Mynd: Unsplash/Rinson Chory

Ólögleg viðskipti grafa undan loftslagsávinningi

F-gös eru mann­gerðar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir sem hafa mik­inn hnatt­hlýn­un­ar­mátt. Evr­ópu­sam­bandið hefur um ára­bil unnið að útfösun á þessum efnum sem einna helst eru notuð sem kæli­m­iðlar.

F-gös, eða flú­or­aðar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir, eru mann­gerðar gas­teg­undir sem fram­leiddar hafa verið und­an­farna ára­tugi til notk­unar í marg­vís­legum iðn­aði og vörum. Langstærsti hluti F-gasa sem er í umferð á Íslandi er not­aður sem kæli­mið­ill, svo sem kæli­kerfi í skipum, stór­versl­unum, veit­inga­stöðum og til kæl­ingar tækni­rýma. Einnig finn­ast þessi efni í loft­ræs­ingum, varma­dælum, frauð­plasti og úða­brúsum. Þessar gas­teg­undir eru gríð­ar­lega öfl­ugar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir en þrátt fyrir það hefur lítið farið fyrir áhrifum þess­ara efna í lofts­lags­um­ræð­unni.

F-gös voru tekin í notkun á sínum tíma til að bregð­ast við aðkallandi vanda­máli - eyð­ingu óson­lags­ins. Árið 1987 sam­þykktu þjóðir heims Montreal-bók­un­ina sem sner­ist um að vernda óson­lagið með því að hætta notkun óso­neyð­andi efna t.d. fre­ons. Með því að banna freon og önnur óso­neyð­andi efni tókst heims­byggð­inni að stöðva eyð­ingu óson­lags­ins og er þetta tal­inn árang­urs­rík­asti alþjóða­samn­ing­ur­inn sem gerður hefur verið á sviði umhverf­is­mála. Þessum góða árangri má þakka F-gös­unum sem komu í stað óso­neyð­andi efn­ana. F-gösin eru þó ekki galla­laus og stuðla að öðru ekki síður flókn­ara máli, þ.e. lofts­lag­breyt­ingum.

Öflugari gróðurhúsalofttegundir en CO₂

F-gös eru, eins og áður segir, mörg hver öfl­ugar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir og hafa stór­kost­legan hnatt­hlýn­un­ar­mátt. Um er að ræða fjöl­breyttan gasa­hóp og eru efnin mis­skað­leg en skað­leg­ustu F-gösin geta verið allt að 23 þús­und sinnum öfl­ugri gróð­ur­húsa­loft­teg­undir en koltví­sýr­ingur.

Árið 2014 sam­þykkti Evr­ópu­sam­bandið til­skipun um að draga úr losun á F-gösum um 60% fyrir árið 2030, meðal ann­ars með því að banna notkun F-gasa í ákveð­inn búnað og vörur og skerða heild­ar­magn F-gasa sem sett eru á markað. Árið 2016 var síðan Kigali-við­bótin við Montreal-bók­un­ina sam­þykkt en með henni er gert ráð fyrir því að fram­leiðsla og notkun F-gasa drag­ist saman um 80% til árs­ins 2050. Ef ríki heims fram­fylgja Kigali-við­bót­inni er talið að hægt sé að koma í veg fyrir allt að hálfrar gráðu hlýnun á þess­ari öld og spilar útfösun F-gasa því stórt hlut­verk í því að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðu.

Umhverf­is­rann­sókna­stofn­unin EIA (e. Environ­mental Investigation Agency) gaf út skýrslu síð­ast­liðið sumar sem bendir til þess að svarta­mark­aðsvið­skipti á kæli­m­iðlum í Evrópu grafi nú undan slíkum lofts­lags­á­vinn­ingi.

F-gös eru meðal annars notuð í kælikerfum í stórverslunum.
F-gös eru meðal ann­ars notuð í kæli­kerfum í stór­versl­unum.

Stærsti umhverfisglæpur Evrópu

Eftir að Evr­ópu­sam­bandið hóf útfös­un­ar­tíma­bilið á F-gösum hefur verðið á vetn­is­flú­or­kolefnum (HFC), ákveð­inni teg­und F-gasa sem er að mestu leyti notuð sem kæli­m­iðlar, stór­auk­ist. Með hækk­andi verði, minna fram­boði og veiku eft­ir­liti hafa glæpa­sam­tök séð sér leik á borði og hafa svarta­mark­aðsvið­skipti á kæli­m­iðlum blómstrað innan Evrópu und­an­farin ár.

EIA telur umfang þess­ara ólög­legu við­skipta vera umtals­verða. Verulegt mis­ræmi er á milli til­kynn­inga um útflutn­ing HFC-efna frá Kína og til­kynn­inga um inn­flutn­ing á HFC-efnum til Evrópu. Það gefur til kynna að mun meira af þessum efnum séu að koma inn í álf­una en heim­ild er fyrir. Samkvæmt EIA leiða við­skiptin sem eiga sér stað á svarta­mark­aðnum til þess að þriðj­ungi meira af HFC-efnum er í umferð en heim­ild er fyrir innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ferðalag kælimiðlana

HFC-efnin eru að mestu leyti fram­leidd í Kína og kom­ast inn á evr­ópskan markað í gegnum m.a. Rússland, Tyrkland og Úkraínu. Rúmenía virð­ist síðan vera vin­sæll áfanga­staður fyrir efnin sökum þess hve auð­velt er að koma þeim í gegnum landa­mærin.

Starfs­menn EIA fóru til Rúmeníu til að rann­saka þessi ólög­legu við­skipti og áttu ekki í vand­ræðum með að finna ein­stak­linga sem til­búnir voru að brjóta lög til að útvega þeim HFC-efni. Efnunum hafði verið smyglað til Rúmeníu, oft í einnota ílátum sem eru ólög­leg í Evr­ópu­sam­band­inu. Frá Rúmeníu er kæli­m­iðl­unum síðan smyglað um alla Evrópu, m.a. til Belgíu, Ítalíu, Spánar og Englands.

Clare Perry, leið­togi lofts­lags­her­ferða hjá EIA, segir tím­ann til að takast á við lofts­lags­breyt­ingar á þrotum og því megi mann­kynið ekki við mis­tökum sem þessum. „Stærð­argráða ólög­legra við­skipta á vetn­is­flú­or­kolefnum innan Evr­ópu­sam­bands­ins ætti að hringja við­vör­un­ar­bjöllum - þetta er stærsti umhverf­is­glæp­ur­in­ins sem eng­inn hefur heyrt um.“

Perry segir einnig að ólög­leg við­skipti á HFC-efnum hafi hingað til ekki verið for­gangs­at­riði hjá yfir­völdum og séu við­ur­lögin við slíkum glæpum smá­vægi­leg sam­an­borið við hagn­að­inn af því að fremja glæp­inn.

Til að meta umfang vand­ans sendi EIA spurn­inga­lista til breiðs hóps af fólki sem starfar m.a. með kæli­m­iðla og loft­ræst­ingar. Af þeim sem tóku þátt í könn­un­inni sögð­ust 83% vita um eða gruna ólög­lega HFC notkun og 78% sögð­ust hafa séð eða verið boðið kæli­m­iðla í einnota ílátum. Á sama tíma sögð­ust fáir vita til þess að rík­is­stjórnin í þeirra landi væri að gera eitt­hvað til að taka á ólög­legum við­skiptum á HFC-efnum.

Engin mál um smygl komið upp á Íslandi

Áætlað er að um 7% af losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda komi frá F-gösum, en það er sam­bæri­legt allri losun frá úrgangi á Íslandi. Í dag eru til umhverf­is­vænni stað­göngu­kostir sem ættu í flestum til­fellum að geta komið í stað kerfa sem krefj­ast notk­unar F-gasa.

Ísak Sigurjón Bragason, sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun, segir að hingað til hafi engin mál um smygl á F-gösum hafi komið upp á Íslandi svo stað­fest sé. Það sé þó ekki hægt að full­yrða með vissu að smygl eigi sér ekki stað. Hann segir að hið umfangs­mikla smygl inn í Evrópu þrí­fist að hluta til á for­sendum þess að ekki er athugað við hvern flutn­ing milli landa hvort við­kom­andi send­ing eigi sér sam­svörun í evr­ópsku kvót­unum. Hér á landi hafi verið reynt að koma í veg fyrir smygl með því að gera kröfu um að inn­flutn­ings­heim­ildir séu stað­reyndar áður en send­ingar eru afgreiddar úr tolli.

„Í því njótum við þess ef til vill líka að vera eyja. Það er hins vegar til að mynda hægt að gera sér í hug­ar­lund að smygl gæti átt sér stað milli skipa úti á rúm­sjó fjarri eft­ir­lits­yf­ir­völdum. Við höfum hins vegar ekki séð nein sönn­un­ar­gögn þess að slíkt eigi sér stað,“ segir Ísak.

Smyglarar beita ýmsum brögðum til að smygla HFC-efnum milli landa.
Smygl­arar beita ýmsum brögðum til að smygla HFC-efnum milli landa.

Ísak bendir á að Ísland sé ekki hluti af evr­ópska kvóta­kerf­inu heldur hafi verið sett á fót kvóta­kerfi hér á landi sem byggir á ákvæðum Montreal-bók­un­ar­innar. Hér á landi fer eft­ir­litið með F-gösum fram þannig að inn­flutn­ingur er vaktaður af Umhverf­is­stofnun með full­tingi Toll­stjóra. Fyrir hverja send­ingu þurfa inn­flytj­endur að fá stað­fest­ingu Umhverf­is­stofn­unar á að það magn vetn­is­flú­or­kolefna sem þeir hyggj­ast flytja inn rúmist innan þeirra inn­flutn­ings­heim­ilda sem þeim hefur verið úthlutað fyrir árið, áður en hún fæst afgreidd úr tolli.

Að sögn Ísaks er eft­ir­litið á Íslandi ólíkt því sem ger­ist í mörgum öðrum löndum Evrópu þar sem ekki er kannað hvort heim­ildir liggi fyrir inn­flutn­ingi áður en send­ingum er hleypt í gegn. Hann bætir við að stundum séu gerðar handa­hófs­kenndar skoð­anir á send­ingum hér á landi til að sann­reyna að inni­haldið sé í sam­ræmi við gögnin sem þeim fylgja.

Ísak bendir á að ef ein­hver hefur upp­lýs­ingar um eitt­hvað mis­jafnt varð­andi við­skipti með kæli­m­iðla á Íslandi er hægt að senda Umhverf­is­stofnun ábend­ingu í gegnum vef­inn. Einnig sé hægt að senda nafn­lausa ábend­ingu ef fólk kýs það heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár