Hetja Rússlands með heiðurssæti hjá Hringborði Norðurslóða

Rúss­neskur þing­maður, sem verið hefur sér­stakur ráð­gjafi Vla­dimírs Pútíns varð­andi alþjóða­sam­starf í norð­ur­slóða­málum, er í heið­urs­stjórn sam­tak­anna Hring­borð Norð­ur­slóða – Arctic Circle, sem Ólafur Ragnar Grímsson kom á kopp­inn árið 2013.

Vladimír Pútín Rússlands forseti ásamt Artúri Chilingarov, landkönnuði, þingmanni og heiðursstjórnarmanni í Hringborði Norðurslóða.
Vladimír Pútín Rúss­lands for­seti ásamt Artúri Chilingarov, land­könn­uði, þing­manni og heið­urs­stjórn­ar­manni í Hring­borði Norð­ur­slóða. Mynd: EPA

Artur Nikolayevich Chilingarov heitir maður sem situr á þingi í Rúss­landi fyrir Sameinað Rússland, flokk Vla­dimírs Pútíns for­seta. Hann hefur líka verið sér­stakur ráð­gjafi for­set­ans varð­andi alþjóða­sam­starf á norð­ur­slóðum.

Sami maður hefur einnig frá árinu 2013 átt sæti í sér­stakri heið­urs­stjórn Hring­borðs Norð­ur­slóða – Arctic Circle, sam­taka sem stofnuð voru af Ólafi Ragnari Gríms­syni fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Samtökin hafa staðið fyrir sam­nefndri ráð­stefnu í Hörpu og öðrum við­burðum um mál­efni norð­ur­slóða á und­an­förnum árum.

Setti rússneskt flagg á hafsbotninn á Norðurpólnum

Chilingarov hefur verið framá­maður í norð­ur­slóða­málum í Rúss­landi um langt skeið. Hann fædd­ist í Lenín­grad árið 1939, nam bæði verk­fræði og haf­fræði og var á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum stjórn­andi rann­sókna­stöðva Sov­ét­ríkj­anna á norð­ur­slóðum.

Hann hefur staðið í stafni fyrir fjölda vís­inda­leið­angra Rússa á norð­ur­slóðum og Suð­ur­skauts­land­inu og var meðal ann­ars lyk­il­maður í frægum leið­angri í upp­hafi árs 2008 – sem olli nokkrum titr­ingi í alþjóða­póli­tík – þar sem Chilingarov og félagar fóru niður á sjáv­ar­botn­inn beint undir Norð­ur­pólnum á litlum kaf­bátum og settu þar niður rúss­neskan fána.

„Norð­ur­skautið er rúss­neskt,“ hafði BBC eftir Chilingarov þegar þeim leið­angri lauk, en Rússar höfðu þá þegar gert til­kall til stórs hluta Norður-Íshafs­ins og þar á meðal sjálfs Norð­ur­póls­ins, á grund­velli þess að Lomonosov-neð­an­sjáv­ar­hrygg­ur­inn sé í reynd fram­leng­ing á rúss­neska meg­in­land­inu og liggi út frá því.

Þess má geta að í fyrra útvíkk­uðu Rússar form­legar kröfur sínar til haf­svæðis á Norð­ur­slóðum enn frekar og að auk Rúss­lands gera bæði Danir og Kanada­menn til til haf­svæð­is­ins í kringum Norð­ur­pól­inn.

Hetja bæði Rússlands og Sovétríkjanna

Eftir leið­ang­ur­inn árið 2008 var Chilingarov sæmdur æðsta opin­bera heiðri Rúss­lands sem er það að vera útnefndur Hetja Rúss­lands. Með því bætti enn einni orð­unni í safnið, en á tímum Sov­ét­ríkj­anna var hann einnig útnefndur Hetja Sov­ét­ríkj­anna og hlaut Leníns­orð­una, auk margra ann­arra verð­launa.

Svo er það póli­tíkin. Chilingarov tók fyrst sæti á Dúmunni, neðri deild rúss­neska þings­ins, árið 1993 fyrir Sameinað Rússland. Þar sat hann óslitið fram til árs­ins 2011 og gegndi meðal ann­ars hlut­verki vara­for­seta neðri deild­ar­innar. Árið 2016 tók hann sæti í sam­bands­þing­inu, efri deild þings­ins, fyrir hönd Tula-hér­aðs í vest­ur­hluta lands­ins. Þar sat hann til 2014.

Hann var svo aftur kjör­inn inn á Dúmuna árið 2016 og hefur setið þar óslitið síðan og hefur auk þess verið sér­stakur ráð­gjafi Vla­dimírs Pútíns um alþjóða­sam­starf á norð­ur­slóðum og Suð­ur­skauts­land­inu.

Fjórir í heiðursstjórninni

Sem áður segir er Chilingarov svo í heið­urs­stjórn Hring­borðs Norð­ur­slóða – Arctic Circle, sam­tak­anna sem Ólafur Ragnar Grímsson þáver­andi for­seti Íslands hefur leitt frá árinu 2013. Hring­borðið hefur staðið fyrir árlegum ráð­stefnum í Hörpu um mál­efni norð­ur­slóða síðan þá, auk fleiri við­burða. Ólafur Ragnar er enn í dag stjórn­ar­for­maður Hring­borðs Norð­ur­slóða.

[adspot]

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá skrif­stofu Hring­borðs­ins var heið­urs­stjórnin mynduð strax árið 2013. Meðlimir hennar eru ekki sagðir gegna neinu sér­stöku hlut­verki, öðru en því að hafa stutt við starf Hring­borðs­ins í upp­hafi og koma frá land­fræði­lega ólíkum stöðum.

Auk Chilingarov sitja í heið­urs­stjórn­inni þau Albert II prins af Mónakó, Lisa Murkowski öld­unga­deild­ar­þing­maður Repúblikana­flokks­ins í Alaska og Sultan Ahmed Al Jaber, iðn­að­ar­ráð­herra Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna og for­stjóri olíu­fé­lags­ins í Abú Dabí.

Kjarninn leit­aði svara við því hvort seta Chilingarov í heið­urs­stjórn­inni væri til ein­hverrar end­ur­skoð­unar í ljósi þess að hann væri sitj­andi þing­maður flokks­ins sem flestu ræður í Rúss­landi.

„Chilingarov varð heið­urs­með­limur vegna starfa sinna fyrir The Russian Geographical Society sem var stofnað árið 1845. Skipan heið­urs­stjórnar er ekki innan verk­sviðs skrif­stofu Hring­borðs­ins. Næstu við­burðir eru ekki fyrr en í haust og mun stjórn Hring­borðs­ins ekki funda fyrr en seinna á árinu,“ segir í svari sem fékkst frá skrif­stofu Hring­borðs­ins. Chilingarov er síð­ast sagður hafa komið á ráð­stefnu Hring­borðs­ins fyrir sjö árum síðan.

Staðan hvað þátttöku Rússa varðar metin fyrir næstu viðburði

Alþjóð­legt sam­starf í norð­ur­slóða­málum er nú í nokkru upp­námi vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu, en í upp­hafi þessa mán­aðar sendu aðild­ar­ríki Norð­ur­skauts­ráðs­ins frá sér yfir­lýs­ingu þar sem inn­rásin var for­dæmd. Tíma­bundið hlé hefur verið gert á öllum fundum ráðs­ins og und­ir­stofn­ana þess.

Auk Íslands og Rúss­lands eiga Banda­ríkin, Finnland, Kanada, Danmörk, Noregur og Svíþjóð aðild að ráð­inu. Rússar fara með for­mennsku í því um þessar mundir og tóku við henni úr hendi Íslend­inga í maí á síð­asta ári á ráð­herra­fundi sem fram fór í Reykja­vík.

Samstarf og sam­vinna um mál­efni norð­ur­slóða hefur að mestu verið óháð deilu­málum á milli ríkja á alþjóð­legum vett­vangi á und­an­förnum. Rétt eins og Norð­ur­skauts­ráðið og und­ir­stofn­anir þess hefur Hring­borð Norð­ur­slóða á und­an­förnum rúmum ára­tug orðið vett­vangur umræðu og sam­vinnu óháð alþjóð­legum deilum að öðru leyti.

Ekki er ljóst hvort það breyt­ist eitt­hvað vegna stríðs­rekst­urs Rússa, en staðan hvað þátt­töku rúss­neskra vís­inda­manna og diplómata í næstu við­burðum Hring­borðs­ins varðar verður metin í aðdrag­anda þeirra, sam­kvæmt svörum frá skrif­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norðurslóðamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár