Búið að fella niður eða semja um öll skaðabótamál Glitnis

Íslenska ríkið átti að fá eignir sem Glitnir inn­heimti í íslenskum krónum. Þar á meðal var mögu­legur ávinn­ingur af skaða­bóta­málum sem höfðuð voru gegn m.a. fyrr­ver­andi eig­endum, stjórn­endum og við­skipta­vinum. Þau hafa nú verið felld niður eða samið um þau

Glitnir var einn þeirra þriggja íslensku banka sem féllu með látum haustið 2008. Fjölmörg skaðabótamál voru höfðuð vegna ákvarðana sem teknar voru innan bankans í aðdraganda hrunsins. Þeim er nú öllum lokið og verða ekki til umfjöllunar í dómsölum.
Glitnir var einn þeirra þriggja íslensku banka sem féllu með látum haustið 2008. Fjölmörg skaða­bóta­mál voru höfðuð vegna ákvarð­ana sem teknar voru innan bank­ans í aðdrag­anda hruns­ins. Þeim er nú öllum lokið og verða ekki til umfjöll­unar í dóm­sölum. Mynd: Bára Huld Beck

Leynd hvílir yfir því hvernig samið var um skaða­bóta­mál sem Glitnir hafði höfðað eða ætl­aði sér að höfða. Kröfur í mál­unum hlupu á millj­örðum króna og voru flestar í íslenskum krónum. Ávinn­ingur af mál­unum, yrði hann nokkur, hefði runnið til íslenska rík­is­ins.

Kjarninn hefur fengið stað­fest að málin hafi verið felld niður, eða samið um þau, án þess að þau skili nokkrum ávinn­ingi.

Neita að upplýsa um niðurstöðuna

Þegar nauða­samn­ingur Glitnis var stað­festur í des­em­ber 2015 voru nokkur skaða­bóta­mál sem bank­inn hafði annað hvort höfðað eða verið með í vinnslu óleyst. Sum þeirra mála snér­ust um kröfur sem greið­ast áttu út í íslenskum krónum og ávinn­ingur af þeim, ef ein­hver yrði, átti því að renna til íslenska rík­is­ins í sam­ræmi við stöð­ug­leika­samn­ing­anna.

Glitnir HoldCo, félagið sem stofnað var utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitnis, hafði því engan fjár­hags­legan hag af því að halda mál­unum til streitu. Raunar gat félagið sparað sér umtals­verðan kostnað við mála­rekstur með því að fella málin ein­fald­lega niður.

[box]Ingólfur Hauksson, fram­kvæmda­stjóri Glitnis, stað­festir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að málin hafi öll verið gerð upp í dag og því séu engin þeirra óleyst. Hann vildi hins vegar ekki gefa upp­lýs­ingar um hvaða mál væri að ræða og með hvaða hætti þau væru gerð upp. Ingólfur vildi heldur ekki upp­lýsa um hver heild­ar­upp­hæð skaða­bótakrafna sem samið var um að láta niður falla væri né hversu mikið hefði inn­heimst, ef nokkuð, eftir að samið var um málin.

Kjarninn hefur einnig fengið stað­fest að Lind­ar­hvoll, félag sem stofnað til að ann­ast umsýslu og sölu stöð­ug­leika­eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröfu­hafa föllnu bank­anna, hafi verið upp­lýst um hvernig unnið hefði verið úr skaða­bóta­kröf­unum. Þar hafi ekki verið talið raun­hæft að félag í eigu rík­is­ins myndi taka yfir rekstur mál­anna, og þá áhættu sem þeim gæti fylgt, þrátt fyrir að þær upp­hæðir sem þau gætu skilað, vegna krafna í íslenskum krónum, ættu að renna til íslenska rík­is­ins. Því gerði Linda­hvoll ekki athuga­semdir við að samið yrði um málin.

Milljarðakröfur

Á meðal þeirra mála sem samið var um að fella niður var skaða­bóta­mál upp á 6,5 millj­arða króna sem slita­stjórnin höfð­aði á hendur Lár­usi Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitn­is, Jóni Ásgeiri Jó­hann­es­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Baugs og fyrr­ver­andi stjórn Glitn­is, en í henni sátu Þor­steinn M. Jóns­son, þáver­andi eig­andi Víf­il­fells, Jón Sig­urðs­son, sem var for­stjóri FL Group, Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður FL Group, Pét­ur Guðmund­ar­son, lög­maður hjá Logos, Björn Ingi Sveins­son, sem var for­stjóri Sax­bygg, Hauk­ur Guðjóns­son og Katrín Pét­urs­dótt­ir, for­stjóri Lýs­is.

Málið, sem var fellt niður seint í des­em­ber 2015, var höfðað vegna 15 millj­arða króna láns sem Glitnir veitti Baugi, stærsta eig­enda bank­ans, seint á árinu 2007. Eftir að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákvað að ákæra ekki í mál­inu, sem hafði verið til rann­sóknar árum saman, var skaða­bóta­málið fellt niður. Í sam­komu­lag­inu um nið­ur­fell­ing­una sam­þykktu allir hinna stefndu að greiða sinn máls­kostnað sjálfir að einum, Þor­steini M. Jónssyni, und­an­skildum.

Samið um mál sem ekki er lokið

Annað þeirra skaða­bóta­mála sem fellt hefur verið niður, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, er hið svo­kall­aða Aurum-mál. Það mál snýst um sex millj­­­arða króna lán­veit­ingu til félags­­­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­­­­­magna kaup FS38, eign­­­ar­­­laust félag í eigu Pálma Har­alds­­­son­­­ar, á 25,7 pró­­­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited. Hluti láns­ins, einn millj­­­arður króna, var ráð­stafað inn á per­­­són­u­­­legan banka­­­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­­­arð síðan í að borga meðal ann­­­ars 705 millj­­­óna króna yfir­­­­­drátt­­­ar­heim­ild sína hjá Glitni.

Fjórir menn voru ákærðir í því máli og tveir þeirra, Lárus Welding og Magnús Arnar Arn­gríms­son, hlutu dóm í hér­aði í lok árs 2016. Jón Ásgeir Jóhann­es­son var hins vegar sýkn­aður í mál­inu ásamt fjórða manni. Sýknu Jóns Ásgeirs og nið­ur­stöð­unni í máli Lárusar og Magnúsar var áfrýjað til Lands­réttar, þar sem málið verður tekið fyrir í sept­em­ber næst­kom­andi.

Þegar ákært var í Aurum-mál­inu hafði slita­stjórn Glitnis þegar höfðað skaða­bóta­mál þar sem Jóni Ásgeiri, Pálma, Lárusi og þremur fyrr­ver­andi starfs­mönnum Glitnis var stefnt til greiðslu bóta. Það mál var sett í bið­stöðu árið 2012 til að bíða eftir nið­ur­stöð­unni úr saka­mál­inu. Nú liggur hins vegar fyrir að búið sé að fella málið niður áður en hún fæst fram.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í Mannlífi sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár