Sveitarfélögin takmarki Airbnb með sömu aðferðum og veitingahús og bari

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að íbúa­fækkun í mið­borg­inni sýni að það sé ástæða til að staldra við og skoða tak­mark­anir á Airbnb-útleigu.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að eitt af því sem þurfi að skoða til að mæta hús­næð­is­vanda Íslend­inga séu tak­mark­anir á Airbnb-útleigu.

Þetta kom fram í fyrsta þætti Kjarnans á Hring­braut, þar sem Þor­steinn var gestur. „Við sjáum bara til dæmis íbúa­þróun í mið­borg­inni, á til­tölu­lega skömmum tíma hefur fækkað um tíu pró­sent, á fáum árum. Það segir okkur auð­vitað að það er ástæða til að staldra þarna við.“

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í vik­unni hefur íbúum mið­borg­ar­innar fækkað um tæp­lega 800, um 10%, frá árinu 2011. Mið­borgin er eina hverfi borg­ar­innar þar sem færri búa nú en gerðu fyrir sex árum síðan, en síð­ustu tvö ár hefur íbúum í Vesturbæ Reykja­víkur líka farið fækk­andi.

„Auðvitað viljum við ekki heldur að ferða­menn­irnir sem koma hér inn í mið­bæ­inn séu bara að koma inn í sam­vaxið hótel- og hót­el­í­búða­svæði. Við viljum að það séu ein­hverjir íbúar,“ segir Þor­steinn.

Hann segir að með svip­uðum hætti og sveit­ar­fé­lögin tak­marka og stýra því hvar opn­aðir eru veit­inga­staðir, kaffi­hús og barir, sé hægt að skoða að tak­marka útleigu á Airbnb. Sveit­ar­fé­lögin hljóti að líta til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár