Norður-Kórea skýtur flugskeytum í Japanshaf

Æfingar Banda­ríkja­hers og hers Suður-Kóreu fara fram þessa dag­ana.

Kim Jong-un í hópi hermanna.
Kim Jong-un í hópi her­manna. Mynd: EPA

Fjórum flug­skeytum var skotið frá Norður-Kóreu í Jap­ans­haf í gær­kvöldi, að því er fram kemur á vef Washington Post. Þrjú skeyt­anna eru talin hafa hafnað innan jap­anskrar land­helgi og þau sem næst voru landi lentu 350 kíló­metra frá Akita, japönsku lands­svæði.

Japönsk yfir­völd hafa þegar hækkað við­bún­að­ar­stig í land­inu upp í efsta þrep og sagði Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, við þing lands­ins að þessi flug­skeyta­skot væru til marks um að ógnin frá Norður-Kóreu væri orðin meiri, að því er segir á vef Bloomberg.

Talið er að Kim Jong Un, leið­togi Norður-Kóreu, vilji með þessu mót­mæla her­æf­ingum Banda­ríkj­anna og Suður-Kóreu, en þær standa nú yfir.

Skotin eru talin hafa komið af svæði nærri Dongchang-ri skot­svæð­inu. Norður-Kórea gerir til­raunir með lang­dræg skeyti á því svæði og hafa skotin verið tíð­ari upp á síðkastið.

Á síðusta rúm­lega hálfa árinu hefur Norð­ur­-Kóreu­mönnum í þrí­gang tek­ist að skjóta á loft með­al­drægum eld­flaug­um. Þá er talið að Norð­ur­-Kóreu­menn hafi sprengt kjarn­orku­sprengju í tvígang á síð­asta ári.

Síð­asta eld­flug­ar­skotið, áður en kom til þessa í gær, fór fram á sama tíma og Abe for­sæt­is­ráð­herra Jap­ans og Don­ald Trump fund­uðu í Hvíta hús­in­u. 

Donald Trump hefur sagt að Banda­ríkin muni styðja Japan og Suður-Kóreu „hund­rað pró­sent“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár