Ísland tók ekki á móti neinum kvótaflóttamanni í fyrra

Til stóð að um 100 flótta­menn kæmu hingað til lands á vegum íslenskra stjórn­valda á síð­asta ári. Samkvæmt félags­mála­ráðu­neyt­inu var ekki unnt að taka á móti flótta­fólk­inu vegna COVID-19 far­ald­urs.

Flóttafólk mótmælti á Austurvelli og bað um áheyrn dómsmálaráðherra.
Flótta­fólk mót­mælti á Aust­ur­velli og bað um áheyrn dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki var mögu­legt að taka á móti kvótaflótta­fólki á síð­asta ári vegna COVID-19 far­ald­urs­ins en unnið er „hörðum höndum að því að taka á móti hópnum á fyrri hluta þessa árs“.

Þetta kemur fram í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Félags­mála­ráðu­neytið hefur end­ur­nýjað samn­ing sinn við International Organization for Migration, sem mun veita stjórn­völdum aðstoð við að taka á móti hópnum en samn­ing­ur­inn snýr bæði að flutn­ingi, aðstoð við sam­fé­lags­fræðslu og mögu­leik­anum á að taka við­töl í gegnum fjar­funda­búnað. Um er að ræða fjöl­skyldur og ein­stak­linga sem eru staddir í Kenía, Íran og Líbanon,“ segir í svar­inu.

Fram kemur hjá ráðu­neyt­inu að unnið sé að því að taka á móti 15 ein­stak­lingum, barna­fjöl­skyldum sem séu upp­runa­lega frá Sýrlandi og staddar á Grikk­landi – og séu umsækj­endur þar um alþjóð­lega vernd. Líkt og með hóp kvótaflótta­fólks sé unnið að því að taka á móti hóp­unum sem fyrst.

Samtals er því um að ræða 100 ein­stak­linga sem fyr­ir­hugað er að taka á móti, að því er fram kemur hjá ráðu­neyt­inu.

Samþykktu í september að taka á móti allt að 15 manns í viðbót

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að Ísland tæki á móti flótta­fólki frá Les­bos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­lenskar fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu. Fram kom í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að fjöl­skyld­urnar hefðu áður búið í flótta­manna­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða fyrr í mán­uð­in­um.

[links]Í til­kynn­ingu stjórn­valda frá því í sept­em­ber sagði að flótta­fólkið frá Les­bos, sem yrði allt að 15 manns, myndi bæt­ast í hóp þeirra 85 sem rík­is­stjórnin hygð­ist taka á móti á þessu ári og væri það lang­fjöl­menn­asta mót­taka flótta­fólks á einu ári hingað til lands.

„Flótta­manna­nefnd mun ann­ast und­ir­bún­ing á mót­töku fjöl­skyldn­anna og verður mót­taka þeirra unnin í sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið og grísk stjórn­völd. Evr­ópu­sam­bandið hafði áður sent frá sér ákall um nauð­syn á flutn­ingi barna og barna­fjöl­skyldna vegna bruna Moria flótta­manna­búð­anna. Þá mun Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna vera íslenskum stjórn­völdum innan handar varð­andi það hvernig best verður staðið að því að koma fjöl­skyld­unum til lands­ins,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Á árinu 2019 var tekið á móti 74 flótta­mönnum á Íslandi, en fram kom fréttum í lok árs­ins að íslensk stjórn­völd myndu bjóð­ast til að taka á móti 85 manns. Einkum væri um að ræða Sýr­lend­inga og hópa við­kvæmra flótta­manna vegna kyn­ferðis eða fjöls­kyldu­að­stæðna frá Ken­ía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár