Bessastaðir þurfa fyrirliða og móður

Halla Tóm­as­dóttir býður sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Kjarninn ræddi við hana um fram­boðið og stefnu­málin.

Halla Tómasdóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Halla Tóm­as­dóttir gefur kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands.

Halla Tóm­as­dóttir er rekstr­ar­hag­fræð­ingur og hefur fjöl­breyttan starfs­feril að baki á sviði við­skipta og starfar í dag sem fyr­ir­les­ari og ráð­gjafi á alþjóða­vett­vangi. Halla er ekki flokks­bundin og er eina konan í for­seta­fram­boði sem hefur mælst eitt­hvað að ráði í skoð­ana­könn­unum.

Halla var ein þeirra sem stóð að baki Þjóð­fund­inum 2009. Hún vill að for­seti Íslands leiði þjóð­ina í að inn­leiða þau gildi sem valin voru á þeim fundi. Þar hafi skýr sýn þjóð­ar­innar komið fram með fal­legum hætti.

„Við viljum sam­fé­lag sem byggir á heið­ar­leika, rétt­læti, jafn­rétti og virð­ingu. Þetta lýsir því sam­fé­lagi sem ég ólst upp í og það skiptir mig máli að búa í sam­fé­lagi þar sem þetta eru grunn­gildin. En ég hef ekki séð frá efna­hags­hrun­inu að við séum að takast á við þessa vinnu, að berja í sam­fé­lags­brest­ina og byggja upp traust að nýju,” segir Halla.

Ekki nóg að vinna í Excel

Traustið í sam­fé­lag­inu hvarf við efna­hags­hrunið, segir Halla og hún hefur áhyggjur af því að svipað gæti verið uppi á ten­ingnum nú í tenglsum við Panama­skjölin.

„Þegar umfjöllun um þau hófst var eins og hrúðrið hafi verið rifið ofan af sár­inu, sem ég kalla sam­fé­lags­sárið, og salti nuddað í sárin. Við höfum mest verið að vinna í Excel, með því að laga efna­hags­reikn­ing­inn, og end­ur­byggja hluti sem virk­uðu ekki áður, eins og t.d. fjár­mála­kerfið. Mik­il­vægri vinnu sem lýtur að mann­eskj­unni og sam­fé­lags­sátt­mál­anum hefur ekki verið sinnt nægi­lega. Við höfum ekki horft mikið til fram­tíðar og unnið að því að end­ur­byggja traust, bæði í orði og á borði. Þarna tel ég að for­seti Íslands geti látið til sín taka.“

Stjórnmálamenn þurfi að gefa of mikið eftir

Halla hefur aldrei starfað á vett­vangi stjórn­mála og hefur ekki íhugað að breyta því.

„Mér finnst stundum eins og stjórn­mála­menn þurfi að gefa of mikið eftir í sínum prinsippum. Ég hef aldrei keypt það að jafn stór mál eins og umhverf­is­vernd og jafn­rétt­is­mál falli í eitt­hvað vinstri/hægri. Þau eiga að spanna allan kvarð­ann,“ segir hún. For­set­inn eigi ekki að vera póli­tískur, heldur eigi hann að leiða þá mark­vissu vinnu sem til þarf svo þau gildi sem okkur langar að lifa eftir verði inn­leidd.

„Við höfum ekki farið í þessa mjúku og ósýni­legu vinnu sem er ótrú­lega mik­il­væg. Ég sé fyrir mér að for­seti leiði þá vinnu með því að vera fyr­ir­liði í virkjun sam­fé­lags­ins í þeirri lang­tíma­veg­ferð, umræðu og aðgerðum sem þarf til að gild­is­matið og sam­fé­lagið verði það sem Íslend­ingar vilja.“

Mér finnst stundum eins og stjórn­mála­menn þurfi að gefa of mikið eftir í sínum prinsippum. Ég hef aldrei keypt það að jafn stór mál eins og umhverf­is­vernd og jafn­rétt­is­mál falli í eitt­hvað vinstri/hægri. Þau eiga að spanna allan kvarð­ann.

Vill halda fleiri fundi

Halla vill að for­seti verði leið­andi í að boða til sam­tals um fram­tíð­ina og vill að Íslend­ingar taki þátt í að móta sitt sam­fé­lag með virk­ari hætti. „Stjórn­völd horfa of gjarnan til skamms tíma og beina ekki nægri athygli að þeim stóru málum sem varða lang­tíma­hags­muni okkar allra, eins og nátt­úru­vernd, sjálf­bærni, jafn­rétt­is­mál og aðgengi að auð­lindum. Það er enn mörgum spurn­ingum ósvarað. Forseti á að skapa vett­vang fyrir umræðu um þessi stóru mál.“

Hún vill að Ísland verði fyrsta land heims til að brúa kynja­bilið. „Við höfum jákvæða jafn­réttisí­mynd á alþjóða­vísu og for­seti á að geta sett slík mál á odd­inn og ég vil að á Íslandi sé jafn­rétti fyrir alla, óháð fjár­hags­legri stöðu, kyni, aldri, búsetu og upp­runa. Ég vil ekki horfa bara á efna­hags­legar stærðir þegar við setjum okkur mark­mið og mælum okkar árangur, heldur líka horfa til sam­fé­lags­legra mæli­kvarða sem kann að vera erf­ið­ara að mæla.”

„Við höfum jákvæða jafnréttisímynd á alþjóðavísu og forseti á að geta sett slík mál á oddinn og ég vil að á Íslandi sé jafnrétti fyrir alla,“ segir Halla.
„Við höfum jákvæða jafn­réttisí­mynd á alþjóða­vísu og for­seti á að geta sett slík mál á odd­inn og ég vil að á Íslandi sé jafn­rétti fyrir alla,“ segir Halla.

Bessastaðir þurfa ekki hetju

Halla seg­ist víða hafa leitt upp­bygg­ingu til fram­tíðar á grunni góðra gilda, meðal ann­ars í Háskól­anum í Reykja­vík, í Auði í krafti kvenna, hjá Auði Capital og á Þjóð­fundi 2009. Hún vill verða for­seti til að halda áfram slíkri vinnu í stærra sam­hengi. 

„Mig langar ekki í emb­ætti for­seta, emb­ætt­is­ins vegna. En mig langar í verk­efnið að skapa hér gjöf­ult og gott sam­fé­lag fyrir alla. Ég sé of marga benda út um glugg­ann á ástandið í sam­fé­lag­inu og segja „það þarf ein­hver að gera eitt­hvað í þessu” eða „von­andi kemur ein­hver og bjargar okkur út úr þessu”. En ég er ekki þeirrar skoð­unar að ein­hver ein mann­eskja geti gert það, hvorki ég né nokkur annar. Það þarf að vera fyr­ir­liði, leið­togi meðal fólks, sem virkjar visku og vitið í þjóð­inni sjálfri. Ég hafna þess­ari orð­ræðu og umræðu sem hefur verið ráð­andi síð­ustu daga og vikur að það sé ein­hver ein hetja sem kemur og leiðir okkur inn í far­sæla fram­tíð, eða forðar okkur frá ógnum og ótta. Þessu þarf að breyta. Ég hef stundum sagt að það þurfi móður og fyr­ir­liða á Bessa­staði, frekar en hetju eða ein­hvern sem telur sig stærri eða betri en aðra. Ég sé fyrir mér mýkri með­ferð á valdi heldur en við höfum séð und­an­farið. Auðmýkt er horn­steinn þess að ná að virkja fólk með sér. Sá sem heldur að hann geti allt og kunni allt er sá síð­asti sem á að vera í þessu emb­ætti.“

Ég hef stundum sagt að það þurfi móður og fyr­ir­liða á Bessa­staði, frekar en hetju eða ein­hvern sem telur sig stærri eða betri en aðra.

Vill ekki fá atkvæði út á kynið

Eitt ein­kenni íslensks sam­fé­lags um þessar mundir að mati Höllu er að fólk skor­ast gjarnan undan því að stíga fram og gefa kost á sér, á sama tíma og það kvartar yfir ástand­inu. 

„Allir hafa burði og getu til þess að taka á sig ábyrgð. Ég ber virð­ingu fyrir því að fólk bjóði sig fram og ég held að það sé betra að margir bjóði sig fram heldur en að þeir séu of fáir og fólk haldi að bara ein­hver einn eða tveir geti valdið þessu emb­ætti. Það er enn­fremur mik­il­vægt að eiga þess kost að kjósa konu. Ég hef sett jafn­rétt­is­mál á odd­inn og það hefur eitt­hvað um það að segja að ég býð mig fram, ég vil ekki skor­ast undan ábyrgð í mínu sam­fé­lagi. Ég er þó ekki að leggja til að fólk kjósi mig því ég er kona, heldur benda á að konur koma gjarnan með aðrar áherslur að borð­inu. Hvorki betri né verri, bara ólíkar. Samfélag sem virkjar áherslur bæði karla og kvenna við ákvarð­anir er heil­brigð­ara sam­fé­lag. Það er lyk­il­at­riði þegar við tölum um for­ystu, fram­tíð og gildi að raddir bæði kvenna og karla heyr­ist.“

Halla veifar háskólanemum á dögunum þegar forsetaframbjóðendur sátu fyrir svörum í Háskólanum í Reykjavík.
Halla veifar háskóla­nemum á dög­unum þegar for­seta­fram­bjóð­endur sátu fyrir svörum í Háskól­anum í Reykja­vík.

Vill konu á Bessastaði

Halla fékk fyrstu áskor­an­irnar um að bjóða sig fram til for­seta í des­em­ber. Hún seg­ist ekki hafa verið spennt fyrir því þá og lítið hugsað út í það. Hún hugs­aði málið í rúma tvo mán­uði áður en hún lét vaða. 

„Ég vil fá konu á Bessa­staði og ég hvatti fjöl­margar konur til þess að gefa kost á sér. En þegar engin þeirra sem ég hvatti til fram­boðs lét slag standa, ákvað ég að gera það sjálf,“ segir hún. En var ákvörð­unin auð­veld? 

„Nei, hún var það ekki, en þegar ég tók hana loks var mér í raun mjög létt. Ég vil bara að Ísland fái góðan for­seta og ég er ekki sú eina sem get verið það. Ég ótt­ast kannski það eitt að eitt­hvað sem ger­ist á veg­ferð­inni geti komið börn­unum mínum illa. Ég held að ég sé kannski týpísk kona hvað það varðar og ég held að það hafi verið stærsti ótt­inn í ákvarð­ana­tök­unni. Í sam­fé­lagi þar sem rætin umræða er orðin venjan þá hugs­aði ég um hvernig það hefði áhrif á börnin mín. En ég ákvað í sam­tali við fjöl­skyldu mína að gera þetta í ótta­leysi,“ segir hún.

Ég vil fá konu á Bessa­staði og ég hvatti fjöl­margar konur til þess að gefa kost á sér. En þegar engin þeirra sem ég hvatti til fram­boðs lét slag standa, ákvað ég að gera það sjálf.

Gagnrýnir aðferðafræði í könnunum

Halla hefur ekki verið að mæl­ast með mikið fylgi í könn­unum, en er samt sem áður eina konan af fjórum í fram­boði sem hefur mælst með meira en eitt pró­sent. Und­an­farið hefur stuðn­ingur við Höllu verið að mæl­ast frá tæpum níu pró­sentum og niður fyrir eitt pró­sent.

„Tölurnar eru ekki hvetj­andi sem stendur. En ég fer af stað til­tölu­lega lítið þekkt, við vissum að við tæki mikið kynn­ing­ar­starf. Ég vil vinna það með því að hitta fólk og byggja mitt fram­boð á því hvað fólkið á Íslandi vill. Við­tök­urnar sem ég hef fengið hingað til gefa mér fullt til­efni til að vera bjart­sýn,“ segir hún.

Hinar ýmsu fylgiskann­anir hafa verið birtar und­an­farnar vikur og segir Halla sumar þeirra hafa verið ófag­legar. „Ég mun trúa á vel unnar og vand­aðar kann­anir sem gerðar verða þegar fram­boðs­frestur er runn­inn út og fram­bjóð­endur hafa fengið nægt tæki­færi til að kynna sig. Það er mín afstaða að maður verði að vera rólegur og halda áfram að standa fyrir sínu.“

Getur tekið tapi eins og kona

Halla telur enn að hún eigi mögu­leika á for­seta­stólnum. „En ég tel veg­ferð­ina líka mik­il­væga. Ég vil gera gagn og láta gott af mér leiða, en ég get tekið því eins og kona, af mik­illi auð­mýkt, ef ég er ekki það sem fólkið vill,“ segir hún. „Það er of snemmt að segja að ég eigi að pakka saman vegna kann­ana sem eru að koma núna. Kannski mun mér ekki end­ast tím­inn og tæki­færin til, en ég ætla að halda ótrauð áfram að hitta fólk og kynna mína sýn og mín gildi og njóta þeirrar veg­ferðar.“

Ég vil gera gagn og láta gott af mér leiða, en ég get tekið því eins og kona, af mik­illi auð­mýkt, ef ég er ekki það sem fólkið vill.

Kjarninn birtir viðtöl yfir Hvítasunnuhelgina við þá forsetaframbjóðendur sem hafa mælst best í skoðanakönnunum undanfarið. Tekið skal fram að Davið Oddsson hafnaði beiðni Kjarnans um viðtal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár