„Pólitískur óstöðugleiki kemur niður á okkur öllum“

Grein­ing­ar­deild Arion banka fjallar um beinan og óbeinan kostnað af tíðum stjórn­ar­skiptum og póli­tískum óstöð­ug­leika í færslu sinni í dag.

Pólitískur óstöðugleiki hefur í för með sér bæði beinan og óbeinan kostnað fyrir samfélagið.
Póli­tískur óstöð­ug­leiki hefur í för með sér bæði beinan og óbeinan kostnað fyrir sam­fé­lagið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það kostar háar fjár­hæðir að halda Alþing­is­kosn­ingar oft. Af tíðum stjórn­ar­skiptum, kosn­ingum og óstöð­ugu stjórn­ar­fari hlýst bæði beinn og óbeinn kostn­aður fyrir þjóð­fé­lagið.

Grein­ing­ar­deild Arion banka fjallar um þetta í færslu á vef bank­ans í dag.

[links]Kostn­aður við að halda kosn­ingar í ár er tal­inn vera að minnsta kosti 350 millj­ónir króna, eða því sem nemur mán­að­ar­launum 619 rík­is­starfs­manna.

Þá er ótalið að í fjár­auka­lögum í fyrra var gert ráð fyrir 121 milljón krónum í bið­laun og annan kostnað vegna frá­far­andi þing­manna. Grein­inga­deildin bendir þó að sá kostn­aður sé eflaust lægri nú. „Þá var gert ráð fyrir 47 millj­ónum króna í ýmis útgjöld vegna bún­aðar fyrir nýja þing­menn og stand­setn­ingu á hús­næði svo eitt­hvað sé nefnt,“ segir færslu grein­ing­ar­deild­ar­innar.

Óbeinn kostnaður við óstöðugt stjórnarfar

Starfs­menn grein­ing­ar­deild­ar­innar velta einnig fyrir sér óbeinum kostn­aði við tíð stjórn­ar­skipti, kosn­ingar og óvæntar vend­ingar í heimi stjórn­mál­anna.

„Þegar mikil tíð­indi verða í sam­fé­lag­inu hóp­ast lands­menn gjarnan fyrir framan sjón­varps­skjái, end­ur­hlaða frétta­síður í gríð og erg, skegg­ræða lands­málin við vinnu­fé­laga o.s.frv,“ segir á vef Arion banka.

[adspot]

„Það er þó hugs­an­legt að skert athygli vinn­andi fólks vegna stórra tíð­inda, umfram það sem góðu hófi gegnir, feli í sér tap­aða fram­leiðslu fyrir hag­kerfið. Hversu mikið treystum við okkur ekki til að full­yrða nokkuð um en til þess að hægt sé að gera sér í hug­ar­lund um hver áhrifin eru höfum við áætlað tap þjóð­ar­bús­ins miðað við með­al­laun ann­ars vegar og verga lands­fram­leiðslu hins vegar að gefnu vinnu­tapi hvers vinn­andi manns á Íslandi. Ljóst er að jafn­vel þó með­al­starfs­maður tapi athygl­inni í korter hleypur kostn­að­ur­inn á hund­ruðum millj­óna króna.“

Póli­tískur óstöð­ug­leiki er dýr­keyptur, ef miðað er við hag­rænar sam­an­burð­ar­rann­sóknir á þessu sviði. Skortur á stefnu og stöð­ug­leika fælir til dæmis bæði inn­lenda og erlenda fjár­fest­ingu og dregur úr hag­vexti til lengri tíma. Bankinn bendir á að óvissa hafi sést glögg­lega á fjár­mála­mörk­uðum í kjöl­far stjórn­ar­slita. „Þar með getur áfram­hald­andi póli­tísk óvissa, óstöð­ug­leiki og stefnu­leysi var­an­lega rýrt lífs­kjör á Íslandi.“

Sé litið til Ítalíu, frið­sæls ríkis í Evrópu þar sem óstöðugt stjórn­mála­á­stand hefur ríkt um langt skeið, kemur í ljós að tíð stjórn­ar­skipti þar hafa orðið á sama tíma og hag­kerfið hefur staðið í stað.

„Að hve miklu leyti óstöð­ug­leiki í stjórn­málum er þar söku­dólg­ur­inn skal ekki segja, en það er nokkuð ljóst að óstöðugt stjórn­ar­far hefur ekki hjálpað efna­hags­líf­inu á Ítalíu. Líklegt er að sama muni eiga við hér á landi ef þró­unin síð­ustu miss­eri er það sem koma skal.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár