Tökur enn í gangi þrátt fyrir sóttvarnareglur

Íslensk fram­leiðslu­fyr­ir­tæki hafa náð að halda áfram starf­semi sinni, þrátt fyrir fjölda­tak­mörk og tveggja metra fjar­lægð. Fram­leiðslu­deild RÚV fékk und­an­þágu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og mega þar 20 manns starfa í hverju rými.

Nokkur kvik­mynda- og sjón­varps­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki hafa ákveðið að stöðva starf­semi sína í ljósi núgild­andi sótt­varna­reglna, sem inni­halda tíu manna fjölda­tak­mörk og tveggja metra fjar­lægð­ar­reglu. Önnur hafa hins vegar náð að halda áfram starf­semi sinni með auknum sótt­varna­ráð­stöf­unum, meðal ann­ars með skipt­ingu mynd­vera í sótt­varna­hólf. Fram­leiðslu­deild RÚV hefur svo fengið und­an­þágu frá tíu manna regl­unni, en sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu var hún veitt svo að Rík­is­út­varpið gæti sinnt sínu lög­bundna hlut­verki.

Hlé hjá Sagafilm

Anna Vigdís Gísla­dóttir, fram­leið­andi hjá Sagafilm, segir fyr­ir­tækið hafa gert hlé á þeim kvik­mynda­tökum sem ekki rúm­ast innan tíu manna regl­unnar. „Sagafilm hefur átt í mjög góðu sam­starfi við sótt­varna­lækni og ráðu­neytið um reglur sem unnið hefur verið eftir við kvik­mynda­tökur frá því í vor. Við könn­uðum með und­an­þágur þegar þessar nýju reglur tóku gildi en fengum skýr svör að þær yrðu ekki veittar. Við virðum það að sjálf­sögðu,“ sagði Anna Vigdís.

Tökur á Ófærð í gangi

Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið RVK Studios hefur hins vegar náð að halda áfram tökum á sjón­varps­þátta­röð­inni Ófærð, þrátt fyrir þessar tak­mark­anir. Baltasar Kormákur, leik­stjóri þátt­anna, segir gott sam­starf hafa verið með sótt­varna­yf­ir­völdum á síð­ustu mán­uðum og vísar meðal ann­ars til góðra umsagna lög­regl­unnar á Aust­ur­landi á vinnu­háttum fyr­ir­tæk­is­ins í síð­asta mán­uði.

Baltasar bætir við að fyr­ir­tækið vinni með streym­is­ris­anum Netflix, sem geri miklar kröfur til þess að sótt­varnir séu í lagi, auk þess sem starfs­fólk hans sé hita­mælt dag­lega. Einnig segir hann að hægt hafi verið að halda áfram með upp­tökur í mynd­veri með því að skipta því í mörg sótt­varna­hólf.

RÚV með undanþágu

Frétta­stofa og fram­leiðslu­deild RÚV hefur hins vegar fengið und­an­þágu frá núgild­andi sótt­varna­lögum. Þar mega nú vera allt að 20 manns í hverju rými. Í tölvu­pósti sem starfs­mönnum RÚV barst vegna und­an­þág­unnar kemur fram að fram­leiðslu­deildin sé hluti af því almanna­við­bragði sem er í gangi í ljósi sam­komu­tak­markanna, þar sem „and­lega hlið land­ans“ sé mik­il­vægt hags­muna­mál.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir heil­brigð­is­ráðu­neytið hins vegar að ákveðið hafi verið að veita und­an­þág­una í ljósi þess lög­bundna örygg­is­hlut­verks sem RÚV gegnir í miðlun upp­lýs­inga. Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri segir í sam­tali við Kjarnann að und­an­þág­unni sé aðal­lega beitt í frétta­stofu RÚV, en örfá til­vik geti einnig komið fram þar sem óhjá­kvæmi­legt er að fjölga starfs­mönnum í sama rými. Þá bætir hann við að hann telji að fram­leiðslu­deildin hafi ekki enn þurft að nýta þessa heim­ild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ófærð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár