Héraðsdómur fer langleiðina með að klára handritið að Stím-bíómyndinni

Stím-málið er eitt þekktasta hrun­málið og saga þess er prýði­legur efni­viður í þræl­spenn­andi bíó­mynd. Í dag voru þrír menn dæmdir til fang­els­is­vistar vegna sinnar aðkomu að því.

Þrír menn voru í dag dæmdir til þungrar fang­els­is­vistar vegna aðkomu þeirra að hinu svo­kall­aða Stím-máli í hér­aði. Lárus Welding, fyrrum for­stjóri Glitnis, hlaut þyngstan dóm, fimm ára fang­els­is­vist. Verði dóm­ur­inn stað­festur í Hæsta­rétti, en honum verður án vafa áfrýjað þangað, munu allir þrír for­stjórar stærstu banka Íslands fyrir hrun sitja í fang­elsi á sama tíma. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, hefur þegar hlotið nokkra dóma og afplánar sem stendur á Kvía­bryggju. Sigurjón Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­banka Íslands, var dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti vegna aðkomu sinnar að Ímon-mál­inu svo­kall­aða.

Auk Lárusar hlutu þeir Jóhannes Bald­urs­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta hjá Glitni, tveggja ára fang­elsi og Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Saga Capital, átján mán­aða fang­els­is­dóm í Stím-mál­inu. Jóhannes hafði áður hlotið þriggja ára fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti fyrr í þessum mán­uði í svoköll­uðu BK-47 máli.

Þetta mál er fyrir margar sakir mjög áhuga­vert. Stím-málið var eitt af fyrstu mál­unum tengdum banka­hrun­inu sem rataði í fjöl­miðla í kjöl­far þess. Að mál­inu koma margir af umsvifa­mestu við­skipta- og banka­mönnum þjóð­ar­innar á fyr­ir­hrunsár­unum. Í raun væri hægt að gera fanta­góða bíó­mynd byggða á sögu Stím.

Saga Stím er því reyfara­kennd og til­urð og til­gangur félags­ins er að mörgu leyti lýsandi fyrir það ástand sem ríkti í íslensku við­skipta­lífi mán­uð­ina fyrir banka­hrunið.

Stím verður til í Rússlandi

Byrjum á byrj­un­inni. Þann 14. nóv­em­ber 2007 var til­kynnt um að félag sem hét FS37 ehf. hefði keypt bréf í fjár­fest­inga­fé­lag­inu FL Group og Glitni, banka sem FL Group og tengd félög áttu stærstan hluta í, fyrir sam­tals 24,8 millj­arða króna. Við kaupin eign­að­ist FS37, sem nokkrum dögum síðar breytti nafni sínu í Stím, 4,3 pró­sent hlut í Glitni og 4,1 pró­sent hlut í FL Group. Í dómi hér­aðs­dóms, sem birtur var í dag, kemur fram að Stím-hug­myndin hafi verið rædd og skipu­lögð í ferð yfir­manna Glitnis til Rúss­lands síðla árs 2007.

Lítið sem ekk­ert var vitað um Stím til að byrja með, hverjir stóðu að baki félag­inu eða hvernig það var fjár­magnað. Félagið rataði fyrst í fjöl­miðla á aðfanga­dag 2007 þegar Morg­un­blaðið greindi frá því að yfir­töku­nefnd hefði ákveðið að skoða eign­ar­hald FL Group, sem þá var skráð félag á mark­aði, að lok­inni upp­stokkun og hluta­fjár­hækkun sem þá var nýyf­ir­staðin. Ástæðan var sú að mikil tengsl virt­ust vera á milli stærstu hlut­haf­anna, Baugs-veldis Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, félags Hannesar Smára­sonar, Fons Pálma Har­alds­sonar og ann­arra félaga sem áttu minni hluti. Á meðal þeirra sem talin voru upp í frétt­inni var Stím, sem á þessum tíma var svart­hol í augum almenn­ings. Engin vissi hver átti félagið.

Þó höfðu flestir blaða- og frétta­menn sem störf­uðu við við­skiptaum­fjöllun heyrt sögur af Stími fyrir banka­hrun. Að það hefði verið búið til í kringum snún­ing sem átti að skera FL Group og Glitni niður úr snöru. Bréfin sem Stím keypti hefðu verið keypt af Glitni og bank­inn sat uppi með þau á veltu­bók sinni. Enginn mark­aður hafði verið fyrir bréfin á því verði sem Stím greiddi fyrir þau og til­gang­ur­inn var alltaf sagður sá að „hífa upp“ verðið á Glitni og stærsta eig­anda bank­ans, FL Group. Ef það tæk­ist ekki myndi fara illa fyrir báðum. Sem á end­anum varð raunin.

Afar illa gekk hins vegar að fá nokk­urt stað­fest um málið. Það var fyrst í Silfri Egils 21. sept­em­ber 2008, þegar Lárus Welding var gestur þátt­ar­ins að efn­is­lega var rætt um Stím á opin­berum vett­vangi. Þá spurði þátta­stjórn­and­inn Egill Helgason Lárus um orðróm um lán Glitnis til Stím. Lárus svar­aði því til að Stím væri „eflaust einn af okkar við­skipta­vinum“.

Átta dögum eftir við­talið féll Glitnir og íslenska banka­hrunið hófst form­lega.

Nennti ekki að tala um Stím

Einu upp­lýs­ing­arnar sem hægt var að nálg­ast um Stím voru þær að stjórn­ar­for­maður félags­ins væri skráður útgerð­ar­mað­ur­inn Jakob Valgeir Flosason frá Bol­ung­ar­vík, og að félagið væri skráð á sama heim­il­is­fang og fjár­fest­inga­bank­inn Saga Capital á Akureyri.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið 20. nóv­em­ber 2008 sagði Jakob Valgeir að hann vildi ekk­ert segja um málið. „Ég er búinn að taka ákvörðun um að tjá mig ekk­ert um þetta félag. Ég nenni ekk­ert að segja já eða nei. Ég sé engan hag í að tjá mig um þetta félag“. Í sömu frétta­skýr­ingu var greint frá því að Saga Capital veitti heldur engar upp­lýs­ingar um félagið.

Þremur dögum síðar skrif­aði Agnes Braga­dóttir frétta­skýr­ingu í Morg­un­blaðið þar sem ýmsar ítar­legar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Glitnis til Stím voru opin­ber­aðar og tor­tryggðar.

Þar sagði meðal ann­ars: „Það voru nokkrir „stór­laxar“ úr hópi stærstu hlut­hafa í FL Group, þeir Jón Ásgeir Jóhann­es­son fyrir Baug, Hannes Smárason fyrir Oddaflug og einn eða tveir aðrir, sem ákváðu á leyni­fundi í októ­ber í fyrra­haust, að nú þyrftu þeir að taka höndum saman, stofna félag, kaupa upp þau fáu bréf í FL sem voru raun­veru­lega á mark­aði og ná þannig að halda uppi gengi bréfa FL sem hafði ekki gert neitt annað en að hríð­falla[...]FS 37 ehf var stofnað „í sam­vinnu við" Jakob Valgeir Flosason. Glitnir lán­aði tæpa 20 millj­arða til félags­ins, sem not­aði rúma 8 millj­arða til þess að kaupa upp hið litla bréfa­magn í FL sem var í umferð og um leið var keyptur hluti í Glitni, í sama til­gangi, þ.e. að halda uppi gengi á fallandi bréfum í Glitni. Við þessa afgreiðslu Glitnis á láni til leyni­fé­lags­ins FS37 ehf., sem skömmu síðar var breytt í Stím ehf., fór allt á fleygi­ferð meðal starfs­manna Glitnis, sem höfðu ein­hverjar hug­myndir um lán­veit­ing­una. Það átti jafnt við um yfir­menn sem almenna starfs­menn. Þeir telja alveg ljóst að aldrei hafi nokkrar ábyrgðir verið lagðar fram vegna þess­arar lán­veit­ingar, ekk­ert áhættu­mat hafi farið fram og í lána­bókum bank­ans sé ekki að finna nokk­urt nafn sem sé ábyrgt fyrir lán­veit­ing­unni“.

Jón Ásgeir hvattur til að fara í meiðyrðamál

Jón Ásgeir brást ókvæða við þessum ávirð­ingum. Í grein eftir hann sem birt­ist í Frétta­blað­inu strax í kjöl­farið, sem bar heitið „Órök­studdar dylgjur“, sagði Jón Ásgeir að það hafi verið „tóm þvæla“ að hann hafi stofnað til Stíms ehf. „Það stendur ekki steinn yfir steini í svika­brigslum Agnesar. Það er lík­lega vegna þess að hún hefur ákveðið fyr­ir­fram, eins og hirðin sem hún til­heyrir, að allt sem teng­ist mér og mínum félögum sé tóm spill­ing og svika­mylla. Hugs­an­lega veit Agnes betur, en til­gang­ur­inn helgar með­alið“.

Í sam­tali við Frétta­blaðið mánu­dag­inn 24. nóv­em­ber 2008 ítrek­aði Jón Ásgeir afstöðu sína gagn­vart Stími. „Ég teng­ist því á engan hátt, hef ekki sett krónu í það félag,“ sagði Jón Ásgeir við Frétta­blaðið, sem á þeim tíma var í eigu hans, en er nú í aðal­eigu eig­in­konu hans. Jón Ásgeir sagð­ist einnig hafa íhugað að fara í mál við Agnesi Braga­dóttur vegna frétta­flutn­ings­ins. „Lög­fræð­ingar hafa haft sam­band við mig í dag og sagt að ég eigi mik­inn rétt í þessu máli“.

Ekki leynifélag, en samt leynifélag

Þann 29. nóv­em­ber 2008 sendi Jakob Valgeir, skráður stjórn­ar­for­maður Stím, síðan frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem hann hann upp­lýsti um hverjir það voru sem stóðu að Stími, hvernig félagið var fjár­magnað og hvað það gerði. „Stím ehf. er ekki leyni­fé­lag. Fé­lagið var myndað af hópi fjár­festa og í einu og öllu var stofnað til þess sam­kvæmt ís­lensk­um lög­um. Því hef­ur verið haldið fram að ég hafi fengið greitt fyr­ir að ljá fé­lag­inu nafn mitt. Þetta er al­farið rangt og ég setti eig­in fjár­muni í Stím ehf.[...] Ég hefði viljað kom­ast hjá því að tjá mig op­in­ber­lega um mín per­sónu­legu fjár­mál en tel mig til­neydd­an til þess eft­ir þær rang­færsl­ur sem ít­rekað hafa verið sett­ar fram. Ég óska jafn­framt eft­ir því að einka­líf mitt og minn­ar fjöl­skyldu njóti þeirr­ar frið­helgi sem al­mennt er talið eðli­legt,“ sagði meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

Það sem vakti mikla athygli í til­kynn­ingu Jakobs Valgeirs var að þar kom fram að félag í eigu Glitnis ætti þriðj­ung í Stími. Glitnir hafði því stofnað félag, haft frum­kvæði að því að fá fjár­festa inn í það, lánað því á þriðja tug millj­arða króna til að kaupa hluta­bréf í sjálfum sér og stærsta eig­anda sínum, tók ein­ungis veð í bréf­unum sjálfum og átti áfram stóran hlut í félag­inu.

Allir töpuðu nema Saga Capital

Innihald Stím-við­skipt­anna var síðan rakið ítar­lega í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem kom út í apríl 2010. Þar kom fram, án nokk­urs vafa, að til­bún­ingur Stím og fjár­mögnun var til umfjöll­unar á áhættu­nefnd­ar­fundum hjá Glitni síð­ari hluta nóv­em­ber­mán­aðar 2007, skömmu eftir Rúss­lands­ferð yfir­manna bank­ans.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í nóv­em­ber 2010 að Saga Capital, sem var einn fjár­fest­anna í Stími, hafi fengið þau lán sem bank­inn setti inn í Stím greidd að fullu til baka. Það gerð­ist með því að fag­fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn GLB FX, sem var í vörslu Glitnis, keypti skulda­bréf af Saga Capital sem útgefið var af Stími, í ágúst 2008.

Stím varð gjald­þrota og skiptum á búi þess lauk í sept­em­ber 2014. Lýstar kröfur í bú félags­ins voru rúm­lega 24 millj­arðar króna. 0,06 pró­sent fékkst upp í kröf­urnar. Slita­stjórn Glitnis átti nær allar kröf­urnar, og þar af leið­andi tapið.

Sjóður látinn kaupa verðlaust bréf

Í febr­úar 2014 dúkk­aði Stím aftur upp í íslenskri umræðu, nú vegna þess að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafði birt þremur mönnum: Lárusi Welding, Jóhann­esi Bald­urs­syni og Þorvaldi Lúðvík Sig­ur­jóns­syni, ákæru vegna við­skipta félags­ins.

Lárus Welding var ákærður fyrir umboðs­svik í tveimur liðum vegna lán­veit­inga Glitnis til Stím sem áttu sér stað í nóv­em­ber 2007 og í jan­úar 2008, en hann var for­stjóri Glitnis á þeim tíma.

Jóhannes og Þor­valdur Lúðvík, sem hafa verið vinir frá því að þeir voru ungir menn, voru ákærðir vegna kaupa fag­fjár­festa­sjóðs­ins GLB FX á víkj­andi skulda­bréfi af Saga Capital í ágúst 2008. Saga hafði lánað Stím millj­arð króna en þegar ljóst varð að Stím var komið með nei­kvætt eigið fé setti Þor­valdur Lúðvík mik­inn þrýst­ing á Glitni að kaupa af sér skulda­bréfið.

Það var loks gert í ágúst 2008, skömmu fyrir banka­hrun, og öll upp­hæðin auk vaxta end­ur­greidd til Sögu Capital. Hún nam um 1,2 millj­arði króna. Í ákæru máls­ins segir að með því hafi tap vegna Stím verið fært af Sögu Capital yfir á þá sem áttu hlut­deild í sjóðnum. Þar á meðal voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Í dómi hér­aðs­dóms í dag segir að dóm­ur­inn telji ein­sýnt að „ákærðu Jóhannes og Þor­valdur hafi í sam­ein­ingu unnið að því að Saga Capital fjár­fest­ing­ar­banki hf. yrði ekki fyrir fjár­hags­legu tjóni vegna lán­veit­ingar sinnar til Stíms ehf.[...] . Í þeim ráða­gerðum hafi komið upp sú hug­mynd að GLB FX fag­fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn, sem vistaður var hjá Glitni banka hf. sam­kvæmt sér­stökum samn­ingi og starfs­menn mark­aðsvið­skipta önn­uð­ust fjár­fest­ingar fyrir, yrði kaup­andi að skulda­bréf­inu. Þegar þeim hug­myndum var hrint í fram­kvæmd hafði bréfið tak­markað ef nokkuð verð­gildi, svo sem end­ur­skoð­endur Sögu Capital fjár­fest­ing­ar­banka hf. höfðu fært í vinnu­bækur sínar. Það var einnig við­horf ákærða Þor­valdar sam­kvæmt því er hann rit­aði í vinnu­dag­bók sína 11. des­em­ber 2007.[...] [Magnús Pálmi] hefur lýst því að ákærði Jóhannes hafi þrýst mjög á sig um að GLB FX fag­fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn myndi kaupa umrætt skulda­bréf. Hafi ákærði Jóhannes verið búinn að lofa Sögu Capital fjár­fest­ing­ar­banka því“.

Þar segir einnig að mönn­unum tveimur, Jóhann­esi og Þorvaldi Lúðvík, hafi verið full­ljóst að bréfið var verð­lítið eða verð­laust þegar það var keypt á fullu verði af Saga Capital af sjóði sem átti aldrei að kaupa slík bréf.

Neituðu allir sök

Mála­rekstur í Stím-mál­inu fór síðan fram í nóv­em­ber síð­ast­liðnum fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Kjarninn birti þá grein­ar­gerð Lárusar Welding í mál­inu, þar sem hann hafnar því að hafa brotið lög í mál­inu og lög­maður hans gagn­rýnir mála­til­búnað sér­staks sak­sókn­ara harka­lega.

„Sam­an­tekið þá er rangt að ákærði hafi staðið að þeirri lán­veit­ingu sem ákært er vegna á allt öðrum for­sendum en sam­þykkt hafi verið í áhættu­nefnd bank­ans. Í ákæru er bein­línis lagt til grund­vallar að áhættu­nefnd bank­ans hafi tekið ákvörðun um að veita lánið. Ekki hefur verið gert lík­legt að lán­veit­ingin hafi falið í sér brot gegn ákvæðum í lána­reglum Glitnis um trygg­ingar. Nettó fjár­streymi til Glitnis vegna Stím-við­skipt­anna var jákvætt um a,m,k. 2.350 millj­ónir króna. Ákvörðun um að lána Stím var ótví­rætt til þess fallin að draga úr fjár­hags­legri áhættu bank­ans og bæta eig­in­fjár­stöðu hans. Ákæru­valdið hefur ekki með neinu móti gert senni­legt að ákvörð­unin, sem háð var við­skipta­legu mati ákærða og ann­arra nefnd­ar­manna í áhættu­nefnd, hafi verið ófor­svar­an­leg,“ segir meðal ann­ars í sam­an­tekt­ar­orðum í grein­ar­gerð­inni.

Jóhannes og Þor­valdur Lúðvík neit­uðu einnig báðir sök.

Lykilvitni samdi sig frá ákæru

Rétt­ar­höldin voru að mörgu leyti ótrú­leg, og for­dæma­laus. Reimar Pét­urs­son, verj­andi Jóhann­esar, stal að öðrum ólöst­uðum sen­unni með sókn sinni að lyk­il­vitni í mál­inu, Magnúsi Pálma Örn­ólfs­syni.

Magnús Pálmi var yfir­maður eigin við­skipta hjá Glitni og und­ir­maður Jóhann­esar. Hann er líka einn tveggja manna sem hafa fengið rétt­ar­vernd gegn ákæru í hrun­málum þar sem fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar benda til þess að þeir hafi brotið af sér, gegn því að veita sak­sókn­ara upp­lýs­ingar sem styrki mála­til­búnað hans.

Rétt­ar­verndin byggir á lögum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara frá árinu 2008 þar sem er að finna svo­kallað upp­ljóstr­ar­a­á­kvæði. Þar segir að skil­yrði fyrir veit­ingu rétt­ar­verndar séu að „talið sé lík­legt að þessar upp­lýs­ingar eða gögn geti leitt til rann­sóknar eða sönn­unar á broti eða séu mik­il­væg við­bót við fyr­ir­liggj­andi sönn­un­ar­gögn. Þá er það skil­yrði fyrir beit­ingu þess­arar heim­ildar að rök­studdur grunur sé um að upp­lýs­ingar eða gögn teng­ist alvar­legu broti, fyr­ir­séð sé að sök þess sem lætur slíkt í té sé mun minni en sök þess eða þeirra sem gögnin eða upp­lýs­ing­arnar bein­ast gegn og ástæða sé til að ætla að án þeirra muni reyn­ast tor­velt að færa fram full­nægj­andi sönnur fyrir broti“.

Orðnir hræddir í desember 2009

Ljóst var strax á árinu 2009 að menn­irnir sem tengd­ust mál­inu voru orðnir hræddir um að það gæti haft afleið­ingar fyrir þá. Magnús Pálmi fór til að mynda og hitti Jóhannes í des­em­ber á því ári. Í dómi hér­aðs­dóms segir: „Hafi vitnið grunað að þessi við­skipti yrðu til rann­sóknar og spurt ákærða hvernig hann ætl­aði að bregð­ast við mál­inu. Hafi þeir rætt saman um að reyna að verja málið og hvernig púsla mætti því saman. Vitnið hafi í tvígang farið í skýrslu­tökur hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Í þeim yfir­heyrslum hafi vitnið hengt sig á að ekk­ert tjón hefði orðið af við­skipt­unum. Í seinni yfir­heyrsl­unni, sem verið hafi í des­em­ber 2011, hafi vitnið fundið að það hefði ,,tapað“ mál­inu. Ekki hafi verið hægt að verja kaupin á skulda­bréf­inu. Eftir yfir­heyrsl­una hafi vitnið hitt ákærða Jóhannes og sagt honum að því lit­ist ekki á málið. Hafi vitnið eftir þennan fund velt fyrir sér hvort það ætti að breyta fram­burði sínum. Eftir umhugsun hafi vitnið ákveðið að segja eins og var. Hafi það, ásamt verj­anda sínum, óskað eftir fundi með emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara þar sem vitnið hafi sagt að það ætl­aði að segja alla sög­una. Hafi vitnið um leið óskað eftir því að fá að njóta verndar sam­kvæmt 5. gr. laga um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Í fram­haldi hafi vitnið gefið skýrslu 23. nóv­em­ber 2011 þar sem það hafi breytt fyrri fram­burði sínum og sagt eins og var“.

Í dómi hér­aðs­dóms segir reyndar að Magnús Pálmi hafi ekki þótt neitt sér­stak­lega gott vitni. Í tveimur fyrstu yfir­heyrslum sem haldnar voru yfir honum sagði Magnús Pálmi að hann hefði einn tekið þá ákvörðun að kaupa skulda­bréf í eigu Sögu Capital. Hann breytti þeim fram­burði við þriðju yfir­heyrslu og sagði þá að Jóhannes hefði þrýst á sig að kaupa hið verð­lausa bréf. Í dómnum segir: „Líta verður til þess að á því stigi hafði lög­regla kynnt honum gögn sem þóttu leiða í ljós sekt [Magnúsar Pálma]. Á því stigi hafði lög­regla jafn­framt kynnt honum þá til­gátu að til hafi komið þrýst­ingur frá yfir­manni hans um að sam­þykkja kaupin. Svo sem hér greinir hefur [Magnús Pálmi] orðið missaga undir með­förum máls­ins. Dómurinn telur að skoða verði fram­burð [Magnúsar Pálma] í þessu ljósi sem og sönn­un­ar­gildi fram­burðar hans“.

Ásakaður um „furðuviðskipti“

Sak­born­ingar í mál­inu eru samt sem áður ekki að fara að gefa Magnúsi Pálma neinar jóla­gjafir í ár og heiftin sem ríkir í garð hans kom ber­sýni­lega í ljós í rétt­ar­höld­unum í mál­inu. Í end­ur­sögn mbl.is, sem sat allt rétt­ar­haldið, kom fram að Reimar Pét­urs­son, verj­andi Jóhann­esar, hafi ítrekað spurt Magnús Pálma hvort Stím hafi verið notað til að geyma samn­inga sem aðrir áttu að hagn­ast á, eða til að færa yfir tap vild­ar­við­skipta­vina Magnúsar í bank­anum.

Þessir aðrir sem Magnús Pálmi átti að láta hafa hagn­ast voru vinir hans frá Ísafirði og Bol­ung­ar­vík, þeir Ástmar Ingvars­son, Jakob Val­geir Flosa­son og Gunn­ar Torfa­son. Í rétt­ar­höld­unum kom einnig fram að þessi hópur, ásamt Magnúsi Pálma, hafi haldið áfram að starfa saman eftir banka­hrun.

Samkvæmt mbl.is sagði Reimar að Magnús Pálmi hefði gert gjald­miðla­samn­inga upp á marga millj­arða króna þegar hann fékk Stím til skulda­stýr­ingar og gaf sterk­lega í skyn að Magnús Pálmi hefði flutt mik­inn hagnað sem skap­ast hefði hjá Stím vegna stöðu­töku gegn krón­unni yfir á ofan­greinda vini sína og að í stað­inn hafi hann fengið lána­fyr­ir­greiðslu sem ekki hafi verið ætl­unin að greiða til baka. Reimar sagði að samn­ing­arnir sem Magnús Pálmi gerði hefðu verið „furðu­samn­ingar“. Vegna þess að Magnús Pálmi hefði deilt þessum hagn­aði á valda við­skipta­vini hefði Stím farið á mis við 9,7 millj­arða króna inn­eign. „Varstu að kaupa [Stím] skulda­bréfið til að styðja við þessa menn,“ spurði Reim­ar Magnús Pálma sem svar­aði neit­andi.

Hæstiréttur sýknar sjaldnast

Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var samt sem áður afdrátt­ar­laus: menn­irnir þrír eru sekir um það sem þeim var gefið að sök í Stím-mál­inu. Allir þrír dóm­arar máls­ins voru sam­mála um það.

Þeirri nið­ur­stöðu verður án nokk­urs vafa áfrýjað til Hæsta­réttar líkt og siður er fyrir í málum sem þessum en þar hefur ekki verið mikla mis­kunn að finna í þeim hrun­málum sem hingað til hafa ratað þangað. Í þeim sjö stóru hrun­málum sem lokið hefur með dómi Hæsta­réttar hefur ein­ungis verið sýknað í einu, hinu svo­kall­aða Vafn­ings­máli.

Það verður því athygl­is­vert hvernig Hæsti­réttur mun taka á Stím þegar málið ratar þangað og hvort nýr endir verði sam­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár