Boris Johnson skellir í lás fram yfir jól

Til stóð að slaka aðeins á sam­komu­tak­mörk­unum rétt í kringum jól á Englandi. Víða verða til­slak­anir til staðar á jóla­dag en í suð­aust­ur­hluta Englands verða engar til­slak­anir þessi jólin. Svipaða sögu er að segja víðar í Evrópu.

Bresk mæðgin fylgjast með ávarpi Borisar fyrr í dag.
Bresk mæðgin fylgj­ast með ávarpi Borisar fyrr í dag. Mynd: EPA

Frá og með mið­nætti í kvöld taka nýjar tak­mark­anir gildi á stóru svæði á suð­aust­ur­hluta Englands. Tak­mark­an­irnar eru kenndar við hið svo­kall­aða fjórða við­bún­að­ar­stig (e. Tier four) og ná tak­mark­an­irnar meðal ann­ars til London og svæð­anna þar í kring, Kent, Essex og Bed­fords­hire. Íbúum á þessum svæðum er meinað að hitta fólk sem það deilir ekki heim­ili með frá með morg­un­deg­inum til 30. des­em­ber. Þessar aðgerðir kynnti Boris Johnson á blaða­manna­fundi fyrr í dag og hægt er að lesa um þær á vef BBC.

Á fund­inum greindi Johnson frá því að vís­inda­menn þar í landi hefðu greint nýtt afbrigði veirunnar sem dreifði sér mun hraðar heldur en áður þekkt afbrigði hennar. Hann tók fram á fund­inum að ekki væri útlit fyrir að fólk sem smit­að­ist af þessu nýja afbrigði hefði veikst meira heldur en aðrir sem smit­ast höfðu af COVID-19 og að dán­ar­tíðni væri ekki hærri meðal þeirra sem smit­uð­ust af þessu nýja veiru­af­brigði.

Til stóð að rýmka sam­komu­tak­mark­anir á Englandi í kringum jól, dag­ana 23. des­em­ber til og með 27. des­em­ber. Nú hefur það tíma­bil verið stytt niður í einn dag, sjálfan jóla­dag. Íbúar á þeim svæðum þar sem fjórða við­bún­að­ar­stig verður í gildi munu hins vegar þurfa að halda sig heima til og með 30. des­em­ber, líkt og áður segir.

Jólahald með óhefðbundnu sniði víðar í Evrópu

Eng­lend­ingar bæt­ast þar með í hóp ann­arra Evr­ópu­þjóða sem þurfa að sætta sig við það að halda sig heima yfir hátíð­irnar. Guiseppe Conte for­sæt­is­ráð­herra kynnti í gær hertar aðgerðir sem munu gilda á Ítalíu yfir jól og ára­mót. Frá 24. til 27. des­em­ber, frá 31. des­em­ber til 3. jan­úar og loks dag­ana 5. og 6. jan­úar mega Ítalir ein­ungis ferð­ast frá heim­ilum sínum til þess að sinna vinnu, kaupa nauð­synjar eða sækja lækn­is­þjón­ustu. Hvert heim­ili má þó taka við tveimur full­orðnum gestum á meðan þessar tak­mark­anir eru í gild. Þar gildir enn fremur útgöngu­bann milli klukkan tíu á kvöldin og til fimm á morgn­anna.

Á vef BBC má lesa um hvaða aðgerðir eru í gildi í hinum ýmsu löndum Evrópu. Þar segir að nauð­syn­legri verslun og þjón­ustu verði lokað fram í jan­úar í Hollandi og Þýska­landi. Yfir jólin mun þýskum fjöl­skyldum þó leyfast að taka á móti allt að fjórum nánum fjöl­skyldu­með­limum.

Í Aust­ur­ríki taka sam­bæri­legar lok­anir gildi frá og með 26. des­em­ber og ferða­lög fólks verða veru­legum tak­mörk­unum háð. Þá er í umfjöllun BBC fjallað um til­mæli sænskra yfir­valda er snúa að grímunotkun. Þar í landi er fólki nú ráð­lagt að nota and­lits­grímur í almenn­ings­sam­göngum á háanna­tímum. Þá hefur hámarks­fjöldi gesta á hverju borði sænskra veit­inga­staða verið lækk­aður úr átta í fjóra og sala áfengis eftir klukkan átta á kvöldin verið bönnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár