CCP sagðist endurskoða fjölda starfa á Íslandi vegna lagabreytinga

Í band­orms­frum­varpi sem komið er fram á þingi eru lagðar til breyt­ingar sem snerta styrki til öfl­ug­ustu fyr­ir­tækj­anna í hug­verka­iðn­að­inum hér­lendis. CCP og fleiri fyr­ir­tæki risu upp á aft­ur­lapp­irnar þegar frum­varpið var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á dög­unum og fer frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra ögn mild­ari höndum um stærstu fyr­ir­tækin í brans­anum en frum­varps­drögin gerðu.

CCP
CCP Hilmar Veigar Pét­urs­son er for­stjóri CCP, sem er með umfangs­mikla starf­semi í Reykja­vík þrátt fyrir að hafa verið selt til Suður-Kóreu árið 2018. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­lagðar til­lögur að laga­breyt­ingum, sem snerta end­ur­greiðslur á kostn­aði fyr­ir­tækja í tengslum við rann­sóknir og þróun, hafa þegar leitt til þess að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið CCP er nú með það til end­ur­skoð­unar hvort vinna við þróun nýs tölvu­leiks fyr­ir­tæk­is­ins, Eve Frontier, fari áfram fram hér á landi.

Þetta kom fram í umsögn CCP við frum­varps­drög fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svo­kall­aðan band­orm um breyt­ingar á ýmsum lögum sem áætlað er að klára með hraði fyrir þing­lok og kosn­ingar og hefur verið lagður, án mik­illa breyt­inga, fram á þingi. 

Í umsögn CCP sem barst inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 20. októ­ber segir að þessi eini tölvu­leikur fyr­ir­tæk­is­ins hafi þegar komið með erlenda fjár­fest­ingu upp á 5,6 millj­arða til lands­ins og skapað um 50 ný stöðu­gildi hér­lendis og gefið er í skyn að ef breyt­ing­arnar raun­ger­ist færi CCP störf í þró­un­ar­starf­semi sinni frá land­inu. 

Töldu frumvarpið afsprengi glundroða í stjórnmálum

„Breyt­ingar sem lagðar …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár