Hundrað tonn af spilliefnum frá heimilum enduðu í urðun

Spilli­efni eru skað­leg umhverfi, dýrum og fólki en alls end­uðu um 120 tonn í urðun árið 2017 sem hluti af blönd­uðum úrgangi frá heim­ilum. Sorpa kallar eftir því að almenn­ingur skili spilli­efnum í mót­töku­stöðvar Sorpu.

Á hverju ári lenda rúm­lega hund­rað tonn af spilli­efnum í urðun sem hluti af blönd­uðum heim­ilsúr­gangi. Algeng­ustu spilli­efnin frá heim­ilum eru meðal ann­ars máln­ing, skor­dýra­eitur lím, raf­hlöður, stíflu­eyðir og lyf en alls henda um 30 pró­sent Íslend­inga lyfjum í rusl, vask eða kló­sett. Sorpa hefur kallað eftir því að spilli­efnum sé skilað í réttan far­veg en tekið er á móti spilli­efnum frá heim­ilum á öllum end­ur­vinnslu­stöðvum Sorpu.

Naglalökk og olíumálningarfötur eru spilliefni

Samkvæmt Hússorp­s­rann­sókn Sorpa frá árinu 2017 fara um 120 tonn af spilli­efnum frá heim­ilum í urðun. Spilli­efni eru efni sem eru skað­leg umhverf­inu, mönnum og dýrum og ítrekar Sorpa því mik­il­vægi þess að spilli­efnum, í lok­uðum umbúðum með réttum merk­ingum, sé skilað í end­ur­vinnslu­stöðvar Sorpu. Þeim spilli­efnum er síðan skilað til við­ur­kenndra mót­töku­að­ila þar sem spilli­efnin eru flokkuð og með­höndluð á réttan hátt og komið til eyð­ingar eða í end­ur­vinnslu.

Á vef Sorpu segir jafn­framt að hægt sé að kaupa umhverf­is­vott­aðar vörur sem hafi ekki jafn skað­leg áhrif á umhverfið. Þar á meðal eru vörur merktar Svaninum eða Evr­ópu­blóm­inu. Auk þess er bent á að hægt sé að búa til eigin hreinsi­efni úr til dæmis mat­ar­sóda, sítrónu eða ediki.

Tæpur þriðjungur Íslendinga hendir lyfjum í rusl, klósett eða vask

Lyf eru á meðal algeng­ustu spilli­efna sem finna má á heim­ilum en lyf og lyfja­leifar geta valdið skaða og haft meng­andi áhrif á menn, dýr og umhverfi ef þau ber­ast út í nátt­ur­una. Samkvæmt Sorpu henda 31 pró­sent Íslend­inga lyfjum í rusl, vask eða kló­sett þrátt fyrir að ekki megi henda lyfjum þangað.

Samkvæmt Sorpu geta til að mynda sýkla­lyf sem enda í nátt­úr­unni haft þau áhrif að bakt­er­íur verði ónæmar fyrir lyfj­unum, sem geti leitt til þess að erf­ið­ara verður að ráða við sýk­ingar af því lyfin virka ekki lengur á bakt­er­í­urnar.

Enn fremur geti lyf sem inni­halda horm­óna eða önnur efni sem orsaka horm­óna­breyt­ingum sem enda í nátt­úr­unni leitt til þess að dýr nái ekki að æxla sig.

Sorpa bendir á að tekið sé á móti gömlum og ónotum lyfjum og umbúðum sem hafa verið í snert­ingu við lyf í öllum apó­tekum og þaðan er þeim komið í örugga eyð­ingu.

Mikilvægt að textíll og gler endi ekki sorptunnum

[links] Í febr­úar á næsta ári tekur gas- og jarð­gerð­ar­stöð Sorpu til starfa en mark­miðið með stöð­inni er að end­ur­nýta allan líf­rænan úrgang sem fellur til á heim­ilum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem best.

Fyr­ir­tækið ítrekar þó að til þess að það sé mögu­legt sé mik­il­vægt að þeir efn­is­flokkar sem eiga sér end­ur­nýt­ing­ar­far­veg, til dæmis gler og textíll eða efni sem eru skað­leg umhverf­inu, þar á meðal lyf, spilli­efni og raf­tæki, séu sett í réttan far­veg og endi alls ekki í sorp­tunnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár