Vaxandi líkur á að veiran greinist á Íslandi

Daglega bæt­ast við lönd sem til­kynna um til­felli kór­ónu­veirunnar, COVID-19, þar á meðal nokkur grann­ríki Íslands. Öllum til­tækum ráðum er beitt til að hefta komu hennar hingað til lands.

Vaxandi líkur eru því taldar á að veiran eigi eftir að greinast hér á landi en allra ráða er beitt til að hefta komu hennar.
Vaxandi líkur eru því taldar á að veiran eigi eftir að grein­ast hér á landi en allra ráða er beitt til að hefta komu hennar. Mynd: EPA

Vaxandi líkur eru taldar á því að nýja kór­óna­veiran, COVID-19, eigi eftir að grein­ast hér á landi en „allra ráða er beitt til að hefta komu hennar,“ segir í skýrslu eftir stöðu­fund sam­hæf­ing­ar­mið­stöðvar almanna­varna sem hald­inn var í morgun. Daglega bæt­ast við lönd sem til­kynna um til­felli, þar á meðal nokkur grann­ríki Íslands.

Sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hefur nú rann­sakað 38 sýni, meðal ann­ars úr ein­kenna­lausum ein­stak­lingum. Reyndust þau öll nei­kvæð. Þó að veiran geti fund­ist hjá ein­kenna­lausum ein­stak­lingi þá er talið ólík­legt að þeir smiti aðra, þó það geti gerst í stöku til­fellum, segir í skýrsl­unni.

Í dag hefur sýk­ing af völdum COVID-19 verið stað­fest hjá um 82.132 manns og um 2.809 hafa lát­ist (3,4%). Samkvæmt John Hopkins hafa 33.212 manns náð sér eftir veik­indin.

Nýgreindum til­fellum innan Kína fer nú fækk­andi en hins vegar er veiran að grein­ast í fleiri löndum og fer fjölg­andi innan nokk­urra landa einkum Ítalíu og Suður-Kóreu. Flestar sýk­ingar í Evrópu í dag má rekja til Ítalíu.

Á Íslandi er unnið sam­kvæmt óvissu­stigi, Lands­á­ætlun- heims­far­aldur inflú­ensu. Ef svo ber undir má virkja Lands­á­ætlun-sótt­varnir hafna og skipa, og Lands­á­ætlun –alþjóða­flug­vellir sam­hliða Lands­á­ætlun vegna heims­far­ald­urs inflú­ensu.

Í gær var til­kynnt um skil­greind áhættu­svæði með mikla og litla smitá­hættu og er það mat óbreytt. Svæði með mikla smitá­hættu eru Kína, fjögur héruð á Norður Ítalíu (Lombardía, Venetó, Emilia Rómanja og Píemonte), Suður-Kórea og Íran. Sótt­varna­læknir ráð­leggur ein­stak­lingum frá því að fara til þess­ara landa/svæða að nauð­synja­lausu, en þeir sem koma hingað frá þessum stöðum er ráð­lagt að fara í 14 daga sótt­kví. Athugið að þeir sem fara um þessi svæði en dvelja ekki á þeim þurfa ekki að fara í sótt­kví. Þannig þurfa þeir sem fljúga til eða frá þessum svæðum, eftir dvöl á skíða­svæðum utan þeirra, ekki að fara í sótt­kví.

Áhættu­svæði sem skil­greind hafa verið með litla smitá­hættu eru önnur svæði á Ítalíu, Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife (fyrir utan H10 Costa Adeje Palace hót­elið). Ferða­menn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að per­sónu­legu hrein­læti og sýk­inga­vörnum en ekki er talin nauð­syn á sér­stakri sótt­kví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þessum svæðum. Ein­stak­lingum sem koma frá svæðum með litla áhættu eru beðnir að láta vita í síma 1700 ef þeir veikj­ast innan 14 daga eftir brott­för frá þessum svæðum.

[links]Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur opnað sér­stakan gagna­grunn fyrir Íslend­inga erlendis sem óska eftir að vera á skráðir hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og upp­lýstir um ferða­ráð vegna COVID-19 veirunnar á meðan á dvöl þeirra stendur. Í morgun höfðu yfir eitt þús­und ein­stak­lingar verið skráðir í grunn­inn.

Á Kefla­vík­ur­flug­velli, á Akureyri og á Seyð­is­firði eru sendar upp­lýs­ingar til far­þega um að til­kynna skuli veik­indi í síma 1700 eða hringja í heilsu­gæsl­una ef ein­stak­lingar finna fyrir veik­indum eftir að hafa verið á skil­greindum áhættu­svæðum. Á flug­völl­unum hafa við­bragðs­á­ætl­anir verið upp­færðar og er virk vöktun í gangi.

Almennt hreinlæti mikilvægt

Í skýrsl­unni kemur fram að ferða­menn sem eru nú þegar á skil­greindum áhættu­svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan séu beðnir um að huga vel að per­sónu­legu hrein­læti og sýk­inga­vörnum. Þær fela meðal ann­ars í sér að þvo hendur oft og vel, hafa klút fyrir and­lit­inu við hnerra og hósta í oln­boga­bót og nota hand­spritt. Almenn­ingur getur með auð­veldum hætti dregið úr sýk­ing­ar­hættu með því að gæta vel að per­sónu­lega hrein­læti. Hand­þvottur og almennt hrein­læti í kringum augu, nef og munn og það að forð­ast að heilsa með handa­bandi hefur lyk­il­þýð­ingu við að forð­ast smit og fækka smit­leiðum.“

Ein­stak­lingar sem fá ein­kenni frá önd­un­ar­færum, sér­stak­lega með hita, skulu þeir hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700 eða sína heilsu­gæslu sím­leiðis en ekki mæta óboð­aðir á sjúk­linga­mót­tökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár