Hámarksgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði hækkar um 20.000 krónur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur und­ir­ritað reglu­gerð um greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði og greiðslu fæð­ing­ar­styrks.

Hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs hækkar úr 500.000 krónum í 520.000 krónur. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur und­ir­ritað reglu­gerð, um breyt­ingu á reglu­gerð, um greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði og greiðslu fæð­ing­ar­styrks.

Þetta kemur fram í frétt Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs í dag.

Samkvæmt reglu­gerð­inni öðl­ast eft­ir­far­andi breyt­ingar gildi 1. jan­úar 2018 og eiga við um for­eldra barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur 1. jan­úar 2018 eða síðar.

Lág­marks­greiðsla fyrir 25 til 49 pró­sent starf hækkar úr 118.335 krónum í 123.897 krónur og fyrir 50 til 100 pró­sent starf hækkar úr 164.003 krónum í 171.711 krónur.

Fæðingarstyrkur hækkar einnig

Fæð­ing­ar­styrkur til for­eldra utan vinnu­mark­aðar eða í minna en 25 pró­sent starfi hækkar úr 71.563 krónum í 74.926 krónur og fæð­ing­ar­styrkur til for­eldra í fullu námi hækkar úr 164.003 krónum í 171.711 krónur.

Eldri fjár­hæðir gilda áfram vegna barna sem fædd­ust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur á tíma­bil­inu 15. októ­ber 2016 til 31. des­em­ber 2017 sem og fyrir 15. októ­ber 2016.

Færri feður taka fæðingarorlof en áður

Kjarninn greindi frá því í apríl síð­ast­liðnum að þeim feðrum sem taka fæð­ing­ar­or­lof með börn­unum sínum hafi haldið áfram að fækka í fyrra, sam­kvæmt tölum frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof en áður, og þeir sem taka orlof gera það í færri daga en áður.

Flestir sem að fæð­ing­ar­or­lofs­málum koma eru sam­mála um það að ákvörðun stjórn­valda um að skerða hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði veru­lega eftir hrun hafi haft mikil áhrif, sér­stak­lega á töku feðra á fæð­ing­ar­or­lofi. Meðal ann­ars hefur Kristín Ást­geirs­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, sagt að þetta ein­staka kerfi, sem búið var að byggja upp á Íslandi hvað varðar fæð­ing­ar­or­lof karla, sé að molna niður fyrir framan okk­ur.

Taka minna fæðingarorlof en þeir eiga rétt á

Frá því að farið var að skerða hámarks­greiðslur úr sjóðnum eftir hrun hefur hlut­fall þeirra karla sem taka fæð­ing­ar­or­lof farið úr 90 pró­sent­um, árið 2008, í 74 pró­sent árið 2016. Hlut­fallið í fæð­ing­ar­or­lofi feðra hefur ekki verið lægra á þessu tíma­bili en árið 2016, og það hefur lækkað hratt á milli ára. Árið 2015 nýttu 80 pró­sent feðra fæð­ing­ar­or­lof sem þeir áttu rétt á að ein­hverju leyti.

Að sama skapi taka feður sífellt færri daga í fæð­ing­ar­or­lofi, en árið 2016 tóku feður að með­al­tali 75 daga í fæð­ing­ar­or­lof, en árið 2015 var með­al­talið 84 dag­ar, og fyrir hrun var það 101 dagur að með­al­tali. Ein­göngu ell­efu pró­sent feðra taka meira en þá þrjá mán­uði sem þeir eiga rétt á sam­kvæmt lög­um, en þetta hlut­fall var komið í 23 pró­sent árið 2008. Helm­ingur feðra sem taka fæð­ing­ar­or­lof taka minna en þeir eiga rétt á, en hlut­fallið hefur aldrei verið hærra. Árið 2008 tóku aðeins 22 pró­sent feðra styttra orlof en þrjá mán­uð­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár