Sigurboginn klæddur í 25 þúsund fermetra plastklæði

Fyrsta stóra verk­efni Christo og Jeanne-Claude hefur litið dags­ins ljós eftir and­lát Christo. Það hefur verið lengi í und­ir­bún­ingi en um þús­und manns koma að upp­setn­ing­unni og kostn­aður nemur rúmum tveimur millj­örðum króna.

Svona mun Sigurboginn líta út fram til 3. október
Svona mun Sig­ur­bog­inn líta út fram til 3. októ­ber Mynd: Benjamin Loyseau © 2021 Christo and Jeanne-Claude Foundation

Íbúar og gestir Par­ís­ar­borgar og hafa á síð­ustu dögum og vikum getað fylgst með upp­setn­ingu á sköp­un­ar­verki hjón­anna og tvíeyk­is­ins Jeanne-Claude og Christo. Lista­verkið Sig­ur­bog­inn, inn­pakk­aður (e. L'Arc de Triomphe, Wrapped) er fyrsta stóra lista­verkið úr smiðju þeirra hjóna sem er sett upp eftir and­lát Christo.

Und­ir­bún­ingur í París hefur staðið yfir frá því í júní en á sunnu­dag vann flokkur manna við það að umvefja sig­ur­bog­ann með um 25 þús­und fer­metrum af bláu og silfr­uðu end­ur­vinn­an­legu plast­efni sem haldið er uppi með þremur kíló­metrum af rauðu reipi. Form­legur opn­un­ar­dagur verks­ins er í dag.

Ólíkt lista­verkum sem skoða má í lista­söfnum Par­ís­ar­borgar þá þurfa gestir ekki að kaupa sér miða til þess að berja verkið augum og líkt og segir á heima­síðu Jeanne-Claude og Christo, þá eru veg­far­endur hvattir til þess að skoða verkið í návígi og jafn­vel þreifa á því.

Langur aðdrag­andi varð að upp­setn­ingu verks­ins. Christo ræddi hug­mynd­ina við stjórn­endur Pompidou safns­ins í París árið 2017. Þá var að hefj­ast und­ir­bún­ingur að sýn­ingu á verkum hjón­anna í safn­inu sem haldin var árið 2020. Hjólin fóru að snú­ast og hug­myndin var sam­þykkt af Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta snemma árs 2019.

[adspot]

Til stóð að Sig­ur­bog­inn yrði sýndur umvaf­inn að hætti Christo og Jeanne-Claude í apríl í fyrra en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti strik í reikn­ing­inn og verk­efnið frestað­ist tölu­vert. Í lok maí á síð­asta ári and­að­ist Christo en hann hafði beðið sam­starfs­fólk sitt um að sjá til þess að verk­efnið klárað­ist enda um ára­tuga gamlan draum að ræða. Jeanne-Claude and­að­ist í nóv­em­ber árið 2009.

Hafa pakkað inn byggingum í rúm 50 ár

Þau Jeanne-Claude og Christo kynnt­ust í París á ofan­verðum sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Í upp­hafi sjö­unda ára­tug­ar­ins hófu þau að vinna við lista­verk sem gerð voru fyrir almanna­rými og snemma kvikn­aði sú hug­mynd að pakka bygg­ingum inn. Christo vann til að mynda ljós­mynda­verk þar sem Sig­ur­bog­anum hefur verið skipt út fyrir ein­hvers konar pakka eða böggul snemma á ferli sínum, á árunum 1962 til 1963.

Það var hins vegar ekki fyrr en að þau hjónin fluttu til New York árið 1964 sem þau fóru að íhuga það alvar­lega að pakka bygg­ingum inn. Þau höfðu valið skýja­kljúfa í borg­inni sem þau lang­aði mikið til að pakka inn og þau áttu í löngum samn­inga­við­ræðum við eig­endur þeirra bygg­inga sem þau lang­aði að pakka inn. Alltaf strönd­uðu við­ræð­urnar og þeim var ítrekað neitað um leyfi til að pakka inn heilli bygg­ingu.

Þau hafa þó pakkað inn bygg­ingum frá því á sjö­unda ára­tugnum en meðal fyrstu bygg­ing­anna sem þau pökk­uðu inn var Kun­sthalle Bern í Sviss áriði 1967. Þau öðl­uð­ust síðar heims­frægð fyrir það að pakka inn mann­virkjum á borð við Pont Neuf í París og þing­húsið í Berlín, Reichstag.

Um 1000 manns koma að innpökkun Sigurbogans

Alla tíð fjár­mögn­uðu Christo og Jeanne-Claude verk­efni á borð við inn­pökkun Sig­ur­bog­ans upp á eigin spýtur. Það gerðu þau með því að selja skissur, ljós­myndir, klippi­myndir, líkön og annað slíkt. Sú var raunin þegar kom að fjár­mögnun þessa verk­efnis en dán­arbú Christo hefur fjár­magnað verk­efnið í París með sölu verka.

Sú fjár­mögnun hefur þurft að ganga vel en heild­ar­kostn­aður við inn­pökkun Sig­ur­bog­ans er um 14 millj­ónir evra, sem sam­svarar rúm­lega tveimur millj­örðum króna. Vinna við upp­setn­ingu verks­ins í París hófst um miðjan júlí en und­ir­bún­ingur hafði þá staðið yfir í tölu­verðan tíma. Alls munu 1000 manns starfa á einn eða annan hátt við upp­setn­ingu og svo nið­ur­töku þess sem hefst eftir rétt rúm­lega tvær vikur en form­legur tími þessa list­við­burðar er til 3. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár