Hrannar Pétursson hættur við forsetaframboð

Hrannar Pétursson á fundinum í dag þar sem hann tilkynnti að hann væri hættur við framboð.
Hrannar Pét­urs­son á fund­inum í dag þar sem hann til­kynnti að hann væri hættur við fram­boð. Mynd: Sunna Valgerðardóttir.

Hrannar Pét­urs­son er hættur við fram­boð til emb­ættis for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hann á fundi Stúd­enta­fé­lags Háskól­ans í Reykja­vík með for­seta­fram­bjóð­endum í hádeg­inu. Hrannar sagði ástæðu þessa þá að Ólafur Ragnar Grímsson, sitj­andi for­seti, hefði ákveðið að bjóða sig fram á ný eftir að hafa til­kynnt um ára­mót að hann ætl­aði að draga sig í hlé.

Óláfur Ragnar, sem verið hefur for­seti Íslands í 20 ár, til­kynnti um ákvörðun sína mánu­dag­inn 18. apríl. Síðan þá hafa fjórir for­seta­fram­bjóð­endur hætt við fram­boð. Tveir þeirra drógu fram­boð sitt til baka sam­dæg­urs, þeir Vigfús Bjarni Alberts­son og Guð­mundur Franklín Jónsson. Heimir Örn Hólmars­son bætt­ist svo við skömmu síðar og um helg­ina til­kynnti Bæring Ólafsson líka að hann ætl­aði ekki lengur fram. Allir báru fyrir sig ákvörðun Ólafs Ragnars.

Enn eru ell­efu fram­bjóð­endur enn í slagnum um for­seta­emb­ættið.

Hrannar las upp ræðu á fund­inum þar sem hann sagði und­an­farna mán­uði hafa verið bæði anna­sama og lær­dóms­ríka.

„Sú ákvörðun for­seta Íslands að gefa kost á sér til end­ur­kjörs var óvænt. Hún breytir eðli kosn­ing­anna og í ljósi aðstæðna hef ég ákveðið að draga fram­boð mitt til baka,“ sagði Hrannar. „Mín sýn á emb­ættið er óbreytt. For­set­inn á að tala yfir átaka­lín­urnar í sam­fé­lag­inu og leggja sig fram um að sætta ólík sjón­ar­mið. Hann á að tala fyrir sam­hjálp og sann­girni. Hann á að sýna kjark og skyn­semi í öllum sínum störfum en ekki taka þátt í póli­tísku dæg­ur­þrasi. Hann á að berj­ast fyrir því að Ísland verði spenn­andi fram­tíð­ar­val­kostur fyrir ungt fólk og upp­byggi­leg við­horf verði ríkj­andi. Hann á að beita sér fyrir nýsköpun í atvinnu­lífi, menn­ingu og menntun. Hann á að vera helsti tals­maður kynja­jafn­réttis í land­inu og bar­áttu­maður fyrir bættri lýð­heilsu. Hann á að vera tals­maður lands og þjóðar á alþjóða­vett­vangi, taka þátt í að kynna kosti Íslands og styðja við starf­semi Íslend­inga erlendis með hóg­værð og lát­leysi."

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár