Framsóknarmenn vilja Guðna Ágústsson á Bessastaði

Hópur manna tengdur Fram­sókn­ar­flokknum vinnur nú að því að kanna grund­völl fyrir for­seta­fram­boði Guðna Ágústs­sonar. Hópurinn hefur verið í sam­bandi við „vel tengda" ein­stak­linga víða um landið til að kanna áhuga kjör­dæma á Guðna. For­sprakki hóps­ins, Gestur Val­garðs­son, segir Guðna vita af vinn­unni. Frá þessu er greint í DV í dag.

Gestur er verk­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Kópavogs. Hann segir að hópnum finn­ist Guðni „góður full­trúi hins venju­lega Íslend­ings. Hann er frekar mála­miðl­ari í eðli sínu en hitt. Við munum að umræð­urnar fyrir síð­ustu kosn­ingar voru á þá leið að þær sner­ust að mestu um „örygg­is­ventil­inn“ og á hvaða þrýst­ingi til­tek­inn fram­bjóð­andi myndi blása. Okkur finnst að for­set­inn eigi að vera mála­miðl­ari frekar en að taka yfir þessa póli­tísku umræðu í land­inu. En svo er Guðni auð­vitað vel þekktur og vel máli far­inn að okkar mati.“

Guðni er staddur á Kanarí í fríi og kvaðst ekk­ert kann­ast við málið þegar DV spurði hann um það. Hann ætli að ein­beita sér að því að spila mínigólf áfram.

Guðni er fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og var þing­maður og ráð­herra árum saman. Hann var einnig einn helsti stuðn­ings­maður Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands. Guðni var meðal ann­ars einn þeirra sem stóð að því að safna und­ir­skriftum þar sem skorað var á Ólaf Ragnar að end­ur­skoða ákvörðun sína um að hætta árið 2012. Það gerði hann í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár