Skora á stjórnvöld að hætta urðun sorps

Átakinu Hættum að urða – Finnum lausnir hefur verið hrundið af stað þar sem Íslend­ingar eru hvattir til að skrifa undir áskorun til stjórn­valda um að finna leiðir til að hætta urðun.

Nýju átaki, Hættum að urða– Finnum lausnir, hefur verið hleypt af stokk­unum. Markmið átaks­ins er að vekja athygli á ókostum urð­unar en hér á landi eru rúm­lega 200 þús­und tonn af sorpi urðuð á hverju ári. Á vef átaks­ins er fólk hvatt til að skrifa undir áskorun til stjórn­valda um að finna leiðir til að hætta urðun og í lok sept­em­ber verður áskorun og und­ir­skrifta­list­inn afhendur stjórn­völdum.

Líta á rusl sem hráefni til að nýta

[links]Á hverju ári eru tæp­lega 220 þús­und tonn af sorpi urðuð hér á landi en það eru meira en 20 Eiffel turnar af rusli sem grafnir eru ofan í landið árlega. Í frétta­til­kynn­ingu átaks­ins segir um sé ræða gríð­ar­legt vanda­mál sem Íslend­ingum beri skylda að finna lausn á og stöðva.

„Urðun í slíku magni hefur slæm áhrif á jarð­gæði og loft­gæði og eru í eðli sínu slæm nýt­ing á tak­mörk­uðum auð­lindum jarð­ar­innar. Sorp getur verið margar aldir að brotna niður,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Íslenska gáma­fé­lagið leiðir átakið en með því vill fyr­ir­tækið stuðla að skil­virk­ari og umhverf­is­vænni leiðum við förgun og end­ur­vinnslu, þar sem hætt verði að líta á rusl sem úrgang, heldur fremur sem hrá­efni til að nýta.[adspot]

Hægt að flytja sorpið úr landi án þess að auka sótspor

Á hverju ári falla til frá heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins um 530 þús­und tonn af almennu rusli og af því er um helm­ing­ur­inn urð­aður. Gáma­fé­lagið segir að með auk­inni end­ur­vinnlsu sé raun­hæft að draga úr urðun sem um nemur 20 til 50 þús­und tonnum. Þá standa þó enn eftir um 150 til 180 þús­und tonn sem urða þarf á hverju ári.

Samkvæmt gáma­fé­lag­inu væri hins vegar strax hægt að láta af nær allri urðun hér á landi með því að flytja ruslið til brennslu í Evrópu, þar sem það nýt­ist til hús­hit­unar. Félagið segir að sót­spor land­ins muni ekki stækka í kjöl­farið þar sem skipin séu hvort það er á ferð­inni og að flutn­ings­geta þeirra sé ónýtt vegna mis­ræmis í magni á inn- og útflutn­ingi.

„Með því að flytja sorpið til Evrópu þar sem það er nýtt til hús­hit­unar náum við hins vegar strax nærri 100 pró­senta end­ur­vinnslu á öllu rusli,“ segir Jón Þórir Frantzson, for­stjóri Íslenska gáma­fé­lags­ins.

Útflutningur á okkar eigin úrgangi umhverfisleg ósvinna

Einar Svein­björns­son, veð­ur­fræð­ingur, segir hins vegar að útflutn­ingur á úrgangi sé „umhverf­is­leg ósvinna“ af marg­vís­legum toga. Hann gagn­rýnir átakið í Facebook-færslu í dag og bendir á að Íslenska gáma­fé­lagið og Samskip standa að baki her­ferð­ar­innar.

„En það vekur athygli að þeir sem virð­ast kosta þessa her­ferð sú einmitt Íslenska Gáma­fé­lagið og Samskip. Þær yrðu margar ferð­irnar sem farnar yrðu með sorp­gámana í skip Samskip alls staðar að af land­inu og margir farm­arnir til Sví­þjóðar með heil 150 þús tonn af úrgangi árlega. Þeir munu græða en við borgum,“ skrifar Einar.

Hann segir að urðun sé ekki slæm ef rétt sé að henni staðið en að þá þurfi að flokka eit­ur­efni frá og annað sem þykir hag­nýtt til end­ur­vinnslu. „Vilji menn brenna sorp, líkt og á Norð­ur­lönd­unum gerum við það hér heima, en flytjum ekki okkar eigin úrgang til ann­ara. Þeir geta á hag­kvæman virkjað vind­inn og sól skorti þar orku,“ segir Einar.

Undirskriftalisti afhendur stjórnvöldum í lok september

Halldóra Geir­harðs­dóttir, leik­kona og tals­maður átaks­ins, segir að þau sem standi að átak­inu vilji gefa fólki færi á að senda stjórn­völdum skýr skila­boð um að líta beri á sorp sem auð­lind en ekki vanda­mál.

„Við finnum ekki lausnir fyrr en við byrjum að leita að þeim. Fyrsta skrefið er að ákveða að núver­andi ástand geti ekki varað lengur. Stað­reyndin er að nú þegar eru þær lausnir til staðar sem duga til að stöðva urðun alfarið á skömmum tíma. Við viljum gefa fólki færi á að senda stjórn­völdum skýr skila­boð um að líta beri á sorp sem auð­lind, ekki vanda­mál. Með réttu hug­ar­fari finnum við lausnir sem henta hverju sinni. Og með sam­stilltu átaki getum við hvatt stjórn­völd til að stöðva urðun,“ segir Halldóra í frétta­til­kynn­ingu átaks­ins.

Átakið verður í gangi út sept­em­ber­mánuð og í lok þess verður svo áskorun og listi með þeim und­ir­skriftum sem safn­ast hafa afhentur stjórn­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár