SÞ óska eftir skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið óskar nú eftir athuga­semdum vegna skýrslu­draga um stöðu mann­rétt­inda­mála á Íslandi sem send verða Sam­ein­uðu þjóð­unum. Ráðu­neytið hefur birt drög að skýrslu á vef sínum þar sem farið er yfir stöðu mála.

Farið er yfir stöðu barna, kvenna, innflytjenda, hælisleitenda, eldra fólks og fatlaðs fólks í skýrslunni.
Farið er yfir stöðu barna, kvenna, inn­flytj­enda, hæl­is­leit­enda, eldra fólks og fatl­aðs fólks í skýrsl­unni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur sent frá sér drög að skýrslu um stöðu mann­rétt­inda­mála á Íslandi. Skýrslan verður hluti af úttekt Sam­ein­uðu þjóð­anna á stöðu mann­rétt­inda­mála í aðild­ar­ríkj­unum.

Fram kemur í skýrslu­drög­unum að í kjöl­far banka­hruns­ins 2008 hafi íslensk stjórn­völd þurft að skera mikið niður í rík­is­fjár­málum, þá sér­stak­lega í heil­brigð­is­kerf­inu, félags­lega kerf­inu og mennta­kerf­inu, þar sem þau kost­uðu mesta pen­inga. Hag­vöxtur hafi auk­ist und­an­farin ár og nú sé staða efna­hags­mála svipuð og hún var fyrir hrun. Þá hafi atvinnu­leysi farið ört minnk­andi. Verið sé að veita frekara fjár­magn í vel­ferð­ar­kerfið, meðal ann­ars í bygg­ingu nýs Land­spít­ala.

Þá segir að stjórn­ar­skrá Íslands tryggi lýð­ræði og grund­vall­ar­mann­rétt­indi eins og trú­frelsi, frið­helgi einka­lífs og tján­inga­frelsi. Farið er yfir það ferli sem hefur átt sér stað varð­andi end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og hvað þau mál séu stödd.

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands hefur starfað síðan 1994 og er hún sjálf­stæð ein­ing sem hefur það hlut­verk að stuðla að og hafa eft­ir­lit með mann­rétt­inda­málum hér­lendis.

Jafnréttismál

Fram kemur að í ár séu 40 ár liðin frá því að fyrstu jafn­rétt­islögin voru sett á Íslandi. Landið sé oft sagt í far­ar­broddi þegar kemur að jafn­rétti kynj­anna, en þrátt fyrir það er enn langt í land. Kyn­bund­inn launa­munur er enn til staðar, sem og kyn­bundið ofbeldi og annað því tengt. Reynt hefur verið að vinna bug á kynja­bil­inu með kynja­kvóta, jafn­launa­vott­unum og fleiru. Farið er yfir átak UN Women, HeforShe, sem stuðl­aði að því að virkja karl­menn í jafn­rétt­is­bar­átt­unni.

Kynþáttafordómar

Unnið hefur verið að því hér á landi að útrýma kyn­þátta­for­dómum og ras­isma. Fram kom í rann­sókn árið 2012 að 93 pró­sent inn­flytj­enda hér á landi höfðu orðið fyrir kyn­þátta­for­dómum ein­hvern tím­ann á ævinni. Hlut­fallið var komið niður í 74 pró­sent tveimur árum síðar, 2014.

Réttindi hinsegin fólks

Ísland var eitt fyrstu ríkja heims til að sam­þykkja lög um hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Þá hafa einnig verið sett lög um rétt­indi fólks sem hefur ekki kyn­gervi, það er að segja, að tryggja rétt fólks þó að það telji sig hvorki vera karl né kona, eða þá að það þurfi kyn­leið­rétt­ingu.

Innflytjendur og hælisleitendur

Fjöldi inn­flytj­enda á Íslandi hefur auk­ist tölu­vert und­an­farin ár. Í skýrslu­drög­unum segir að árið 2010 hafi 6,8 pró­sent íbúa lands­ins verið inn­flytj­endur, en árið 2015 var hlut­fallið komið upp í 10 pró­sent. Þá hefur hæl­is­leit­endum að sama skapi fjölgað gíf­ur­lega und­an­farin miss­eri, eins og hefur komið fram í fjöl­miðlum. Nýbúið er að setja ný Útlend­inga­lög sem eiga að tryggja útlend­ingum aukin mann­rétt­indi á Íslandi og auð­velda allt ferlið. Þó er enn langt í land og hefur inn­an­rík­is­ráð­herra sagt að þessi mál séu í enda­lausri end­ur­skoðun.

Ítarleg skýrsludrög

Einnig er farið yfir rétt­indi fatl­aðs fólks, eldri borg­ara, barna og kvenna í skýrslu­drög­unum. Þá eru sér­stakir kaflar um man­sal, hat­ursá­róður og pynt­ingar, og þær lausnir sem íslensk stjórn­völd hafa notað til að bregð­ast við þeirri þróun hér á landi.

Farið er yfir fang­els­is­málin og þá sér­stak­lega opnun nýja fang­els­is­ins á Hólms­heiði. Talið er að það muni létta mikið á stöð­unni. Einnig er farið yfir laga­legan rétt fólks til heil­brigð­is­þjón­ustu, mennt­unar og tján­ing­ar­frelsis.

Óskað eftir athugasemdum

Sam­ein­uðu þjóð­irnar standa reglu­lega fyrir almennri úttekt á stöðu mann­rétt­inda­mála í aðild­ar­ríkj­unum og var vinnu­hópur skip­aður til að halda utan um verk­efnið hér á landi. Í vinnu­hópnum eru full­trúar inn­an­rík­is­ráðu­neytis, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis, utan­rík­is­ráðu­neytis og vel­ferð­ar­ráðu­neytis. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið stýrir verk­efn­inu og ber ábyrgð á vinnslu þess en skýrslu Íslands á að skila eigi síðar en 1. ágúst næst­kom­andi. Skýrslan má ekki vera lengri en 10.700 orð, er fram kemur á vef ráðu­neyt­is­ins. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið óskar nú eftir því að almenn­ingur og frjáls félaga­sam­tök sendi inn athuga­semdir vegna skýrslu­drag­anna og að þær ber­ist ekki síðar en 10. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár