Heildarsöluvirði eigna 17,6 milljarðar á varnarliðssvæðinu

Íslenska ríkið hefur selt stóran hluta af fast­eignum sínum á varn­ar­liðs­svæð­inu til einka­að­ila. Ríkið eign­að­ist eign­irnar þegar Banda­ríkja­her fór fyrir rúmum ára­tug.

Félagið Íslenskar fast­eignir ehf. hefur keyp íbúða- og atvinnu­hús­næði á Ásbrú, af félag­inu Kadeco, fyrir um fimm millj­arða króna.

Kaup­samn­ingur þess efnis var und­ir­rit­aður í gær. „Þessi eigna­sala er enn eitt skrefið sem Kadeco stígur í átt að þeim mark­miðum sem að var stefnt þegar félagið var stofnað og ríkið tók við eignum varn­ar­liðs­ins hér á Ásbrú. Salan er ekki síður ánægju­efni fyrir sam­fé­lagið hér á Reykja­nesi. Hún er stað­fest­ing á þeim upp­gangi og upp­bygg­ingu sem átt hefur sér stað og framundan er hér á svæð­inu og sýnir að einka­að­ilar eru reiðu­búnir til þess að leggja veru­legt fjár­magn til þeirrar upp­bygg­ingar til fram­tíðar,“ segir Kjartan Þór Eiríks­son, fram­kvæmda­stjóri Kadeco.

Heild­ar­sölu­and­virði eign­anna frá upp­hafi nemur sam­tals um 17,6 millj­örðum króna. Þar af hefur Kadeco und­an­farin tvö ár selt eignir fyrir 8,5 millj­arða. Hreinar tekjur Rík­is­sjóðs af sölu eigna á Ásbrú munu á end­anum nema ríf­lega tíu millj­örðum króna, sam­kvæmt áætl­unum.

Kjartan segir að mann­lífið á svæð­inu hafi þró­ast vonum fram, en um 2.500 manns búa nú á svæð­inu og fyr­ir­tæki eru vel á annað hund­rað.

Eign­irnar voru settar í opið sölu­ferli síð­ast­liðið vor og tók sölu­ferlið því um hálft ár. Um er að ræða hús­næði sem skráð er á sam­tals 231 fasta­númer eða um 28 pró­sent af heild­ar­fer­metra­fjölda þess hús­næðis sem Kadeco hefur haft umsýslu með fyrir hönd íslenska rík­is­ins, en ríkið eign­að­ist hús­næðið á svæð­inu þegar Banda­ríkja­her fór frá svæð­inu í októ­ber 2006.

Eign­irnar eru í mis­mun­andi ástandi, að því er segir í til­kynn­ingu, og fyrir liggur að leggja þarf veru­lega fjár­muni í við­hald og end­ur­bætur á þeim á næstu árum. Áætlun Kadeco gerði ráð fyrir að fjár­festa þyrfti um tveimur millj­örðum króna í því skyni að koma þeim í notkun.

Með söl­unni hefur Kadeco lokið við að selja um 93 pró­sent þess hús­næðis sem félagið hefur haft til umsýslu á Ásbrú fyrir hönd rík­is­sjóðs eftir brott­hvarf banda­ríkja­hers frá Mið­nes­heiði. Frá þeim tíma hafa fast­eign­irnar verið seldar til 38 mis­mun­andi aðila í opnu sölu­ferli.

Íslenskar fast­eignir ehf. er fast­eigna­þró­un­ar­fé­lag sem sér­hæfir sig í verk­efna­stjórnun og umsjón við þróun fast­eigna, af því er segir á vef þess, en ekki kemur fram hverjir eru eig­endur félags­ins. Félagið tekur að sér sam­kvæmt samn­ingi við fast­eigna­eig­anda að ann­ast alla þætti fram­kvæmda og und­ir­bún­ing að þeim, þ.m.t. skipu­lags­vinnu, hönnun, útboð verk­þátta, fjár­mögnun og sölu. Jafn­framt tekur ÍF að sér rekstur fast­eigna, við­hald og eft­ir­lit eftir þörfum fast­eigna­eig­anda hverju sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár