Arctic Hydro æfir yfir verndarflokkun Hamarsvirkjunar

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur lagt til að kost­ur­inn Ham­ar­s­virkjun á Aust­ur­landi fari í vernd­ar­flokk. Fyr­ir­tækið Arctic Hydro, sem ætl­aði að reisa virkj­un­ina, gagn­rýnir til­lög­una. Það gera einnig þeir sem stefna á bygg­ingu risa­vax­ins vind­orku­vers.

Fossaröð
Fossaröð Á Hrauna­svæð­inu, er m.a. þessi röð fossa. Um er að ræða vatna­sviðið austan Vatna­jök­uls. Mynd: Andrés Skúlason

Ekkert verður af 60 MW Ham­ar­s­virkjun á Aust­ur­landi líkt og fyr­ir­tækið Arctic Hydro hf. áformar ef til­lögur verk­efn­is­stjórnar 5. áfanga ramma­á­ætl­unar um að setja kost­inn í vernd­ar­flokk verða að veru­leika. Verð­mæta­mat fag­hóp á nátt­úru svæð­is­ins, lands­lags og víð­erna, spilar þar stærstan þátt.

Virkj­un­ar­að­il­inn er allt annað en sáttur og leit­aði bæði lið­sinnis lög­fræði- og verk­fræði­stofu til að verj­ast. Lög­fræði­stofan Sókn gagn­rýnir harð­lega í umsögn sinni mat fag­hópa ramma­á­ætl­unar, sem til­laga verk­efn­is­stjórnar byggir á, og segir vís­bend­ingar um að það „hvíli á villum og til­teknu sam­ræm­is­leysi“.

Verk­fræði­stofan Efla er á svip­uðum nótum í sinni umsögn og gagn­rýnir m.a. mat á mik­il­vægi víð­erna í tengslum við virkj­un­ina og segir fag­hópana ekki hafa tekið til­lit til nýrra gagna frá virkj­un­ar­að­il­anum sem rýri þar með trú­verðlug­leika og fag­leika við nið­ur­stöð­una. „Þegar rök verk­efn­is­stjórnar fyrir flokkun Ham­ar­s­virkj­unar í vernd­ar­flokk eru skoðuð má sjá að settar eru fram ýmsar stað­hæf­ingar sem eru háðar ýmsum …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Enn græða aðilar á daginn og láta grilla fyrir sig á kvöldin á meðan sullað er í bjór

    Verk­efn­is­stjórn ramm­a­áætl­un­ar hef­ur lagt til að kost­ur­inn Ham­ars­virkj­un á Aust­ur­landi fari í vernd­ar­flokk. Rammaáætlun er ætlað að vernda hagsmuni almennings í landinu. Fyrirbærið er í raun málamiðlun milli stjórnmálaflokka á Alþingi.

    Umhverfisverndarsinnar vilja í raun fá miklu ákveðnari reglur á meðan flokkarnir sem vilja allstaðar virkja sem hægt er og gefa lítið fyrir hagsmuni almennings þegar kemur að umhverfisvernd. Flokkar sem vilja fjölga í landinu fjölþjóðafyrirtækjum sem allra mest.

    Umhverfissóðarnir eru mjög óánægðir og vilja græða sem mest á erfðarauðævum þjóðarinnar. Það birtist í þessum viðhorfum gróðapungana hja fyr­ir­tæk­inu Arctic Hydro, sem ætl­aði að reisa virkj­un­ina, gagn­rýn­ir til­lög­una. Það gera einnig þeir sem stefna á bygg­ingu risa­vax­ins vindorku­vers.

    Þetta fyrirtæki og önnur í sama dúr kaupa síðan fyrirtæki lögfræðinga og verkfræðinga til að berjast fyrir sinni einkagræðgi.
    1
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Fagna verður að komið verði í veg fyrir þessa virkjun
    2
  • ID
    Iceland Discovery skrifaði
    Arctic Hydro er í rúmlega 90% erlendu eignarhaldi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár