Lárus Welding hafnar alfarið málflutningi ákæruvaldsins - Ítarleg greinargerð birt

Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, er einn þeirra sem ákærður er fyrir þátt sinn í Stím-mál­inu svo­kall­aða, en aðal­með­ferð í því hófst í dag.

Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, hafnar því alfarið að hafa brotið gegn lögum eins og ákæra í hinu svo­kall­aða Stím-máli gerir ráð fyrir, en aðal­með­ferð hófst í mál­inu í dag. Í ítar­legri grein­ar­gerð fyrir hans hönd, sem Óttar Pálsson hrl. lög­maður hans tók saman, er mála­til­bún­aður sér­staks sak­sókn­ara gagn­rýndur harð­lega.

„Sam­an­tekið þá er rangt að ákærði hafi staðið að þeirri lán­veit­ingu sem ákært er vegna á allt öðrum for­sendum en sam­þykkt hafi verið í áhættu­nefnd bank­ans. Í ákæru er bein­línis lagt til grund­vallar að áhættu­nefnd bank­ans hafi tekið ákvörðun um að veita lánið. Ekki hefur verið gert lík­legt að lán­veit­ingin hafi falið í sér brot gegn ákvæðum í lána­reglum Glitnis um trygg­ingar. Nettó fjár­streymi til Glitnis vegna Stím-við­skipt­anna var jákvætt um a,m,k. 2.350 millj­ónir króna. Ákvörðun um að lána Stím var ótví­rætt til þess fallin að draga úr fjár­hags­legri áhættu bank­ans og bæta eig­in­fjár­stöðu hans. Ákæru­valdið hefur ekki með neinu móti gert senni­legt að ákvörð­unin, sem háð var við­skipta­legu mati ákærða og ann­arra nefnd­ar­manna í áhættu­nefnd, hafi verið ófor­svar­an­leg,“ segir meðal ann­ars í sam­an­tekt­ar­orðum í grein­ar­gerð­inni.

Tugmilljarða lán til Stím

Málið snýst ann­ars vegar um tug­millj­arða króna lán­veit­ingar til félags­ins Stím ehf., í nóv­em­ber 2007 og jan­úar 2008. Mál ákæru­valds­ins byggir meðal ann­ars á því, að Stím hafi verið búið til af starfs­mönnum Glitnis í þeim til­gangi að kaupa hluta­bréf í bank­anum sjálfum og stærsta eig­anda hans, FL Group, sem bank­inn sat síðan uppi með á veltu­bók sinni. Enginn mark­aður var fyrir bréfin á því verði sem Stím greiddi fyrir þau, sam­kvæmt mála­til­bún­aði ákæru­valds­ins.

Í mál­inu eru ákærðir, auk Lárusar, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis, og Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Saga Capital. Þeir neita allir alfarið sök, en Lárus og Jóhannes eru ákærðir fyrir umboðs­svik og Þor­valdur fyrir hlut­deild í þeim. Ákæruna í mál­inu má lesa í heild sinni hér.

Grundvallarmisskilningur

Óttar segir í grein­ar­gerð sinni að sér­stakur sak­sókn­ari mis­skilji aðstæð­urnar og ástæð­urnar að baki við­skiptum Stím. Þá verði enn fremur að horfa til þess, að aðkoma Lárusar í mál­inu, hafi öðru fremur verið á því byggð að draga úr fjár­hags­legri áhættu Glitnis, að því er segir í grein­ar­gerð­inni. „Samkvæmt þessu [Því sem að framan er rakið í grein­ar­gerð] hníga aug­ljós rök að því að sú leið sem farin var, þ,e. að draga úr fjár­hags­legri áhættu sem bréf­unum fylgdi með því að láta aðra um að fjár­magna eign­ar­haldið að hluta, hafi, á þeim tíma­punkti sem ákvörð­unin var tekin, verið væn­legri til að draga úr fjár­hags­legri áhættu bank­ans heldur en að selja bréfin á mark­aði með tapi. Því er það ekki aðeins svo að ákærði, ásamt öðrum, hafi umfram laga­skyldu dregið úr tjár­hags­legri áhættu Glitnis með Stím við­skipt­unum, heldur hafi hann einnig valið þann kost af tveimur tækum, sem betur var til þess fall­inn að tryggja hags­muni bank­ans,“ segir í grein­ar­gerð Óttars, sem hér er birt í heild sinni.

Allir ákærðu mættu í dóm­sal í morgun, þegar aðal­með­ferð hófst, en gert er ráð fyrir að hún standi yfir alla þessa viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár