Hverju á eiginlega að treysta?

Á tímum sam­fé­lags­miðla, fals­frétta og enda­lauss upp­lýs­inga­flæðis getur verið vanda­samt að átta sig á hvaða vit­neskju við eigum að taka til okkar og hverju við eigum að treysta. Kjarninn spjall­aði við Finn Dellsén, dós­ent í heim­speki við Háskóla Íslands.

Upp­lýs­ing­arnar flæða yfir nútíma­fólk þar sem aðgengi að þeim hefur auk­ist til muna með til­komu nýrrar tækni. Þó virð­ist sem fólk sæki í upp­lýs­ingar sem renna stoðum undir skoð­anir þeirra og hunsi frekar þær sem passa ekki inn í heims­mynd þess. En það breytir þó ekki þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir þegar meta á upp­lýs­ingar: Hverju á að treysta og trúa og hverju ekki?

Kjarninn hitti heim­spek­ing­inn Finn Dellsén til að ræða þessi mál en hann hefur meðal ann­ars fjallað í skrifum sínum og fyr­ir­lestrum um traust á sér­fræð­ingum og gagn­rýna hugsun. Hann segir að vís­inda­kenn­ingar hafi í sögu­legu sam­hengi aldrei verið eins vel rök­studdar og því sé minni hætta á að kenn­ingar koll­varp­ist eins og áður þekkt­ist. Hann telur jafn­framt að það sé kostur að fólk sé ósam­mála og að ekki sé 100 pró­sent sam­staða um mál – og ef svo væri, þá fyrst ættum við að hafa áhyggjur.

Finnur hlaut Nils Klim-verð­launin fyrir rann­sóknir sínar á þekk­ing­ar­fræði og vís­inda­heim­speki, fyrstur Íslend­inga, í mars síð­ast­liðnum en verð­launin eru veitt árlega nor­rænum fræði­manni yngri en 35 ára. Hann hlaut jafn­framt Hvatn­ing­ar­verð­laun Vísinda- og tækni­ráðs 2019 í nóv­em­ber á þessu ári. Verð­launin eru veitt vís­inda­manni sem snemma á ferl­inum þykir hafa skarað framúr og skapað vænt­ingar um fram­lag í vís­inda­starfi er treysti stoðir mann­lífs á Íslandi.

Fríið fór í að læra heimspeki

Heim­spekin fang­aði þó ekki huga Finns á mennta­skóla­ár­unum en aðal­fög hans í Mennta­skól­anum á Akureyri voru eðl­is­fræði og stærð­fræði. Ætlaði hann sér að verða sér­fræð­ingur á öðru hvoru svið­inu en örlögin hög­uðu því öðru­vísi. „Ég tók ekki einu sinni val í heim­speki á þessum tíma, það hent­aði ekki eða pass­aði inn í stunda­töfl­una. Ég hafði þó alltaf áhuga á heim­speki,“ segir hann. Finnur tók sér árs frí eftir mennta­skóla og fór það í að læra heim­speki. „Ég er það mikið nörd að ég fór ekki að ferð­ast um heim­inn heldur fór ég að læra heim­speki í stað­inn. Svo má segja að ég hafi fest í þessu, ég hafi í raun ekki farið úr heim­spek­inni,“ segir hann og hlær. Þó hafi hann reynt en hann tók eitt miss­eri í stærð­fræði og eitt í stærð­fræði­legri rök­fræði en svo hafi hann fljót­lega fundið að hann lang­aði aftur í heim­spek­ina.

Hann sér­hæfði sig í vís­inda­heim­speki, rök­fræði og þekk­ing­ar­fræði og segir hann að hann hafi mikið notað tæki og tól stærð­fræð­innar í heim­speki­rann­sóknum sínum og búi því mikið að henni. „Það er samt þannig að ég er algjör alæta á heim­speki. Þannig að ég hef mjög mik­inn áhuga á þessu öllu.“ Finnur hefur í þessu sam­hengi meðal ann­ars stundað rann­sóknir á sögu heim­spek­innar og und­ir­stöðum sið­fræð­innar, ásamt því að hafa alltaf haft mik­inn á huga á stjórn­mála­heim­speki.

Finnur útskrif­að­ist sem doktor í heim­speki árið 2014 frá UNC við Chapel Hill í Banda­ríkj­unum en þegar hann fór í það nám valdi hann að fara í deild þar sem fjöl­breytnin er mikil og hefur hann því einnig rann­sakað önnur svið innan heim­spek­innar. „Þar var mikil áhersla lögð á að koma út úr nám­inu með breiða þekk­ingu og hug­myndin er sú að maður græði á því að sjá hvernig vanda­mál eru leyst á einu sviði heim­spek­innar sem og öðrum.“

Hann hafði ímyndað sér að dvelja og starfa áfram í Banda­ríkj­unum en vegna fjöl­skyldu­að­stæðna ákváðu hann og konan hans að koma heims til Íslands en hún er lang­veik. „Þetta ströggl allt saman hafði verið erfitt og ég lagði ekki í það að kljást við banda­ríska heil­brigð­is­kerfið og sjúkra­trygg­ingar. Svo við komum heim um leið og við gátum en ég reyndi eins og ég gat að flýta mér að klára dokt­ors­rit­gerð­ina.“

Umgjörð vantar fyrir þá sem koma heim úr námi

Þegar Finnur kom til Íslands var lítið fyrir hann að gera. „Ég reyndi að sækja um ýmis­legt en ekk­ert gekk,“ segir hann. Hann telur að ein­hvers konar umgjörð vanti fyrir þá sem koma heim eftir nám og að mik­il­vægt sé að fólk hafi ein­hverjar leiðir til að bjarga sér. „Alls ekki neinn lúxus eða þvíum­líkt, heldur þannig að fólk geti verið áfram inn í aka­dem­í­unni,“ segir hann en hann sá mik­inn mun á aðstöðu úti í Banda­ríkj­unum fyrir nýút­skrifað fólk miðað við hér á landi. Þar eru ýmiss konar stöður fyrir fólk að sækja um og ganga í.

„Svo er miklu auð­veld­ara að fá fyrstu vinn­una úti í Banda­ríkj­unum. Á Íslandi fær fólk ekki akademíska vinnu fyrr en um fer­tugt og þá er það búið að vera í ströggli í að minnsta kosti tíu ár. Það er oft þannig.“ Þannig sé oft gert ráð fyrir því að fólk bíði í fimm til fimmtán ár í ein­hvers konar lim­bói. Svo sé atvinnu­á­standið orðið það slæmt að þá sé meira að segja eftir þennan tíma ekki víst að fólk fái starf eða stöðu við hæfi þrátt fyrir menntun. „Þetta er ómann­eskju­legt að vissu leyti,“ segir hann.

Ég er það mikið nörd að ég fór ekki að ferð­ast um heim­inn heldur fór ég að læra heim­speki í stað­inn. Svo má segja að ég hafi fest í þessu, ég hafi í raun ekki farið úr heim­spek­inni.

Finnur byrj­aði að vinna utan aka­dem­í­unnar eftir heim­komu frá Banda­ríkj­unum og hóf störf á Alþingi en áður hafði hann unnið hjá þing­flokki Vinstri grænna. Þar starf­aði hann í um ár og segir hann að það hafi verið til að hafa í sig og á – hann hafi í raun neyðst til að fara aftur út úr aka­dem­í­unni. Hann hafi aftur á móti tekið þá ákvörðun eftir þetta ár að taka áhætt­una og reyna að finna stöðu innan háskóla­sam­fé­lags­ins en hægt og rólega fékk hann styrki sem hjálp­uðu honum að láta þá drauma ræt­ast. Hann fékk í fram­hald­inu nýdokt­ors­stöðu á Írlandi þar sem hann vann í eitt og hálft ár. Þrátt fyrir það bjó fjöl­skylda hans áfram á Íslandi og flakk­aði hann mikið milli land­anna tveggja á þessum tíma. Hann segir að þetta hafi verið erf­iður tími – og hafi hann verið með litlar tekjur þegar ferða­lögin hafi verið tekin með í reikn­ing­inn, sem og uppi­hald í tveimur löndum.

„Eftir á að hyggja sé ég alls ekki eftir þessum tíma því ég græddi mjög mikið á þessu. Margt af því sem ég er að gera núna eru hlutir sem ég byrj­aði á í verk­efn­inu sem ég var í á Írlandi. Það var margt frá­bært við það þrátt fyrir að þetta hafi verið mikil áhætta,“ segir hann. Að lokum fékk Finnur vinnu í Lil­lehammer í Noregi en í milli­tíð­inni hafði hann sótt um á hinum ýmsu stöðum til að fá var­an­lega vinnu.

Þarna fékk Finnur loks­ins fasta stöðu en hann átti ein­stak­lega auð­velt með að aðlag­ast sam­fé­lag­inu í Noregi þar sem hann er hálfsænskur og mátti kenna þar á sænsku. Og þrátt fyrir að vera nú kom­inn með stöðu við Háskóla Íslands, en hann hefur nú starfað við HÍ í yfir eitt ár, þá kennir hann enn við Háskól­ann í Lil­lehammer í hluta­starfi.

Það má því með sanni segja að mikið hafi gengið á á þessum árum hjá Finni og fjöl­skyldu hans en sam­kvæmt honum hafa þau flutt á hálfs árs fresti að með­al­tali í gegnum árin.

Finnur Dellsén
Finnur Dellsén

Hvernig getum við treyst vísindakenningum?

Í námi og starfi hefur Finnur lagt áherslu á ýmis þekk­ing­ar­fræði­leg vanda­mál, til að mynda hvernig vís­inda­kenn­ingar eru rök­studdar og hvort við höfum ástæðu til að trúa þeim. Sem dæmi nefnir Finnur að eitt vanda­mál sem kemur upp, þegar hugsað er um vís­inda­kenn­ingar, sé að stundum getum við verið í þeirri aðstöðu að halda að kenn­ingin sé ágæt­lega rök­studd og passi við þær athug­anir sem hafa verið gerðar en aftur á móti höfum við ástæðu til að halda að ný kenn­ing geti komið fram í náinni fram­tíð sem muni breyta algjör­lega sýn okkar á það sem kenn­ingin fjallar um.

„Það er erf­ið­ara að sjá fyrir hvenær það muni ger­ast og hvenær ekki eða hvort við séum að fá jákvæðar eða nei­kvæðar nið­ur­stöður úr ein­hverjum til­raunum. Þar af leið­andi getur verið erfitt að vita hvort við eigum til dæmis að trúa á grund­vall­ar­kenn­ingar eins og afstæð­is­kenn­ingu Ein­steins, vegna þess að hún er mjög fræði­leg og önnur kenn­ing gæti verið sett fram sem væri allt öðru­vísi en almenna afstæð­is­kenn­ingin. Hún gæti verið í jafn miklu sam­ræmi við öll gögn sem við höfum og munum fá. Þannig að spurn­ing vaknar hvort við eigum að trúa þessum vís­inda­kenn­ingum sem eru vel rök­studdar – eða virð­ast alla­vega vera það – en svo getur það allt í einu gerst að við finnum ein­hverja aðra leið til að hugsa um þessi fyr­ir­bæri sem eig­in­lega grefur undan þessu.“

Þær leiðir sem við höfum til að hugsa um hvort vís­inda­legar kenn­ingar séu vel rök­studdar hjálpi okkur ekki við að takast á við þetta vanda­mál. „Og vís­inda­legar aðferðir í heild sinni hjálpa okkur eig­in­lega heldur ekki að gera það. Þær geta hjálpað okkur að stað­festa kenn­ingu en þær hjálpa okkur ekki að vita hvort við höfum réttu kenn­ing­una til að byrja með.“

Notar tól og tæki úr stærðfræðinni

Til þess að takast á við þetta vanda­mál hefur Finnur notað lík­inda­fræði­legar aðferðir til þess að greina þau. „Ég nota til­tekin tæki úr stærð­fræð­inni og lík­inda­fræði til að takast á við spurn­ingar sem þessar og til að sýna fram á að ein­hver til­tekin rök séu rétt en ekki ein­ungis eitt­hvað sem manni finnst vera rétt,“ segir hann.

Sem dæmi tekur Finnur að eitt að því sem ákvarðar hvort við eigum að halda að það muni koma fram önnur kenn­ing á ákveðnu sviði, sem væri í and­stöðu við þá kenn­ingu sem við höfum, væri fjöldi vís­inda­manna á því sviði. „Vís­inda­mönnum hefur fjölgað mikið – mjög mikið – á tutt­ug­ustu öld­inni. Ef við horfum á það hversu margar til­raunir hafa verið gerðar í heild­ina á hverju ári þá sjáum við mikla aukn­ingu. Einnig eru vís­inda­kenn­ingar betur rök­studdar en þær hafa nokkurn tím­ann verið. Þannig að þegar fólk fer að tala um að í for­tíð­inni hafi ýmiss konar vís­inda­kenn­ingar reynst vera rangar og dregur þá ályktun að það sama gildi um núver­andi vís­inda­kenn­ingar, þá gleym­ist þessi stað­reynd,“ segir hann enn fremur.

Á vissum sviðum er eitt­hvað til í þessum pæl­ingum en sú hug­mynd að við höfum haft svo oft rangt fyrir okkur í vís­indum að þar af leið­andi eigum við ekki að treysta þeim núna á ekki við rök að styðj­ast.

„Þegar farið er að skoða þetta lík­inda­fræði­lega þá stand­ast slík rök verr en maður gæti haldið. Það er samt ekki þannig að það sé ekk­ert til í þessu. Á vissum sviðum er eitt­hvað til í þessum pæl­ingum en sú hug­mynd að við höfum haft svo oft rangt fyrir okkur í vís­indum að þar af leið­andi eigum við ekki að treysta þeim núna á ekki við rök að styðj­ast.“

Kostur að fólk sé ósammála

Finnur bendir á að vís­inda­legar kenn­ingar séu mis­vel rök­studdar. „Þegar kemur að lofts­lags­breyt­ingum þá myndi ég orða þetta þannig að sú afstaða að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum sé mjög vel rök­studd. Ein af ástæðum þess að ég tel hana vera vel rök­studda er að lang­flestir vís­inda­menn, eða um 97 pró­sent, hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu. Það að ein­hverjir vís­inda­menn séu á annarri skoðun er ekki endi­lega ekki eitt­hvað sem við ættum að hafa miklar áhyggjur af.“

Ástæðan fyrir því að við ættum ekki að hafa áhyggjur af þeim sem eru í miklum minni­hluta, að sögn Finns, er sú að við ættum að búast við því, nán­ast sama hvert mál­efnið er, að ein­hverjir séu ósam­mála nið­ur­stöð­unni sem allir aðrir eru sam­mála um. Þannig sjái Finnur það þvert á móti sem ákveðið styrk­leika­merki á kenn­ingu að þeir séu til sem eru ósam­mála henni.

„Ef 100 pró­sent lofts­lags­vís­inda­manna væru sam­mála um að breyt­ing­arnar séu af manna­völdum þá myndi ég hafa meiri áhyggjur en ég hef núna. Þá væri ástæða til að trúa því að eitt­hvað skrítið væri í gangi með þessa vís­inda­menn vegna þess að þessi vís­indi eru mjög flókin. Það er mjög flókið að kom­ast að því hverjar orsakir lofts­lags­breyt­inga eru – það er ekki jafn ein­falt og stundum er látið í veðri vaka þar sem heim­ur­inn hefur hlýnað og á sama tíma hefur gróð­ur­húsa­loft­teg­undum verið hleypt út í and­rúms­loftið. Það er ekki svo ein­falt að hægt sé að draga þá ályktun að annað sé orsök fyrir hinu. Við vitum að það er ákveðin hugs­ana­villa að þegar tveir hlutir fara saman þá sé þar af leið­andi orsaka­sam­hengi þarna á milli. Það er ekki þannig.“

Þannig ætti að koma okkur veru­lega á óvart ef allt í einu 100 pró­sent vís­inda­manna væru sam­mála um þessi mál. „Ég myndi segja að 97 pró­sent sé nokkurn veg­inn það hlut­fall sem sem við ættum að búast við að segði að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum ef lofts­lags­breyt­ingar væru af manna­völdum.“

Þetta er eitt­hvað sem ger­ist oft með sér­fræð­inga, að fólk dregur fram þá sem hentar þeirra mál­stað. Ég hef veru­legar áhyggjur af þessu og tel ég að við ættum að breyta því hvernig við hlustum á sér­fræð­inga.

Finnur segir að mjög algengt sé að fólk noti þessi þrjú pró­sent sem eru ósam­mála heild­inni sem for­sendu fyrir eigin skoð­unum. „Þetta er eitt­hvað sem ger­ist oft með sér­fræð­inga, að fólk dregur fram þá sem hentar þeirra mál­stað. Ég hef veru­legar áhyggjur af þessu og tel ég að við ættum að breyta því hvernig við hlustum á sér­fræð­inga,“ segir hann. Í stað þess að leita eftir skoð­unum ein­stakra sér­fræð­inga ættum við að spyrja okkar hvað sér­fræð­ing­arnir á til­teknu sviði eru flestir sam­mála um. Það sé miklu áreið­an­legri leið­ar­vísir að því hvað sé satt á við­kom­andi sviði.

„Í þessu til­felli eru 97 pró­sent lofts­lags­vís­inda­manna á því að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum og ég held að við ættum ekki að hlusta sér­stak­lega á neinn af þeim sem mynda þessi þrjú pró­sent. Við ættum frekar að horfa á það að nán­ast allt annað lofts­lags­vís­inda­fólk er sam­mála um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum. Það er miklu meira upp­lýsandi í almennri og opin­berri umræðu um öll mál. Lofts­lags­breyt­ingar eru mjög gott dæmi um þetta,“ segir hann.

Ótækt að vísa í einstakar rannsóknir

Þetta á þó ekki ein­ungis við um risa mál á borð við lofts­lags­breyt­ingar heldur ýmiss konar rann­sóknir sem til að mynda rata í fjöl­miðla, að mati Finns. Hvað gerir súkkulaði fyrir lík­amann og hvað ekki? Hvaða áhrif hefur rauð­vín á lang­lífi? Í fjöl­miðlum má sjá hinar ýmsu rann­sóknir um hitt og þetta en þá er iðu­lega vísað í ein­stakar rann­sóknir. Finnur telur þetta vera ótækt. „Þarna er verið að taka ein­staka vís­inda­menn sem hafa gert eina rann­sókn sem virð­ist stað­festa ein­hverja kenn­ingu en það er vel vitað innan vís­ind­anna sjálfra að ein rann­sókn segir okkur oft mjög lítið. Það er aftur á móti ekk­ert að því að gera ein­staka rann­sóknir og birta nið­ur­stöð­urnar en að það að treysta ein­stökum rann­sóknum er sjaldan ekki góð leið til að mynda sér skoð­anir. Og vís­inda­menn gera það almennt séð ekki sjálfir,“ segir hann.

Finnur bendir á að vís­inda­menn lesi þá rann­sókn sem þeir gera og fram­kvæmi síðan fleiri. Svona haldi þetta áfram nægi­lega lengi til þess að kom­ast í þá aðstöðu að geta haldið ein­hverju fram með nægi­legri vissu. Oft séu rann­sóknir sem ein­hver hefur hag að því í að birta settar fram í fjöl­miðlum með þessum hætti. „Það er svo mis­vísandi því við vitum að það er oft lík­legt að þessi ein­staka rann­sókn hafi verið gölluð eða nið­ur­staðan hrein­lega til­viljun. Lang­flestar rann­sóknir eru þannig að hægt er að fá nið­ur­stöðu sem er mis­vísandi. Það er ein­fald­lega eðli vís­inda og ger­ist reglu­lega. Þess vegna held ég að betra sé að ein­blína ekki á ein­staka rann­sóknir heldur eigum við að skoða hverjar sam­stöðu­skoð­anir sér­fræð­inga á hverju sviði séu orðnar að loknum fleiri rann­sóknum.“

Hann segir að stundum sé þetta marg­slungið og erfitt að segja til um vegna þess að stundum sé ein­fald­lega ekki búið að taka saman hver skoðun meiri­hluta vís­inda­manna sé á ákveðnum sviðum á til­teknu efni. Finnur telur að ákveðin hreyf­ing í þessa átt sé farin að eiga sér stað, það er að skoða hvað meiri­hluti vís­inda­manna hefur um ein­hver ákveðin mál­efni að segja. „Þá erum við með vís­inda­sam­fé­lög sem taka saman hver afstaða vís­inda­manna á því sviði er. Ég held að það sé allt af hinu góða og þurfi að halda áfram í þá átt.“

Sérfræðingar þurfa einnig að axla ábyrgð

Það getur verið gríð­ar­lega erfitt fyrir fólk að mynda sér skoðun á flóknum mál­efnum enda getur hver ein­stak­lingur ekki verið sér­fræð­ingur í öllu. Hver ein­stak­lingur þarf því að treysta því sem sér­fræð­ing­arnir segja en hverjum á þá að trúa og treysta?

Finnur segir að við þurfum sem sam­fé­lag að átta okkur á því að það sé ekki sér­stak­lega snið­ugt að treysta ein­stökum sér­fræð­ingum. „Það getur verið verra en ekk­ert, því miður, því við­kom­andi sér­fræð­ingur getur verið í and­stöðu við þá almennu afstöðu sem ríkir á við­kom­andi sviði. Hins vegar er hægt að kom­ast hjá þessum vanda með því að biðja sér­fræð­inga um að greina frá því hver sé almenn afstaða sér­fræð­inga á við­kom­andi sviði frekar en þeirra eigin afstöðu. Að sama skapi ber sér­fræð­ingum skylda til að upp­lýsa um meiri­hluta­skoð­anir á sínu sér­fræð­inga og þá mögu­lega greina frá því af hverju þeir séu sjálfir ósam­mála meiri­hluta­skoð­un­inni.“

Þannig verði sér­fræð­ingar að axla ábyrgð. Þeir þurfi að átta sig á þessu vanda­máli og tjá sig öðru­vísi þegar þeir eru spurðir álits.

Ég hef mínar skoð­anir sem ég tel að séu réttar en stundum þarf maður að stíga til baka og átta sig á því að það gæti verið að hluta til vegna þess að maður tekur eftir því sem styður manns eigin skoð­anir og horfir fram­hjá hinu.
Finnur Dellsén
Finnur Dellsén

Höfum tilhneigingu til að halda að við séum klárari en við erum

Hvað almenn­ing varðar þá telur Finnur að við þurfum að hugsa öðru­vísi þegar sér­fræð­ingar tala. „Þegar sér­fræð­ingar sem koma fram í fjöl­miðlum eru ósam­mála hættir okkur stundum til að draga þá ályktun að það séu skoð­anir á báða bóga og að þá sé best að vera þarna ein­hvers staðar inn á milli. Gera ein­hverja mála­miðlun eða fresta því að taka afstöðu. Vandinn er hins vegar sá að það er nán­ast alltaf hægt að finna sér­fræð­ing sem er á önd­verðum meiði við það sem aðrir sér­fræð­ingar eru lang­flestir sam­mála um. Þar af leið­andi ættum við maður ekki að draga miklar álykt­anir af því að til séu sér­fræð­ingar sem eru á önd­verðum meiði.“

Hann segir að við höfum öll til­hneig­ingu til að halda að við séum aðeins klár­ari en við raun­veru­lega erum, og teljum að við getum metið hin og þessi rök til að kom­ast að nið­ur­stöðu.

„Ég tel að það sé oft einmitt ekki þannig og sér­stak­lega þegar mál­efnin eru orðin mjög flókin. Þá verður maður að sýna ákveðna auð­mýkt. Oft stjórn­umst við af ýmiss konar sál­fræði­legum skekkjum, til dæmis eigum við það öll til að taka betur eftir gögnum eða nið­ur­stöðum sem styðja okkar skoð­anir heldur en gögnum sem ganga gegn því sem við trúum nú þegar. Um leið og maður man það, ef hægt er að rifja það reglu­lega upp með sjálfum sér, þá er kannski hægt að passa sig á því að vera ekki jafn kok­hraustur um ágæti eigin skoð­ana. Ég við­ur­kenni það fús­lega að þetta á við um mig líka. Ég hef mínar skoð­anir sem ég tel að séu réttar en stundum þarf maður að stíga til baka og átta sig á því að það gæti verið að hluta til vegna þess að maður tekur eftir því sem styður manns eigin skoð­anir og horfir fram­hjá hinu.“

Hverjir eru raunverulegir sérfræðingar?

Finnur telur enn fremur að fjöl­miðlar hafi ákveðnu hlut­verki að gegna í þessu öllu saman. „Þeir þyrftu kannski að hafa í huga hversu mis­vísandi það getur til dæmis verið að leita til sér­fræð­inga úr þessum þremur pró­sentum í lofts­lags­málum sem eru í minni­hluta um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum. Að draga fram þeirra afstöðu getur verið verra en ekk­ert þegar það gefur svona mis­vísandi mynd af stöðu þekk­ingar á þessu sviði.“

Einnig er algengt að reynt sé að draga fram fólk sem nýtur virð­ingar af ólíkum ástæðum til að ljá mál­staðnum rödd sína, sem er því miður öfl­ugt áróð­urs­bragð í mörgum til­vikum.

Jafn­framt segir hann að mik­il­vægt sé velta því fyrir sér hverjir séu raun­veru­legir sér­fræð­ingar á ólíkum sviðum. Til að mynda séu ekki allt raun­vís­inda­fólk með sér­fræði­þekk­ingu í lofts­lags­vís­indum, heldur séu fræð­ing­arnir fyrst og fremst þeir sem stundi rann­sóknir á svið­inu. „Ég hef tekið eftir því að í áróð­urs­mynd­böndum og greinum eftir afneit­un­ar­sinna er oft gefið í skyn að ýmsir aðrir en lofts­lags­vís­inda­fólk séu sér­fræð­ingar, til dæmis í krafti þess að vera menntað í raun­vís­indum. Einnig er algengt að reynt sé að draga fram fólk sem nýtur virð­ingar af ólíkum ástæðum til að ljá mál­staðnum rödd sína, sem er því miður öfl­ugt áróð­urs­bragð í mörgum til­vikum,“ segir hann.

Þannig sé ekki rétt hjá fjöl­miðlum að setja fram tvær hliðar eins og hlut­leysi sé þeirra á milli því alveg ljóst sé, til dæmis í til­felli er varðar lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum, að svo sé ekki. „Frekar á að reyna að setja fram þau vís­indi sem eru rétt eða sem við höfum ástæðu til að halda að séu rétt,“ segir Finnur. Þá þurfi að aðgreina vel hverjir séu sér­fræð­ingar og hverjir ekki – og hverjir séu fengnir til að end­ur­spegla ein­hverja ákveðna skoðun í sam­fé­lag­inu.

Fólk velur sér upplýsingar sem staðfestir þeirra skoðanir

Varðandi þær nýju þekk­ing­ar­gáttir, ef svo mætti kalla, sem komið hafa með sam­fé­lags­miðlum á síð­ustu ára­tugum, þá flæk­ist enn meira í hugum fólks hvað sé satt og rétt og hvað ekki. Hvernig hefur fólk mögu­leika á því að vita hvað sé satt þegar upp­lýs­ing­arnar koma úr hinum ýmsu áttum og þegar hver og ein­stak­lingur er í sinni „sam­fé­lags­miðla-kúlu“?

Finnur bendir í þessu sam­hengi á að hér áður fyrr hafi fólk leitað til sömu upp­lýs­inga­veitna í miklu meira mæli en núna. Þá hafi upp­lýs­ingar komið frá til að mynda Rík­is­út­varp­inu og Morg­un­blað­inu og nokkrum öðrum fjöl­miðlum en fyrir ekki svo löngu hafi orðið gíf­ur­leg fjölgun fjöl­miðla. Nú sé það að miklu leyti stjórn­mála­skoð­anir okkar sjálfra sem móti það hvaðan við fáum upp­lýs­ingar.

„Þannig að það vantar þennan sam­eig­in­legu upp­lýs­inga­veitur og þá getum við ekki lengur tekið ákvarð­anir og myndað okkur skoð­anir út frá sömu gögn­unum. Ein afleið­ingin þessa er pól­aris­er­ing þar sem ólíkir hópar fólks fær­ast sífellt fjær hver öðrum. Fólk hefur þá mjög sterkar skoð­anir á ein­hverjum ákveðnum mál­efnum og hægt og rólega velur það sér þær upp­lýs­ingar sem stað­festa þeirra skoð­anir enn frekar. Það velur sér þar af leið­andi upp­lýs­inga­veitur og fjöl­miðla sem gera slíkt hið sama.“

Finnur segir að það sem er sér­stak­lega áhuga­vert og vand­með­farið í þessum mál­efnum sé að fæstir af þeim sem haga sinni upp­lýs­inga­leit með þessum hætti geri það með óábyrgum hætti. „Ef við teljum til dæmis að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum þá hlustum við ekki á ein­hverja miðla sem halda öðru fram. Það eru bara eðli­leg við­brögð. Ég met áreið­an­leika heim­ilda minna eftir því hvað fjöl­mið­ill­inn segir um aðra hluti. Það sama ger­ist hinum megin hjá þeim sem til dæmis segja að lofts­lags­breyt­ingar séu ekki af manna­völdum, og þar af leið­andi skilj­ast þessir heimar þá hægt og rólega að – án þess að nokkur sé sér­stak­lega að haga sér óábyrgt – og verða ein­hvern veg­inn algjör­lega sund­ur­lægir.“

Í verri aðstöðu til að verja okkur fyrir fjársterkum aðilum

Finnur segir rök­ræður á net­inu um bólu­setn­ingar gott dæmi um það hvernig falskar upp­lýs­ingar fari eins og eldur í sinu manna á milli. Þá sé oft ekki hlustað á sér­fræð­inga heldur sé skoð­unum um mál­efnið frekar deilt á sam­fé­lags­miðlum og margir taki mark á þeim. Með til­komu sam­fé­lags­miðla séum við enn fremur í sífellt verri aðstöðu til að verja okkur fyrir fjár­sterkum aðilum af ýmsu tagi sem vilja hafa áhrif á skoð­anir okkar. Nú sé þetta orð­inn iðn­aður til að stjórna því hvaða skoð­anir við höfum í gegnum sam­fé­lags­miðla.

En hverjum á þá að treysta? „Ég held að það séu engar algildar reglur hvernig við eigum að haga okkur í þessu. En þó er hægt að fara eftir nokkrum þum­al­putta­reglum. Í fyrsta lagi eigum við að spyrja hvort grun­sam­lega mikil sam­staða sé um eitt­hvað meðal sér­fræð­inga á til­teknu sviði. 100 pró­sent sam­staða er ekki góðs viti, eins og ég sagði áðan, en mik­il­vægt er þó að meiri­hluta­sam­staða sé um nið­ur­stöður. Til dæmis er ekki nægi­lega mikið að 50 pró­sent sam­staða sé um eitt­hvað mál­efni. Í öðru lagi er vert að spyrja sig hvort ein­hverjir hags­munir liggi að baki afstöðu sér­fræð­inga,“ bendir hann á.

Hluti af gagn­rýnni hugsun á að vera gagn­rýnið traust. Hluti af trausti er að leyfa öðrum að hafa áhrif á sig, til dæmis í krafti þess að vera sér­fræð­ingar.

Í þriðja lagi sé hægt að horfa til þess hvort sér­fræð­ing­arnir komi úr mis­mun­andi áttum eða komi úr mjög eins­leitum hóp. „Þarna er hægt að líta á bak­grunns­þekk­ingu og aðferða­fræð­ina sem þeir nota og annað slíkt. Þá getur maður reitt sig á að fjöl­breyttar aðferðir hafi verið not­aðar til að prófa kenn­ingu.“ Þess vegna telur Finnur það mik­il­vægt að vís­inda­menn og fræði­menn séu með fjöl­breyttan bak­grunn, til dæmis með til­liti til kyns og stéttar. Það geri vís­indin meira trausts­ins verð.

Líkt og margir aðrir íslenskir heim­spek­ingar hefur Finnur skrifað um gagn­rýna hugsun og hlut­verk hennar en hann telur gagn­rýna hugsun að vissu leyti ofmetna. „Því miður getum við ekki myndað okkur upp­lýstar skoð­anir á öllu sjálf, því við höfum ein­fald­lega ekki for­sendur til þess. Í vissum skiln­ingi þurfum ekki að vera betri í því að hugsa gagn­rýnið, það er ekki stærsta vanda­málið núna. Stærsta vanda­málið er hvernig við ætlum að treysta gagn­rýnið, frekar en að hugsa gagn­rýnið. Eða rétt­ara sagt: Hluti af gagn­rýnni hugsun á að vera gagn­rýnið traust. Hluti af trausti er að leyfa öðrum að hafa áhrif á sig, til dæmis í krafti þess að vera sér­fræð­ingar. Þannig þurfum ekki endi­lega að mynda okkur upp­lýsta afstöðu sjálf, heldur getum við gert það í gegnum sér­fræð­ing­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár