Vilja viðurlög vegna brota sem varða verulega almannahagsmuni

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn vilja að aðstoð­ar­menn ráð­herra þurfi að bíða í sex mán­uði eftir að þeir ljúki störfum áður en þeir ger­ist hags­muna­verðir.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er á meðal þeirra þingmanna sem skrifaðir eru á álitið.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, er á meðal þeirra þing­manna sem skrif­aðir eru á álitið. Mynd: Bára Huld Beck

Minni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vill að eft­ir­lit með hags­muna­skrán­ingu æðstu vald­hafa fram­kvæmda­valds­ins verði fært frá for­sæt­is­ráð­herra til sjálf­stæðrar eft­ir­lits­nefndar og að þeirri nefnd verði gefin rík­ari heim­ild til að safna og vinna úr upp­lýs­ingum, auk þess sem hún fái heim­ild til að beita við­ur­lögum vegna brota sem varða veru­lega almanna­hags­muni. Þetta kemur fram í áliti hans um frum­varp þess efnis. Minni­hlut­ann skipa Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ingar, og Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka.

Í við­ur­lög­unum ætti að fel­ast, að mati minni­hlut­ans, að þegar brot telj­ist sér­stak­lega alvar­leg ætti birta nið­ur­stöðu eft­ir­lits­nefndar um hags­muna­á­rekstra opin­ber­lega. Það ætti að gilda um ráð­herra sem og aðra sem frum­varpið mun ná yfir. „Til frek­ari aðgerða, á borð við áminn­ingu starfs­manns innan ráðu­neytis, kann að koma, en það væri sjálf­stæð ákvörðun þeirra sem stjórna því ráðu­neyti sem um ræðir. Til lengri tíma telur minni hlut­inn ástæðu til að útfæra við­ur­lög með ítar­legri hætti og leggur því til í bráða­birgða­á­kvæði að lögin verði end­ur­skoðuð þegar reynsla verður komin á störf eft­ir­lits­nefndar um hags­muna­á­rekstra.“

Skylda á alla í æðsta laginu til að gefa upp hagsmuni

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði frum­varpið fram í jan­úar. Á meðal þess sem fram kemur í frum­varp­inu, er að skylda alla þá sem starfa í æðsta lagi íslenskrar stjórn­­­sýslu og í stjórn­­­málum að gefa upp hags­muni sína og gera ítar­­lega grein fyrir fjár­­hags­­legum hags­munum sín­­um.

[adspot]Þá felur það í sér að hags­muna­verðir (e. lobbý­istar) sem eiga sam­­skipti við stjórn­­­mála­­menn og stjórn­­­sýslu verði gert að skrá sig sem slíka. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa lýst sig afar mót­fallin slíkri skrán­ingu.

Æðstu hand­hafar fram­kvæmda­valds­ins og aðstoð­ar­menn þeirra munu ekki geta sinnt öðrum störfum sam­hliða sín­um, verði frum­varpið að lögum og þegar þeir hætta störfum mun þeim verða óheim­ilt að ger­ast hags­muna­verðir í sex mán­uði. Þeim sem lögin munu ná yfir verður enn fremur óheim­ilt að „nota upp­lýs­ingar sem þeir höfðu aðgang að í krafti starfs síns fyrir hið opin­bera sér eða öðrum til óeðli­legs ávinn­ings.“

Þeir sem lögin munu ná yfir, verði frum­varpið sam­þykkt, munu meðal ann­ars þurfa að skila til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins skrá yfir nánar til­­­teknar eign­ir, skuldir og sjálf­skuld­ar­á­byrgðir þ.m.t. erlend­is, þegar við­kom­andi hefur störf hjá Stjórn­­­ar­ráð­inu. Sömu upp­­lýs­ingum þurfi að skila varð­andi maka og ólög­ráða börn.

Vilja að aðstoðarmenn þurfi að bíða líka

Minni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vill, auk áður nefndra breyt­inga, gera breyt­ingu á ákvæði um bið­tíma áður en starfs­menn geti tekið að sér störf við hags­muna­gæslu. Í álit­inu segir að engin rök standi til þess að halda aðstoð­ar­mönnum ráð­herra utan þess ákvæðis, og raunar frá­leitt í ljósi þess að þeir eru sá hópur sem sækir einna mest í slík störf af þeim sem fjallað er um í lög­unum.

Minni hlut­inn gerir aftur á móti ekki athuga­semd við þriðja meg­in­þátt frum­varps­ins, sem snýr að skrán­ingu hags­muna­varða og sam­skiptum þeirra við stjórn­völd. „Sú breyt­ing er afar mik­il­væg til að ávallt sé ljóst hverjir koma að því að hafa áhrif á opin­bera stefnu­mörkun. Við umfjöllun nefnd­ar­innar komu aðeins fram ábend­ingar um minni háttar lag­fær­ingar á þeim hluta frum­varps­ins, sem orðið er við í til­lögum meiri hluta nefnd­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár