Drög að stjórnarsáttmála ríkisstjórnar fjórflokksins lágu fyrir

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar segir að leyni­legar við­ræður hafi átt sér stað milli jóla og nýárs um myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar. Um var að ræða háleyni­legt verk­efni.

Kristján Guy Burgess var framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili. Grein hans birtist í vorhefti Skírnis.
Kristján Guy Burgess var fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta kjör­tíma­bili. Grein hans birt­ist í vor­hefti Skírnis.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn voru búin að gera drög að stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar fjór­flokks­ins um síð­ustu ára­mót.

Formaður Vinstri grænna var hörð á því að fara ekki með sinn flokk einan í sam­starf við þáver­andi stjórn­ar­flokka, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, og því var lagt hart að Sam­fylk­ing­unni um að svara því til hvort hún vildi vera með. Um var að reyna háleyni­legt verk­efni og í við­ræðum um sam­starfið var tekið lof­orð um að ein­ungis einum öðrum en for­mönnum flokk­anna fjög­urra yrði blandað í málið í hverjum flokki.

2. jan­úar síð­ast­lið­inn lá fyrir texti sem unnin hafði verið yfir hátíð­irnar um efn­is­at­riði sam­starfs Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar í rík­is­stjórn og mik­ill þrýst­ingur var settur á Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, að vera með í sam­starf­inu. Í text­anum hafi hins vegar verið ákaf­lega fátt sem Sam­fylk­ingin gat sætt sig við og því hafi flokk­ur­inn metið það sem svo að hann hafi ekki viljað standa í vegi fyrir öðrum við­ræðum um rík­is­stjórn­ar­myndun – milli Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks – sem hefðu getað leitt til frek­ari umbóta í sjáv­ar­út­vegi og kosn­inga um Evr­ópu­mál, hvor tveggja mál sem ekki voru í boði í fjór­flokka­stjórn­inni. Þess vegna hafi voru skila­boð send um að Sam­fylk­ingin væri til við­ræðu ef leysa þyrfti stjórn­ar­kreppu en að bíða þyrfti átekta eftir því hvert sam­tal Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar myndi leiða.

Þetta kemur fram í grein sem Kristján Guy Burgess, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur skrifað um stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar í vetur og birt var í nýút­komnu vor­hefti Skírnis.

Engin skýr ríkisstjórn í kortunum

Það fór varla fram hjá neinum að erf­ið­lega gekk að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar í októ­ber í fyrra. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem nú situr við völd, tók ekki við fyrr en 11. jan­úar 2017. Sú rík­is­stjórn sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð og er með minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi. Hún glímir líka við for­dæma­lausar óvin­sældir ef miðað er við hvað hún hefur setið stutt. Nýleg könnun MMR sýnir að ein­ungis 31,4 pró­sent þjóð­ar­innar styður hana. Rík­is­stjórnin ber því öll merki þess að vera rík­is­stjórn sem var ekki óska­stjórn neins.

Flokk­arnir þrír höfðu enda reynt tví­vegis áður að ná saman í við­ræðum áður en það tókst. Milli þeirra við­ræðna fóru líka tví­vegis fram form­legar við­ræður milli fimm flokka – allra nema Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks – um myndun rík­is­stjórnar. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Bjarni Bene­dikts­son hitt­ust þess utan á fundum til að sjá hvort flokkar þeirra, sem sitja sitt hvoru megin á hinum póli­tíska ás en eiga íhalds­semi sam­eig­in­lega, gætu náð saman um meiri­hluta­sam­starf. Svo reynd­ist ekki vera.

Fyrir utan hinar form­legu við­ræður áttu sér stað allskyns óform­legar við­ræður. Staðan var enda flókin. Sjö flokkar á þingi, kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir (Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn), sem vanir eru að stjórnar Íslandi, fengu ein­ungis um 40 pró­sent atkvæða og Sam­fylk­ingin var við það að þurrkast út í kosn­ing­unum. Þrír flokkar sem stofn­aðir voru eftir árið 2012 höfðu náð 21 þing­sæti, eða þriðj­ungi. Ljóst var að engin flokkur gat myndað draumarík­is­stjórn sína. Og ef það ætti yfir höfuð að takast að mynda meiri­hluta­stjórn yrði að gera ansi miklar mála­miðl­anir í lyk­il­málum.

Framsókn byrj­aði á Þor­láks­messu

Það áttu sér því stað ýmis­konar óform­legar þreif­ingar milli for­ystu­manna flokk­anna sem voru þess eðlis að þeir vildu ekki að þær spyrð­ust mikið út. Um var að ræða við­ræður sem gætu orðið afar óvin­sælar í bak­land­inu og því ríkti um þær mikil leynd.

Bjarni Bene­dikts­son fékk form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð til að mynda þá rík­is­stjórn sem nú situr að völdum skömmu fyrir síð­ustu ára­mót. Í ljósi þess að flokk­arnir þrír sem að þeim við­ræðum stóðu höfðu reynt tví­vegis áður var gengið út frá því að nú hlyti málið að standa þannig að saman myndi nást. Það væri bein­línis ábyrgð­ar­laust að sækj­ast eftir form­legu stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði ef svo væri ekki.

Það vakti því mikla athygli þegar Morg­un­blaðið birti for­síðu­frétt 2. jan­úar um að for­ystu­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks hefðu átt sam­töl dag­anna á undan um mögu­lega stjórn­ar­myndun með Sjálf­stæð­is­flokki.

Í grein Krist­jáns Guy segir reyndar í grein sinni í Skírni að sam­töl milli flokka, sem ekki urðu að form­legum við­ræðum, hafi byrjað á ný á Þor­láks­messu 2016. Þá hafi Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, byrjað að kalla fólk til sín. Hann hafi ótt­ast að ný myndu frænd­urnir Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé loks ná saman.

Þrýst á Samfylkinguna

Kristján Guy segir að Sigurður Ingi hafi viljað kanna hvort Vinstri græn, Framsókn og Sam­fylk­ingin gætu staðið að sam­eig­in­legu til­boði til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Þetta var háleyni­legt prójekt og þegar þau ræddu saman for­menn­irnir milli jóla og nýárs og byrj­uðu að vinna með texta, var tekið lof­orð um að ein­ungis einum öðrum yrði blandað í málið í hverjum flokki. Þess vegna kom það flestum á óvart þegar fréttir birt­ust af mál­inu 2. jan­úar í Morg­un­blað­inu.“

Þrátt fyrir að Bjarni hafi verið kom­inn með form­legt stjórn­mynd­ar­um­boð til að mynda stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð á þessum tíma hafi hann fengið að vita um hvað væri verið að ræða milli Fram­sóknar, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar milli jóla og nýárs, en vildi ekki blanda sér í þær við­ræður meðan hann væri enn að ræða við hina. Það hafi þó ekki breytt því, að sögn Krist­jáns Guy, að mála­leitan um fjög­urra flokka „þjóð­stjórn” myndi freista margra Sjálf­stæð­is­manna frekar en að vinna með Benedikt Jóhann­essyni og Viðreisn.

Í grein Krist­jáns Guy segir svo: „Þegar dró að úrslita­stundu á fyrsta vinnu­degi nýs árs var tím­inn að hlaupa frá þeim sem vildu nýta tæki­færið og freista Bjarna Bene­dikts­sonar. Honum hafði þótt sam­vinna við Framsókn og Vinstri græn afar ákjós­an­legur kostur þessa tvo mán­uði og nú gæti hann verið á borð­inu. En Katrín var enn hörð á því að Vinstri græn færu ekki ein til sam­starfs við stjórn­ar­flokk­ana sem höfðu hrökkl­ast frá völdum og þess vegna þyrfti Sam­fylk­ingin að svara því hvort hún væri með.

Mikill þrýst­ingur var lagður á for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar úr her­búðum VG að vera með með þeim orðum að ef þetta gengi ekki upp yrði til hægri­s­inn­að­asta stjórn Íslands­sög­unnar sem myndi engu skeyta um hags­muni lands­byggð­ar­innar. Hvað sem Loga fannst um þá við­vörun, þá leit hann ekki svo á að það væri á hans ábyrgð. Ef Vinstri græn vildu mynda rík­is­stjórn, þyrfti ekki á því að halda að Sam­fylk­ingin væri með, til þess væri nægur meiri­hluti á þingi.

En þarna 2. jan­úar lá fyrir texti sem unn­inn hafði verið yfir hátíð­irnar um efn­is­at­riði sam­starfs fjög­urra flokka í stjórn en í honum var ákaf­lega fátt sem Sam­fylk­ingin gat haldið sér í. Ekkert var nægi­lega hald­fast um umbætur í sjáv­ar­út­vegi, Evr­ópu­málin óljós og ekk­ert í gadda slegið um fjár­fest­ingar í heil­brigð­is­málum eða upp­bygg­ingu á hús­næð­is­mark­aði. Það hefði eflaust verið hægt að vinna text­ann betur, en það leit ekki út fyrir að efn­is­at­riðin sem Sam­fylk­ingin hafði lagt inn í umræð­urnar, fengju þar mikið pláss.“

Segir Viðreisn og Bjarta framtíð hafa lagt niður kröfur sínar

Það varð því mat Sam­fylk­ing­ar­innar að vilja ekki „standa að því að skemma fyrir við­ræðum sem útlit var þá fyrir að gæti leitt til umbóta í sjáv­ar­út­vegi og kosn­inga um Evrópu, nokkuð sem Viðreisn var stofnuð um og Björt fram­tíð hafði einnig haldið hátt á lofti alla sína tíð. Skilaboð voru gefin um að Sam­fylk­ingin yrði til við­ræðu ef leysa þyrfti stjórn­ar­kreppu en bíða yrði átekta eftir því hvert sam­tal Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar myndi leiða.“

Kristján Guy segir síðan að úr hafi orðið að Viðreisn og Björt fram­tíð hafi lagt niður allar kröfur sínar um raun­veru­legar umbætur í sjáv­ar­út­vegs­málum í skiptum fyrir aðild að rík­is­stjórn. Til við­bótar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn unnið fulln­að­ar­sigur í Evr­ópu­málum. „Flokk­arnir sem höfðu með taktískri snilld haldið sér inni í öllum við­ræðum, gátu ekki tryggt sín helstu bar­áttu­mál þegar á hólm­inn var komið. Þau van­mátu eigin samn­ings­stöðu og ofmátu getu lands­byggð­ar­arms VG til að mynda stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn[...]Eins manns meiri­hlut­inn sem þótti alltof tæpur lengst af við­ræð­unum og hafði leitt til stjórn­ar­skipta árin 1991, 1995 og 2007, var orð­inn í lagi. Stjórnin sem ekki var á vetur setj­andi, var orðin að veru­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár