Miklar eignir almennings í hlutabréfum

Frá hruni, fyrir tæpum ára­tug, hafa eignir almenn­ings í fyr­ir­tækjum vaxið hratt og gefið mikið af sér í rík­is­sjóð.

Á und­an­förnum tæpu tíu árum, frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins, setn­ingu neyð­ar­laga og fjár­magns­hafta, á haust og vetr­ar­mán­uðum 2008, hafa miklar breyt­ingar átt sér stað í hag­kerf­inu og hefur staða rík­is­sjóðs kúvenst að mörgu leyti.

Eitt af því sem hefur breyst mikið sterk­ari efna­hagur dótt­ur­fé­laga í eigu rík­is­ins. Almenn­ingur á nú mikil verð­mæti í hlutafé í fyr­ir­tækjum sem hafa styrkst stöðu sína veru­lega.

Stærsta fyr­ir­tækið sé horft til eig­in­fjár­stöðu er Lands­bank­inn, sem ríkið á ríf­lega 98 pró­sent hlut í. Um mitt þetta ár nam eigið fé bank­ans 232,1 millj­arði króna.

Íslands­banki er með eigið fé upp á rúm­lega 180 millj­arða króna en ríkið á bank­ann að fullu.

Bank­arnir hafa frá þeir voru stofn­aðir, á grunni inn­lendra eigna hinna föllnu banka, Lands­banka Íslands og Glitnis, greitt meira en 160 millj­arða í arð til rík­is­ins. Á árunum 2013 til 2018 greiddi Lands­bank­inn 131,7 millj­arða króna í arð til eig­enda.

Verð­mætasta hluta­fjár­eign íslenska rík­is­ins er vafa­lítið Lands­virkjun, sem ríkið á að öllu leyti. Eig­in­fjár­staða þess hefur styrkst veru­lega á und­an­förnum árum en fyr­ir­tækið hefur ein­blínt á nið­ur­greiðslu skulda og styrk­ingu á efna­hag fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með hag­felldum breyt­ingum á orku­sölu­sam­ingum.

Mallar gull inn í framtíðina

En hver ætli sé réttur verð­miði á Lands­virkjun? Það er erfitt að segja, en orku­fyr­ir­tæki eru í alþjóð­legu sam­hengi oft með háa marg­fald­ara á virði rekstr­ar­ins, ekki síst vegna þess að þau búa við stöð­ug­leika og mikið fram­tíð­ar­virði.

Lands­virkjun virð­ist nú á góðri leið með að kom­ast í stöðu - sé horft einn til tvo ára­tugi fram í tím­ann - til að greiða íslenska rík­inu jafn­vel tugi millj­arða á ári í arð.

Stjórn­völd hafa stefnt að upp­setn­ingu þjóð­ar­sjóðs sem tæki við þessu arði af orku­auð­lind­unum en þeirri vinnu hefur ekki lokið form­lega ennþá.

Um mitt þetta ár nam eigið fé þess rúm­lega tveimur millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 220 millj­örðum króna.

Mikil verðmæti í flugrekstrinum

Þá hefur efna­hagur Isavia, sem rekur flug­velli lands­ins, þar á meðal Kefla­vík­ur­flug­völl, einnig styrkst veru­lega á und­an­förnum árum, sam­hliða vext­inum í ferða­þjón­ustu. Ríkið á félagið að fullu.

Sé litið til eig­in­fjár­stöðu þess, með til­liti til óráð­stafaðs eig­in­fjár, þá nemur það yfir 30 millj­örðum króna.

Sam­an­lagt virði þess­ara eigna í fyr­ir­tækj­unum fjórum, Lands­bank­anum, Íslands­banka, Lands­virkjun og Isavia, nemur yfir 1000 millj­örðum króna, sé miðað við að bank­arnir hafi verð­miða upp á 1x eigið fé, Lands­virkjun 3x eigið fé og Isavia 1x eigið fé.

Þetta er svipuð upp­hæð og nemur heild­ar­virði allra félaga sem skráð eru á aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands.

Þetta er hins vegar leikur að tölum, frekar en raun­veru­legt verð, en þetta gefur vís­bend­ingu um þau miklu verð­mæti sem byggst hafa upp í rík­is­fyr­ir­tækj­unum á und­an­förnum ára­tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár