„Blaðamennska er ekki glæpur“

Yfirvöld í Malasíu hafa ítrekað yfir­heyrt frétta­menn sem fjallað hafa um aðstæður far­and­verka­manna í land­inu í far­aldri COVID-19. Hópur frétta­manna Al Jazeera var yfir­heyrður í dag vegna heim­ild­ar­myndar sem varpar ljósi á harðar aðgerðir gegn verka­mönnum.

Farandverkamenn í haldi lögreglumanna í lok maí.
Far­and­verka­menn í haldi lög­reglu­manna í lok maí. Mynd: EPA

Hópur frétta­manna hjá Al Jazeera, sem komu að gerð heim­ild­ar­myndar um með­ferð stjórn­valda í Malasíu á óskráðum verka­mönnum á meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gekk yfir í land­inu, voru í dag yfir­heyrðir af lög­reglu. Stjórn Al Jazeera seg­ist standa með sínum frétta­mönnum og hafa miklar áhyggjur á rann­sókn lög­regl­unnar.

Lög­reglan segir yfir­heyrsl­urnar vegna meintra brota frétta­manna á fjöl­miðla­lögum Malasíu. Heim­ild­ar­myndin heitir Locked Up in Malaysia's Lockdown og var frum­sýnd þann 3. júlí. Í henni var fjallað um lög­reglu­að­gerðir sem farið var í gegn óskráðum far­and­verka­mönnum þegar strangt útgöngu­bann var í gildi í Malasíu. Þúsundir slíkra verka­manna voru hand­teknir.

Stjórn­völd í Malasíu sem og rík­is­sjón­varpið þar í landi segja mynd­ina „óná­kvæma, mis­vísandi og órétt­láta“.

Varn­ar­mála­ráð­herra Malasíu hefur farið fram á það að Al Jazeera biðji mala­sísku þjóð­ina afsök­unar og segir ásak­anir um ras­isma og mis­munun gegn far­and­verka­mönnum ekki eiga við rök að styðj­ast.

Stjórn­endur Al Jazeera hafna ásök­unum mala­sískra yfir­valda hins vegar algjör­lega. Þeir segja mynd­ina hafa verið unna af heil­indum og fag­mennsku.

Lög­fræð­ingur frétta­mann­anna segir þá sam­vinnu­fúsa við lög­reglu. Hann bendir á að þeir hafi ítrekað reynt að fá við­töl við yfir­völd í Malasíu vegna umfjöll­unar sinnar en án árang­urs.

Í frétt Al Jazeera og New York Times um málið segir að frétta­menn­irnir hafi verið yfir­heyrðir í marga klukku­tíma. Að þeim loknum hélt lög­reglu­stjór­inn blaða­manna­fund þar sem hann sagði að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um hvort frétta­menn­irnir yrðu ákærðir.

Í heim­ild­ar­mynd­inni var sjónum beint að með­ferð yfir­valda á far­and­verka­mönn­unum en einnig að árangri lands­ins í því að koma böndum á far­ald­ur­inn. Þá var einnig fjallað um starf hjálp­ar­sam­taka sem reyndu að koma far­and­verka­mönn­unum til hjálpar.

Frétta­menn­irnir eru allir búsettir í Malasíu. Þeir hafa orðið fyrir hót­unum, m.a. morð­hót­unum.

„Að ákæra frétta­menn fyrir að vinna vinn­una sína er ekki aðgerð sem á að eiga sér stað í lýð­ræð­is­ríki. Blaða­mennska er ekki glæpur,“ sagði m.a. í yfir­lýs­ingu stjórnar Al Jazeera. Þar kom einnig fram að ótt­ast væri um afdrif far­and­verka­mann­anna sem tjáðu sig í mynd­inni. Þeir hefðu einnig orðið fyrir árásum á net­inu. Yfirvöld í Malasíu hafa gefið út leit­ar­heim­ild vegna manns frá Bangla­dess sem kom fram í mynd­inni og sagði frá reynslu sinni.

Þetta er ekki eina til­vikið þar sem frétta­menn hafa verið hand­teknir og yfir­heyrðir vegna frétta­skrifa af ástand­inu í Malasíu í far­aldr­inum. Frétta­rit­ari South China Morning Post var yfir­heyrður nýverið eftir að hafa fjallað um hand­tökur far­and­verka­manna á meðan útgöngu­bann­inu stóð. Þá var aktí­visti, sem aðstoðað hefur flótta­fólk í land­inu, boðuð í yfir­heyrslu í kjöl­far færslu sem hann rit­aði á Facebook um með­ferð yfir­valda á far­and­verka­fólki og flótta­fólki í far­aldr­inum.

Í heim­ild­ar­mynd­inni var sýnt hvernig lög­reglan girti af svæði far­and­verka­manna með gadda­vír. Þá var einnig fjallað um fjölda­hand­tökur sem sagðar voru gerðar til að koma í veg fyrir útbreiðslu COVID-19. Var þeim smalað inn í rútur og í þrönga klefa og var í mynd­inni fjallað um hvort að sú aðgerð ein og sér hafi orðið til þess að veiran breidd­ist út á meðal þeirra.

Millj­ónir far­and­verka­manna vinna í Malasíu, oft án til­skil­inna leyfa. Flestir þeirra eru frá Bangla­dess, Indlandi og Indónesíu.

Hér má nálg­ast heim­ild­ar­mynd­ina sem er 25 mín­útur að lengd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár