Gunnar Smári leiðir hóp sem hefur keypt Fréttatímann

Gunnar Smári Egilsson, fyrrum rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, leiðir hóp sem hefur keypt allt hlutafé í Miðopnu, eig­anda Frétta­tím­ans. Gunnar Smári verður útgef­andi blaðs­ins fram að ára­mótum en tekur þá við sem rit­stjóri þess ásamt Þóru Tóm­as­dóttur. Á meðal ann­arra eig­enda eftir kaupin eru fjár­fest­arnir Árni Hauksson, Hall­björn Karlsson og Sigurður Gísli Pálmason. Valdimar Birg­is­son verður áfram í eig­enda­hópnum og mun hver eig­andi eiga við­líka stóran hlut.

Í til­kynn­ingu vegna kaupanna segir að Teitur Jónasson, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Frétta­tím­ans, muni láta af störfum og að Valdimar Birg­is­son muni taka við starfi fram­kvæmda­stjóra. Jónas Har­alds­son, núver­andi rit­stjóri, mun rit­stýra blað­inu fram að ára­mótum.

Þar er haft eftir Gunnari Smára að fjöl­miðla­heim­ur­inn sé að ganga í gegnum djúp­stæðar tækni­legar og félags­legar breyt­ingar og að þær munu ekki aðeins umbreyta mark­aðnum heldur einnig hafa mikil áhrif á sam­fé­lagið. „Við viljum taka þátt í þessum breyt­ingum og hafa á þær góð áhrif. Við erum að upp­lifa hrörnun eldri miðla og gam­alla hug­mynda og erum á leið inn í spenn­andi tíma með fjöl­þætt­ari og árang­urs­rík­ari fjöl­miðlun sem mun leiða til opn­ara og lýð­ræð­is­legra sam­fé­lags.“

Frétta­tím­inn er frí­blað sem er prentað í 82 þús­und ein­tökum einu sinni í viku og dreift í hús. Í síð­ustu prent­miðla­könnun Gallup kom fram að 36,4 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12-80 ára lesa Frétta­tím­ann. Blaðið var fyrst með í mæl­ingum Gallup í mars 2011 og mæld­ist þá með tæp­lega 42 pró­sent lestur. Síðan þá hefur lest­ur­inn rokkað tölu­vert en Frétta­tím­inn virt­ist á mik­illi sigl­ingu í upp­hafi árs, á sama tíma og aðrir miðlar með stórt upp­lag voru í frjálsu falli. Þegar leið á árið fór lest­ur­inn hins vegar að dala og Frétta­tím­inn hefur aldrei mælst með jafn lít­inn lestur og blaðið er að mæl­ast með síð­ast­liðna mán­uði.

Árni Hauksson og Hall­björn Karlsson hafa verið umsvifa­miklir fjár­festar á Íslandi á und­an­förnum árum. Árni hefur nokkuð mikla reynslu af fjöl­miðla­rekstri. Hann var fjár­mála­stjóri hjá Frjálsri fjöl­miðlun, sem gaf meðal ann­ars út DV, undir lok tíunda ára­tug­ar­ins. Árni átti auk þess hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 um tíma og sat í stjórn þess þangað til snemma í nóv­em­ber 2008, þegar hann sagði sig úr stjórn­inni með látum.

Þeir Árni og Hall­björn efn­uð­ust á því að kaupa, og selja síðar, Húsa­smiðj­una. Þeir keyptu síðan hlut í Högum fyrir skrán­ingu félags­ins á hluta­bréfa­markað í lok árs 2011 og seldu síðar með miklum hagn­aði. Árni og Hall­björn voru einnig á meðal þeirra sem keyptu í Símanum ásamt stjórn­endum þess fyr­ir­tækis áður en það var skráð á markað.

Sigurður Gísli Pálmason er einnig umsvifa­mik­ill fjár­festir og á meðal ann­ars Ikea á Íslandi ásamt bróður sínum. Sigurður Gísli er bróðir Ingi­bjargar Pálma­dóttur, aðal­eig­anda 365 miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár