Stjórnvöld koma með tillögur í gjaldeyrismálum í þessum mánuði

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra segir að verið sé að vinna að til­lögum um við­nám í gjald­eyr­is­málum, og þær verði til­búnar í þessum mán­uði. Full­trúar vog­un­ar­sjóða ósk­uðu eftir fundi með stjórn­völdum í New York nýverið.

Verið er að und­ir­búa til­lögur um aðgerðir til við­náms í gjald­eyr­is­málum og þær verða til­búnar í þessum mán­uði. Þetta sagði Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði Benedikt um gjald­eyr­is­mál og hafta­mál í fyr­ir­spurn sinni. Hann spurði hvenær vænta mætti afnáms hafta á almenn­ing og fyr­ir­tæki, en slíkt afnám gæti hjálpað til við að sporna gegn sífelldri styrk­ingu krón­unnar. Benedikt sagði að það gæti gerst á næstu vikum eða á næstu mán­uðum. Hann hefði ítrekað lýst því yfir að hann vildi að algjört afnám hafta yrði sem allra fyrst. Hann sagð­ist sam­mála Sigurði Inga með að það gæti verið mik­il­vægur áfangi í því að ná jafn­vægi í gjald­eyr­is­málum. Flöktið sem búið sé að vera á krón­unni sé bæði óvið­un­andi fyrir inn­lent atvinnu­líf og fyrir útflutn­ings­greinar.

Sigurður Ingi spurði einnig um fund íslenskra ráða­manna með full­trúum vog­un­ar­sjóða sem ekki tóku þátt í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans í fyrra. Þessir sjóðir eiga yfir hund­rað millj­arða í aflandskrónum. Greint var frá því fyrir skömmu að full­trúar stjórn­valda hefðu fundað með þeim í New York nýverið. Sigurður Ingi spurði Benedikt að því hvort þessi fundur væri að trufla aðgerðir stjórn­valda.

Því svar­aði Benedikt ekki, en hann upp­lýsti í svörum sínum að það hefðu verið full­trúar vog­un­ar­sjóð­anna sem ósk­uðu eftir fundi með stjórn­völdum. Þar hefði ekki verið gengið frá neinum samn­ingum en full­trúar þess­ara vog­un­ar­sjóða hefðu útskýrt sitt mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár