ESA hafnar kvörtun vogunarsjóða vegna aflandskrónulaga

Ísland mátti setja lög sem skikk­uðu vog­un­ar­sjóði til að taka þátt í aflandskrón­u­út­boðum þar sem þeir þurftu að gefa eftir hluta eigna sinna. Þetta er nið­ur­staða ESA. Tækju þeir ekki þátt yrði krónur þeirra settar inn á vaxta­lausa reikn­inga.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ísland hafi mátt setja sér­stök lög um eign á aflandskrónum. Tveir banda­rískir vog­un­ar­sjóðir höfðu kvartað til stofn­un­ar­innar vegna lag­anna, sem sett voru 23. maí síð­ast­lið­inn og voru liður í aðgerðum íslenskra stjórn­valda til að losa fjár­magns­höft, og töldu að þau væru í and­stöðu við samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES). ESA er ósam­mála þessu og birti í dag ákvörðun sína um að lögin séu í sam­ræmi við EES-samn­ing­inn.

Frank J. Büchel, sem situr í stjórn ESA, segir að mark­mið íslensku lag­anna sé að skapa grund­völl fyrir frjálst flæði íslensku krón­unnar, sem á end­anum mun gera Íslandi kleift að taka á ný fullan þátt í frjálsum fjár­magns­flutn­ingum. Þar af leið­andi séu þau ekki brot á EES-samn­ingnum.

Greiðslujöfnunarvandi heimilar verndarráðstafanir

Forsaga máls­ins er sú að í júní 2016 bár­ust ESA tvær kvart­anir vegna laga­setn­ingar um eign á aflandskrónum. Kvart­an­irnar byggð­ust á því að rök íslenskra stjórn­valda og til­vísun í vernd­ar­sjón­ar­mið eigi sér ekki stoð miðað við núver­andi efna­hags­á­stand á Íslandi.Kvart­an­irnar tvær komu frá tveimur banda­rískum vog­un­ar­sjóð­um, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­tal LP, sem sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­­­lausa reikn­inga í refs­ing­­­­ar­­­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­un­um. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­­­­­manni sínum að kanna grund­­­­völl fyrir mög­u­­­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­­­inu auk þess sem þeir kvört­uðu til ESA vegna laga­­­­setn­ing­ar­innar sem sam­­­­þykkt var aðfara­nótt 23. maí síð­­­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­­­ar­­­­upp­­­­­­­töku og brot á jafn­­­­ræð­is­­­­reglu. Þar af leið­andi töldu þeir lögin vera í and­stöðu við EES-samn­ing­inn.

ESA er ósam­mála og birti ákvörðun sína þess efnis í dag. Í frétta­til­kynn­ingu frá ESA vegna lok­unar mál­anna tveggja segir: „Þótt efna­hagur íslenska rík­is­ins hafi styrkst á und­an­förnum árum telur ESA það ekki fela í sér að greiðslu­jöfn­un­ar­vandi Íslands hafi verið leystur. Því sé enn ekki tryggt að ekki verði óstöð­ug­leiki í kjöl­far afnáms hafta. Standi EES-ríki frammi fyrir greiðslu­jöfn­un­ar­vanda eða sé alvar­leg hætta á að örð­ug­leikar skap­ist, hafa stjórn­völd og lög­gjaf­inn tals­vert svig­rúm til að grípa til vernd­ar­ráð­staf­ana. ESA telur að laga­setn­ingin falli innan þessa svig­rúms og hefur því ákveðið að loka mál­unum.“

En á eftir að fjalla um mál sjóð­anna fyrir íslenskum dóm­stólum.

Grímulaus áróður samhliða málarekstri

Samhliða mála­rekstri vog­un­ar­sjóð­anna tveggja fyrir íslenskum dóm­stólum og hjá ESA hefur fyr­ir­bæri sem kall­ast Iceland Watch rekið linnu­lausan áróður fyrir sömu hags­munum og sjóð­irnir voru að reyna að verja. Iceland Watch, sem rekið er af hug­veit­unni Institute for Liber­ty, vakti fyrst athygli hér­lendis þegar það keypti birt­ingar á Twitter til að koma boð­­skap sínum á fram­­færi. Aug­­ljóst er að til­­­gang­­ur­inn er að gæta hags­muna erlendra kröf­u­hafa sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrón­u­­upp­­­boði Seðla­­banka Íslands í sumar sökum þess að þeim fannst gengið sem þar var í boði fyrir skulda­bréf þeirra ekki nógu hátt. Þess í stað voru eignir þeirra settar inn á vaxta­­lausa reikn­inga. Það var hægt vegna sér­­stakra laga sem Alþingi setti í aðdrag­anda útboð­anna. Laga­­setn­ingin var rök­studd með því að aðgerð­­irnar þættu nauð­­syn­­legar til að stuðla að greiðslu­­jafn­­vægi í íslenska efna­hags­­kerf­inu og verja stöð­ug­­leika lands­ins. Undir það hefur ESA nú tekið.

Þann 14. októ­ber síð­ast­lið­inn, tveimur vikum fyrir alþing­is­kosn­inga, birt­ust síðan heil­síðu­aug­lýs­ingar í bæði Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu frá Iceland Watch. Aug­lýs­ing­arnar birt­ust einnig á á dönsku í dönskum fjöl­miðlum, m.a. við­­skipta­­blað­inu Bör­­sen, og á ensku í banda­rískum fjöl­mið­l­­um.

Í aug­lýs­ing­unni voru Íslend­ingar varaðir við því að mis­muna alþjóða­fjár­fest­um. Þar sagð­i:„Við höfum séð þetta áður­. Þegar kæru­­laus stjórn­­völd fyr­ir­­gera rétt­­ar­­rík­­inu hverfur erlend fjár­­­fest­ing og lands­­menn gjalda fyrir það. Á Íslandi mis­­muna ný lög alþjóð­­legum fjár­­­festum og neyða þá til að selja skulda­bréf sem ­tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikn­inga sem ber­a enga vext­i. ­Tölum skýrt: Sví­virð­i­­leg ný lög lands­ins mis­­muna fjár­­­festum eftir þjóð­erni þeirra. Frekar en að halda áfram við­ræðum við alþjóð­­lega fjár­­­festa sem reynt hafa að ná ­samn­ingum í góðri trú hefur Ísland stillt þeim upp við vegg.“

Ný aug­lýs­ing með Má í aðal­hlut­verki

Síð­ustu tvo dag­ana fyrir kosn­ingar birti Iceland Watch svo nýja aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu. Nú var hún með mynd af Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og spurt hver „greiði fyrir spill­ingu og mis­mun­un­ar­reglur á Íslandi“ og sagt að les­endur gerðu það. Þar var einnig spurt hvort Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­bank­an­um, hafi „notað þekk­ingu sína á nýlega til­kynntri lög­gjöf um gjald­eyr­is­höft sem mis­munar erlendum fjár­festum um að stunda inn­herj­a­við­skipt­i“.

Í aug­lýs­ing­unni var því haldið fram að mis­mun­un­ar­stefna íslenskra íslensku gjald­eyr­is­haft­anna hafi kostað hvern Íslend­ing á bil­inu 1,7 til 3,1 milljón króna. Þetta hafi komið fram í „nýrri rann­sókn“ sem er þó ekki til­tekið hver hafi fram­kvæmt eða hvern­ig.

Iceland Watch reyndi einnig að fá aug­lýs­ing­una birta í Frétta­blað­inu en blaðið neit­aði að gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár