Vilja setja á fót vefsíðu um umhverfisáhrif framleiðslu og neyslu textíls

Kyn og neysla, nýtt jafn­rétt­is­verk­efni á vegum rík­is­stjórn­ar­innar, á að vekja athygli á umhverfis- og félags­legum áhrifum tísku- og textíl­iðn­að­ar­ins og valdi neyt­enda til að stuðla að mann­sæm­andi og umhverf­is­vænni fram­leiðslu.

For­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fram­kvæmda­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum fyrir árin 2020 til 2023. Þar má finna verk­efnið „kyn og neysla“ sem felst í vit­und­ar­vakn­ingu um umhverfis- og félags­leg áhrif tísku- og textíl­iðn­að­ar­ins. Á meðal aðgerða í því verk­efni er að aflað verður gögnum um fram­leiðslu og neyslu textíls og þau gögn notuð í fræðslu. Auk þess verður sett upp vef­síða þar sem finna má upp­lýs­ingar fyrir almenn­ing og fyr­ir­tæki um umhverfis- og kynja­á­hrif textíl­fram­leiðslu og textíl­neyslu.

Vald neytenda til að stuðla að mannsæmandi og umhverfisvænni framleiðsluháttum

Jafn­rétti er lyk­ilá­hersla stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og í fram­kvæmda­á­ætlun for­sæt­is­ráð­herra í jafn­rétt­is­málum eru kynnt verk­efni sem eiga að end­ur­spegla mark­mið stjórn­valda á sviði jafn­rétt­is­mála. Lagt er áhersla á að öll ráðu­neytin hafi hlut­verki að gegna við fram­kvæmd áætl­un­ar­innar. Fram­kvæmda­á­ætl­unin hefur nú verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en í henni má á finna 24 verk­efni sem á að fram­kvæma á árunum 2020 til 2023.

Eitt af þeim verk­efnum er verk­efnið kyn og neysla sem er á ábyrgð umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Verk­efnið er vit­und­ar­vakn­ing um umhverfis- og félags­leg áhrif tísku- og textíl­iðn­að­ar­ins og vald neyt­enda og þá sér­stak­lega kvenna til að stuðla að mann­sæm­andi og umhverf­is­vænni fram­leiðslu­háttum.

Umhverfisfótspor tísku- og textíliðnaðarins er stórt

[links]Í grein­ar­gerð áætl­un­ar­innar segir að tísku- og textíl­iðn­að­ur­inn sé meðal umfangs­mestu iðn­að­ar­fram­leiðslu í heimi. Umhverf­is­á­hrif iðn­að­ar­ins eru mjög nei­kvæð og er þar bæði um að ræða vatns­freka fram­leiðslu og notkun hættu­legra efna sem víða er skilað óhreins­uðu út í nærum­hverfið með til­heyr­andi umhverf­is­spjöllum og nei­kvæðum áhrifum á lífs­gæði íbúa svæð­anna.

Auk þess eru lofts­lags­á­hrif fram­leiðsl­unnar mikil. Neysla á fatn­aði hefur auk­ist um 60 pró­sent frá árinu 2000 og nú er heild­ar­hluti los­unar koltví­sýr­ings frá fram­leiðslu tísku­iðn­að­ar­ins talin vera um 5 pró­sent á heims­vísu, sem má að stórum hluta rekja til brennslu kola við orku­fram­leiðslu í verk­smiðj­unum. [adspot]

Enn­fremur segir í grein­ar­gerð­inni að líf­tími hverrar flíkur hafi styst á síð­ustu árum sem auki sóun, sem er við­var­andi og vax­andi vanda­mál í heim­inum. Því hafi iðn­að­ur­inn í heild nei­kvæð áhrif á vist­kerfi jarðar sem sé keðju­verk­andi og hafi ekki síst alvar­leg áhrif á efna- og valda­minni hópa í sam­fé­lag­inu.

Auk umhverf­is­á­hrif­anna býr iðn­að­ur­inn við það vanda­mál að stór­fyr­ir­tæki í tísku­iðn­aði bjóða út fram­leiðsl­una til lægst­bjóð­andi sem nýti sér aðstæður á fram­leiðslu­svæðum þar sem verka­fólk í fata­verk­smiðjum er með allt niður í 2 doll­ara í dag­laun. Þannig byggi iðn­að­ur­inn til­veru sína á ódýru vinnu­afli, sem er að stærstum hluta konur á aldr­inum 15 til 22 ára. 

Hver Íslendingur kaupir 17 kíló af fötum á hverju ári

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að konur séu stærsti hópur neyt­enda tísku­fatn­aðar sem spilar saman við síbreyti­legar kröfur um útlit og ímynd. Því hafi konur, sem helstu neyt­endur tísku­fatn­aðar, bæði gríð­ar­leg áhrif á eft­ir­spurn og ríkj­andi fram­leiðslu- og við­skipta­hætti sem end­ur­spegl­ast í kjörum og aðbún­aði verka­kvenna, nátt­úru­auð­linda­nýt­ingu og áhrifum á umhverfið á fram­leiðslu­stað.

Íslend­ingar eru engir eft­ir­bátar ann­arra þjóða þegar kemur að fata­kaupum en sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun kaupir hver Íslend­ingur sautján kíló af nýjum fötum á ári hverju. Það er þrisvar sinnum meira en meðal jarð­ar­búi. Samhliða þessum gíf­ur­legu fata­kaupum hefur á síð­ustu árum orðið mikil aukn­ing í fata­sóun hér landi en árið 2016 hentu Íslend­ingar rúmum 5700 tonnum af textíl og skóm. Það er nærri því tvö­falt meira magn en fjórum árum áður og að með­al­tali 15 kíló á hvern íbúa árið 2016.

Meiri­hluti þess úrgangs fer í urðun en auk þess voru yfir 3000 tonn send frá Íslandi til ann­arra landa í end­ur­vinnslu árið 2018. Í úrgangs­stefnu umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir næstu sex ár kemur fram að stjórn­völd stefna að því að draga úr fata­sóun á hvern íbúa um fimm kíló.

Vilja undirstrika mikilvægi endurnotkunar og endurvinnslu

Í fram­kvæmd­ar­á­ætl­un­inni segir að verk­efnið kyn og neysla snúi að því að fræða og vekja neyt­endur, sér í lagi konur, til umhugs­unar um áhrif eigin neyslu­hegð­unar á stöðu og rétt­indi kvenna á fram­leiðslu­stöðum og lífs­af­komu þeirra með hlið­sjón af áhrifum fram­leiðsl­unnar á nátt­úru­auð­lindir og umhverfið. Jafn­framt gengur verk­efnið út á að und­ir­strika mik­il­vægi end­ur­notk­unar og end­ur­vinnslu. 

Verk­efnið gengur út á þrjár aðgerðir sem fram­kvæma á á árunum 2020 til 2023. Það verður unnið í sam­starfi við meðal ann­ars Umhverf­is­stofnun, Neyt­enda­stofu, Rauða kross­inn, fyr­ir­tækið Aftur og Lista­há­skóla Íslands. Fyrsta aðgerðin er að afla gögnum um fram­leiðslu, inn­kaup, notkun og neyslu textíls. Fram­setn­ing þeirra gagna verður síðan útfærð þannig að nota megi þau í fræðslu­til­gangi.

Þriðja aðgerðin felst í því að sett verður upp vef­síða þar sem finna má upp­lýs­ingar, fyrir almenn­ing og fyr­ir­tæki, um umhverfis- og kynja­á­hrif fram­leiðslu og neyslu textíls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár