Segir niðurstöður um verð vörukörfunnar á Íslandi sláandi

Mat­vöru­karfa í Reykja­vík er tölu­vert dýr­ari en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum, sam­kvæmt nýrri verð­könnun ASí. Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir nið­ur­stöð­urnar slá­andi en að þær komi sér þó ekki á óvart.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar.
Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: RÚV

Vöru­karfa, saman sett af algengum mat­vörum, er mun dýr­ari í Reykja­vík en í höf­uð­borgum hinna Norð­ur­land­anna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar verð­könn­unar Verð­lags­eft­ir­lits Alþýðu­sam­bands Íslands. Vöru­karfan í Reykja­vík er 67 pró­sent dýr­ari en vöru­karfan í Helsinki þar sem vöru­verðið var lægst. Það land sem er næst Íslandi í verð­lagi er Noregur en vöru­karfan í Reykja­vík er samt sem áður 40 pró­sent dýr­ari en í Osló.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, sagði þessar nið­ur­stöður slá­andi en að þær komi honum þó ekki óvart. Þor­steinn spurði í kjöl­farið land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag, hvort að breyt­ing á mat­ar­verði hér á landi geti verið útspil stjórn­valda í kjara­við­ræðum.

Fjörutíu prósent ódýrara í Osló en hér

Verð­könn­unin var fram­kvæmd í des­em­ber í fyrra í leið­andi lág­vöru­verðs­versl­unum í höf­uð­borgum Norð­ur­land­anna. Í könn­un­inni var borið saman verð á algengum neyslu­vörum í sam­bæri­legum versl­unum, vörur á borð við mjólk, osta, kjöt­vörur, græn­meti, ávexti og brauð. Vöru­karfan sem verð­lags­eft­ir­litið bar saman var dýr­ust í Reykja­vík þar sem hún kost­aði 7.878 krónur og næst dýr­ust í Noregi, þar sem hún kost­aði 5.631. Sam­bæri­leg vöru­karfa í Kaup­manna­höfn kostar 5.173 og 5.011 í Stokk­hólmi. Ódýrasta mat­vöru­karfan var í Helsinki þar sem hún kost­aði 4729.

152 prósent verðmunur á brauðosti

Verð á þeim vörum kannað var reynd­ist oft­ast hæst í Reykja­vík eða í 12 til­vikum af 18 en í 8 til­vikum af 18 var vöru­verðið lægst í Helsinki. Mikill verð­munur var á kjöt- og mjólk­ur­vörum og græn­meti í könn­un­inni. Þá kostar kílóið af brauð­osti 1.411 krónur á Íslandi en 1.235 í Noregi sem er með næst hæsta verðið. Kíló­verðið á brauð­osti kostar aðeins 556 krónur í Helsinki og er því 152 pró­sent verð­munur á kíló­verði af brauð­osti milli Reykja­víkur og Helsinki.

Mikill verð­munur er einnig á kjöt­vörum en kíló af ung­nauta­hakki kostar 1.598 krónur í Reykja­vík, 1.326 í Oslo og 946 í Helsinki sem gerir 69 pró­sent verð­mun á hæsta og lægsta verði. Þá er 240 pró­sent verð­munur á nið­ur­sneiddri skinku sem kostar 2.749 krónur á kílóið á Íslandi en 808 krónur í Finn­landi þar sem verðið er lægst. Verð­mun­ur­inn á græn­meti var sömu­leiðis mik­ill en sem dæmi má nefna að 560 pró­sent munur var á hæsta og lægsta kíló­verði á gul­rótum og 213 pró­sent munur á hæsta og lægsta verði á kart­öflum.

Kostnaður fjölskyldunnar liggur í landbúnaðarvörunum

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, spurði Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um verð­könnun ASÍ í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Þor­steinn sagði nið­ur­stöð­urnar vera slá­andi en að þær komu honum þó ekki á óvart. Hann benti jafn­framt á að mikið væri af land­bún­að­ar­vörum í körf­unni sem fram­leiddar eru á Íslandi og að það hækk­aði verð körf­unnar. Hann sagði jafn­framt að sam­kvæmt sam­an­burði hjá OECD ríkj­unum er eng­inn land­bún­aður meira vernd­aður en sá íslenska. Því liggi kostn­aður mat­ar­körf­unnar í land­bún­að­ar­vör­unum. „Það er auð­vitað gríð­ar­legar kostn­aður fyrir íslenskar fjöl­skyldur. Það má ætla að fjög­urra manna íslensk fjöl­skylda borgi að með­al­tali 60 til 70 þús­und krónur meira fyrir mat­ar­körf­unni á mán­uði heldur en sam­bæri­leg fjöl­skylda á hinum Norð­ur­lönd­unum að með­al­tali.“

Þor­steinn spyr því ráð­herra hvort að breyt­ingu á mat­ar­verð hér á landi geti verið inn­legg stjórn­valda í kjara­við­ræðum. „Þar sem rík­is­stjórnin er að leita af ein­hverju útspili í kjara­við­ræðum. Hefur hæst­virtur ráð­herra hugsað að taka jafn­vel hátt mat­ar­verð hér á landi, vegna vernd­ar­stefnu íslenskra stjórn­valda í land­bún­aði, upp og breyta því sem inn­legg í kjara­við­ræður.“

Kristján Þór sagð­ist þá ekk­ert sér­stak­lega ætla að svara fyrir verð­könnun ASÍ en benti þing­manni á að „ það er fleira matur en feitt ket“. Kristján sagði jafn­framt að Íslend­ingar flytji inn mjög mikið af mat­vörum og að toll­múrar Íslend­inga séu miklu lægri í þeim efnum en til dæmis Evr­ópu­sam­bandið. Jafn­framt væru 80 pró­sent af íslenskum mat­vælum flutt inn án tolla.

Kristján sagði jafn­framt íslenskan land­búnað vera standa sig vel og fram­leiða góða vöru. „Það má alltaf deila um það við hvaða verði menn eru að kaupa nauð­synja­vörur. Það er alveg hár­rétt að í þess­ari könnun, eins og hún birt­ist okkur, þá er mat­ar­k­arfan í þeim vörum sem bornar eru saman tölu­vert hærri hér. “ Hann bætti því að mik­il­vægt sé að taka fleiri þætti inn í útskýr­ingar en verð í búðum. „Ég vænti þess að íslenskir fram­leið­endur þeirra mat­vara sem eru í þess­ari körfu muni leiða fram mis­mun í kaup­gjaldi fólks og fleiri þætti sem spila inn í verð­lagn­ingu vöru á mark­aði.“

Enn fremur sagði Kristján að „það gæti vel verið að þetta sé atriði komi upp í tengslum við kjara­við­ræðum stjórn­valda. En ég veit ekki til þess að þessi mál sé komin inn á það borð, svo því sé svarað“

Hvetja ASÍ til að gera kröfu um að dregið verði úr tollvernd á matvörum. 

Félag atvinnu­rek­anda sendu frá sér til­kynn­ingu í dag þar sem fram kom að þessi verð­könnun ASÍ væri þarft inn­legg í umræður um kjör launa­fólks. „Að mati Félags atvinnu­rek­enda er nú dauða­færi í tengslum við kjara­við­ræður á almennum vinnu­mark­aði að taka toll­vernd mat­vöru til end­ur­skoð­unar, til hags­bóta fyrir almenn­ing á Íslandi. Lækkun og/eða afnám tolla á mat­vörum er ein skil­virkasta aðgerðin sem hægt er að grípa til í því skyni að lækka verð á nauð­synjum og bæta þannig kjör launa­fólks. Það skiptir nefni­lega ekki síður máli hversu margar krónur fara úr buddu almenn­ings en hversu margar koma í hana.“

FA hvetur því Alþýðu­sam­bandið og aðild­ar­fé­lög þess til að gera þá kröfu á hendur stjórn­völdum, í þágu félags­manna sinna, að dregið verði úr toll­vernd á mat­vörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár