulu vera farnir fyrir mið­nætti. Þá verður eins metra nálægð­ar­reglan aftur kynnt til sög­unn­ar.

Fólki í sóttkví vísað frá farsóttarhótelum

Smitrakn­ing er þung þessa dag­ana að sögn Víðis sem hefur áhrif á gæði þeirrar þjón­ustu. Far­sótt­ar­hót­elin eru full og hefur fólk sem hugð­ist fara í sótt­kví á far­sótt­ar­hót­eli hafi þurf að leita annað.

„Við höfum staðið í þess­ari bar­áttu í 22 mán­uði og enn og aftur horfum við öll fram á verk­efni sem við eigum enga aðra kosta völ á en að takast á við. Við þekkjum þetta og við kunnum þetta og við getum vel gert þetta. Þegar við sýnum sam­stöðu þá gengur okkur vel,“ sagði Víðir og bætti við að það sé ekki í boði að hengja haus og vera fúll, staðan sé ein­fald­lega sú að það stefnir í að sjúkra­húsinn­lagnir verði fleiri en kerfið ráði við.

„Við verðum að standa saman og taka enn eina brekk­una í þess­ari bar­áttu.“

[adspot]

Til þeirra sem eru á móti hert­ari aðgerðum sagði Víðir að við berum líka ábyrgð á öðrum í sam­fé­lag­inu. „Nú hafa verið litlar tak­mark­anir í sam­fé­lag­inu um hríð og við sjáum samt hvernig staðan er.“

Að mati Þórólfs er það sem muna ráða úrslitum í bylgj­unni hvernig ein­stak­lingar standi sig í ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum. Þá hvatti hann fólk sem hefur fengið boð í bólu­setn­ingu en ekki mætt að láta bólu­setja sig en um 11 pró­sent þeirra sem boðuð hafa verið hafa ekki verið bólu­sett.

Þá sagði hann stöð­una á Land­spít­ala og sjúkra­hús­inu á Akureyri vera þunga og ljóst að ef fram heldur sem horfir mun neyð­ar­á­stand skap­ast á spít­öl­unum.

Þórólfur sagð­ist vona að aðgerð­irnar sem boð­aðar voru í dag skili árangri. „Við vitum hvað virkar og þurfum ekki að finna upp hjólið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár