OECD vill fleiri störf fyrir innflytjendur

Aðal­rit­ari OECD vill greiða leið inn­flytj­enda og flótta­manna að vinnu­mark­aði og segir atvinnu­rek­endur þurfa að taka þátt í aðlögun þeirra.

OECD vill meðal annars draga úr ólöglegri starfsemi innflytjenda, en hér á landi hefur hún oft verið tengd við byggingarstörf.
OECD vill meðal ann­ars draga úr ólög­legri starf­semi inn­flytj­enda, en hér á landi hefur hún oft verið tengd við bygg­ing­ar­störf. Mynd: Bára Huld Beck

Ný skýrsla OECD mælir með auknu aðgengi inn­flytj­enda og flótta­manna að lög­legum störfum. Þær aðgerðir myndu hafa jákvæð sam­fé­lags­leg áhrif, en stofn­unin bendir einnig á að áhyggjur almenn­ings af nei­kvæðum áhrifum inn­flytj­enda séu ofmetin.

Samkvæmt skýrsl­unni hefur fjöldi inn­flytj­enda til OECD-ríkja minnkað nokkuð í fyrsta skiptið síðan 2011, en í fyrra nam hann fimm millj­ónum, miðað við 5,3 millj­ónir árið 2016. Þróunin skýrist aðal­lega af fækkun hæl­is­leit­enda í Evrópu, en þeir námu 1,2 millj­ónum í fyrra sam­an­borið við 1,6 milljón árið 2016.

Fleiri störf fyrir innflytjendur

„Löndin hafa náð góðum árangri hvað varðar aðlögun, tungu­mála­kennslu og við­ur­kenn­ingu á hæfni inn­flytj­enda,“ sagði Angel Gurría, aðal­rit­ari sam­tak­anna, við kynn­ingu á skýrsl­unni í París í síð­ustu viku. Gurría benti einnig á nauð­syn þess að atvinnu­rek­endur taki þátt í aðlög­un­inni, en OECD hefur hrundið af stað aðgerð­ar­á­ætlun í sam­starfi við flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem stefnir að auknum starfs­mögu­leikum fyrir flótta­menn.

Samkvæmt skýrsl­unni er einnig nauð­syn­legt fyrir OECD-löndin að ráð­ast í aðgerðir gegn ólög­legum störfum inn­flytj­enda. Slíkar aðgerðir ættu ann­ars vegar að fela í sér reglu­bundið eft­ir­lit á vinnu­mark­aði og hins vegar að auð­velda inn­flytj­endum að verða úti um lög­leg störf. Þetta sé mik­il­vægt að mati stofn­un­ar­innar þar sem rétt­indi þeirra í slíkum störfum séu oft fótum troðin auk þess sem starf­semin eigi veiga­mik­inn þátt í að við­halda nei­kvæðu almenn­ings­á­liti gagn­vart inn­flytj­end­unum sjálfum.

Áhrif flóttamanna ofmetin

[links]Í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna vegna skýrsl­unnar er vikið að almenn­ings­á­liti vegna áhrifa inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði, en víða eru áhyggjur að inn­flæði flótta­manna til Evrópu und­an­far­inna ára hafi nei­kvæð áhrif á atvinnu­tæki­færi inn­fæddra. Skýrslan er sú fyrsta til að meta þau áhrif, en sam­kvæmt henni eru þau óveru­leg og áhyggjur um minna starfs­ör­yggi óþarfar. Flótta­menn sem komið hafa til Evrópu myndu ekki stækka vinnu­mark­að­inn um meira en 0,4 pró­sent og þar sem margir þeirra haldi sér utan vinnu­mark­aðs­ins mun stækk­unin lík­lega ekki nema meira en 0,24 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár