Smitbylgjur áberandi í eldsneytistölum

Kaup Íslend­inga á elds­neyti hér­lendis hefur sveifl­ast tölu­vert með sótt­varn­ar­tak­mörk­unum sem fylgt hafa hverri smit­bylgju af COVID-19 á síð­ustu mán­uðum. Þrátt fyrir það eru kaupin nú tölu­vert yfir það sem þau voru áður en far­ald­ur­inn byrj­aði.

Alls keyptu Íslend­ingar tæp­lega 34 þús­und rúmmetra af elds­neyti í júní síð­ast­liðnum, sam­kvæmt nýbirtum tölum frá Hag­stof­unni og hafa þeir ekki keypt meira síðan í júlí árið 2017. Burtséð frá árs­tíð­ar­tengdum sveiflum hafa elds­neytis­kaup Íslend­inga sveifl­ast tölu­vert með öllum COVID-19 smit­bylgj­unum hér­lendis frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Eldsneyti fylgir sóttvarnarreglum

Áhrif smit­bylgn­anna og sótt­varn­ar­tak­mark­ana sem þeim fylgdu má sjá þegar mán­að­ar­leg elds­neytis­kaup Íslend­inga frá árs­byrjun 2020 til júní 2021 eru borin saman við kaupin í sama mán­uði árið 2019.

[adspot]

Líkt og myndin hér að neðan sýnir dróg­ust kaup Íslend­inga á elds­neyti mest saman í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, en í apríl 2020 keyptu þeir um þriðj­ungi minna en þeir gerðu á sama tíma árið 2019. Áhrif ann­arrar og þriðju bylgju far­ald­urs­ins eru einnig greini­leg, en elds­neytis­kaupin voru 8-17 pró­sentum undir sam­svar­andi kaup árið áður.

Það sem af er þessu ári hafa þó mán­að­ar­leg elds­neytis­kaup Íslend­inga verið meira en þau voru á sama tíma­bili árið 2019, þrátt fyrir að hafa dreg­ist saman milli mán­aða í kjöl­far fjórðu smit­bylgju far­ald­urs­ins í apríl síð­ast­liðnum. Í maí voru þau svo orðin tæp­lega fimmt­ungi meiri en þau voru í maí fyrir tveimur árum síðan.

Ferðamenn kaupa helmingi minna

Í tölum Hagstofu má einnig finna tölur um elds­neytis­kaup erlendra ferða­manna, en þau hafa verið í skötu­líki allt frá því að far­ald­ur­inn hófst fyrir einu og hálfu ári síðan. Þó hefur verið skjótur við­snún­ingur á síð­ustu mán­uðum, til að mynda voru þau tæp­lega fimm sinnum meiri en í sama mán­uði í fyrra. Í júní námu þau um 2,600 rúmmetrum.

Hins vegar vantar enn tölu­vert upp á að þau nái svip­uðum hæðum og á sum­ar­mán­uðum áður en að heims­far­ald­ur­inn hófst. Samkvæmt mynd­inni hér að ofan, sem sýnir elds­neytis­kaup ferða­manna frá árs­byrjun 2020 til júní 2021, keyptu ferða­menn helm­ingi minna elds­neyti í júní, miðað við sama mánuð árið 2019. Þetta er þó minnsti sam­drátt­ur­inn sem hefur mælst í elds­neytis­kaupum ferða­manna frá því að far­ald­ur­inn hófst í mars í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eldsneyti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár