Herborg skoðar lánakjör banka og lífeyrissjóða

Björn Brynj­úlfur Björns­son hefur tekið saman og birt yfir­lit yfir lána­kjör helstu lána­stofn­ana á Íslandi á vefnum.

„Hæ, ég heiti Herborg. Ég rýni í smáa letrið hjá bönkum og líf­eyr­is­sjóðum til að auð­velda þér að finna bestu kjörin næst þegar þú tekur lán.“

Þetta eru skila­boðin sem mæta gestum nýs vefs, her­borg.is, sem hag­fræð­ing­ur­inn Björn Brynj­úlfur Björns­son hefur sett í loftið. Á vefnum má sjá yfir­lit yfir lána­kjör helstu lána­stofn­ana sem lána fyrir hús­næð­is­kaupum á Íslandi.

Björn Brynj­úlfur skrifar á vef­inn að hann hafi velt fyrir sér hvers vegna það tæki svo ótrú­lega langan tíma að leita að láni þegar hann keypti sína fyrstu íbúð. „Eftir að hafa legið yfir heima­síðum banka og líf­eyr­is­sjóða (þeir eru 28 tals­ins!) í nokkra daga tókst mér loks­ins að útbúa almenni­legt yfir­lit yfir stöð­una.“

Hann hafi í kjöl­farið kom­ist að því að fleiri ættu við þetta vanda­mál að stríða þegar þeir hugð­ust leita að láni. „Fæstir vissu af öllum sem bjóða upp á hús­næð­is­lán á Íslandi og höfðu bara tekið lán hjá ein­hverjum sem var áber­andi á þeim tíma,“ skrifar Björn Brynj­úlfur enn­fremur.

Sam­an­burður þeirra lána sem listuð eru á vefnum er hlut­laus og ætl­unin að hafa hags­muni lán­tak­ans að leið­ar­ljósi. Herborg.is hefur engin tengsl við lán­veit­endur. Á vefnum má einnig finna svör við þeim spurn­ingum sem helst kvikna þegar fólk hygg­ist taka hús­næð­is­lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár