25 stjórnarfrumvörp komin fram á þingi - hafa aldrei verið færri á þessari öld

Tveir ráðherrar hafa ekki lagt fram frumvarp það sem af er þingi.
Tveir ráð­herrar hafa ekki lagt fram frum­varp það sem af er þingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórn Íslands hefur aðeins lagt fram 25 frum­vörp það sem af er þessu þingi. Á þess­ari öld hafa alltaf verið komin fram fleiri frum­vörp á þessum tíma árs, jafn­vel þótt lengst af á tíma­bil­inu hafi þing ekki verið sett fyrr en 1. októ­ber. Þing­setn­ingin var færð fram um nokkrar vikur, fram í sept­em­ber, haustið 2012.


Þrjú þess­ara 25 frum­varpa sem rík­is­stjórnin hefur lagt fram á þing­inu það sem af er hafa verið kláruð og eru orðin að lögum. Sextán frum­varpanna eru í nefnd eftir fyrstu umræðu, þrjú þeirra bíða ann­arrar umræðu og þrjú bíða þriðju og síð­ustu umræðu.

Af þessum 25 frum­vörpum eru fimmtán þeirra end­ur­flutt frá fyrri þingum. Þrjú þess­ara end­ur­fluttu frum­varpa eru einnig inn­leið­ingar á EES reglum og eitt þeirra er samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Tíu frum­varpanna eru því ný frum­vörp, og þar af eru þrjú sem tengj­ast fjár­lög­unum og eitt sem er inn­leið­ing á við­auka við Mann­rétt­inda­sátt­mál­ann.

Frum­vörpin sex sem eftir standa eru frum­vörp Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra um verk­efni Land­helg­is­gæslu Íslands erlendis, fulln­ustu refs­inga, um brott­fall laga um þriðju kyn­slóð far­síma og um fram­leng­ingu starfs­leyfa í happ­drættum og talna­get­raunum. Auk þess frum­vörp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða og um nauða­samn­inga­gerð slita­búa föllnu bank­anna. 

Tveir ráð­herrar hafa ekki ennþá lagt fram frum­varp. Það eru þær Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, og Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Hafa gagnrýnt málaþurrðina

Þingmenn bæði í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu hafa vakið athygli á því að skortur sé á þing­málum frá rík­is­stjórn­inni. Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, vakti athygli á þessu í þing­inu þann 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún benti á að þing­nefndir hefðu af þessum sökum lítið að gera og þing­störfin væru í upp­námi. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir með henni, og flokks­systir hennar Heiða Kristín Helga­dóttir líka. „Hér er fullt af fólki sem er til­búið að vinna og það er miður að málin komi svo inn í þingið eftir tvær til þrjár vikur og þá séu þau afgreidd á ein­hverju hunda­vaði,“ sagði hún. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, benti á að tveir mán­uðir væru liðnir af þing­inu og þrír ráð­herrar hefðu ekki skilað einu ein­asta þing­máli inn. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, lagði til að nefndir væru í verk­fall þangað til mál kæmu inn í þær. „Ég tek undir þá hvatn­ingu til ráð­herra að fara að koma fleiri málum hérna inn svo að við í þing­inu getum tekið það hlut­verk okkar alvar­lega að vinna að málum vel,“ sagði Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við umræð­urnar. Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sem er einn þeirra ráð­herra sem ekk­ert mál hefur lagt fram, sagð­ist taka hvatn­ing­una og gagn­rýn­ina til sín.

Seinkun komin á afgreiðslu fjárlaga

Þrátt fyrir að málin sem fram hafa komið það sem af er þingi séu fá er þegar fyr­ir­séð að seinkun verður á afgreiðslu fjár­laga. Samkvæmt starfs­á­ætlun Alþingis átti að hefja aðra umræðu um fjár­lögin næst­kom­andi fimmtu­dag, og þriðja umræða átti að hefj­ast viku seinna, eða þann 3. des­em­ber. Nú er orðið ljóst að þetta mun riðl­ast, þar sem að fjár­laga­nefnd hóf umfjöllun sína um fjár­lögin aðeins í morgun.

Ástæðan er sú að rík­is­stjórnin afgreiddi ekki sínar til­lögur fyrir aðra umræðu fjár­laga fyrr en á föstu­dags­eft­ir­mið­dag. Fjár­laga­nefnd hafði verið boðuð til fundar klukkan 14 á föstu­dag­inn til að hefja sína umfjöllun um til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar, en fresta þurfti fund­inum þar til í morgun vegna þess að klukkan 14 var rík­is­stjórn­ar­fund­inum ekki lokið. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, sagði við Kjarnann á föstu­dag að fyr­ir­séð væri að seinkun væri orðin á afgreiðslu fjár­laga, en hún sagð­ist „algjör­lega óstressuð yfir því.“ Hún gæti lofað því að fjár­lögin verði afgreidd fyrir ára­mót.

Ellefu þing­funda­dagar eru eftir af þing­inu fram að jólum sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins, en það á að ljúka störfum 11. des­em­ber næst­kom­andi. Það mun vænt­an­lega hjálpa þing­inu við að fara ekki of langt fram úr áætlun að fá önnur mál eru til­búin til afgreiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár