Að vera félag – eða ekki félag (eða þannig)

Árni B. Helgason fjallar um rétt­hæfi félaga­sam­taka og spyr að hlut­verki opin­berrar stjórn­sýslu.

Skipu­lags­bundin félög falla í tvo meg­in­flokka – þau sem hafa með höndum atvinnu­rekstur og þau sem starfa í ófjár­hags­legum til­gangi. Lögum sam­kvæmt ber hluta­fé­lögum, einka­hluta­fé­lögum og sam­vinnu­fé­lögum ótví­ræð skylda til að skrá sig að réttum hætti í fyr­ir­tækja­skrá og að skila árs­reikn­ingum fyrir hvert liðið rekstr­arár, enda bera öll slík félög tak­mark­aða ábyrgð á rekstri og fjár­munum. Auk þess ber sam­vinnu­fé­lögum rík til­kynn­inga­skylda um fjöl­mörg atriði til sam­vinnu­fé­laga­skrár, ella kann slíkt félag að hafa fyr­ir­gert rétti sínum. Enda bera fá félög jafn tak­mark­aða ábyrgð og einmitt sam­vinnu­fé­lög.

Almenn, skipu­lags­bundin félög og sam­tök telj­ast á hinn bóg­inn vera slíkt sam­ein­ing­ar­band þar sem hópur manna kemur saman í einu nafni – í nafni félags eða félaga­sam­taka – til að ná fram ófjár­hags­legum mark­miðum ein­göngu. Opinber skrán­ing er ekki endi­lega skil­yrði fyrir rétt­hæfi þeirra en á hinn bóg­inn öðl­ast þau ekki kenni­tölu og þar með heim­ild til stofn­unar við­skipta­reikn­ings nema að vera skráð í fyr­ir­tækja­skrá. Sem dæmi um slík félög má nefna stjórn­mála­flokka, íþrótta­fé­lög, skák­fé­lög, ung­liða­hreyf­ingar, félög eldri borg­ara, fag­fé­lög, stétt­ar­fé­lög, sam­tök vinnu­veit­enda, mann­úð­ar­fé­lög, trú­fé­lög og menn­ing­ar­fé­lög af ýmsu tagi.

Um rétthæfi ranglega skráðs byggingarsamvinnufélags

Atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið fer með mál er varða félaga­rétt vegna atvinnu­rekstrar. Engu að síður er það vel­ferð­ar­ráðu­neytið, félags­mála­ráðu­neytið, sem fer með mál­efni bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­laga að svo miklu leyti sem varðar sam­þykktir þeirra, en sam­þykktir félags jafn­gilda í raun lögum félags. Öðlast bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag ekki rétt­hæfi, sem slíkt félag, og fær ekki heim­ild til opin­berrar skrán­ingar, sem slíkt félag, fyrr en ráðu­neytið hefur stað­fest sam­þykktir þess, m.ö.o stað­fest að sam­þykkt­irnar brjóti ekki í bága við lög, hvort sem er lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög, lög um sam­vinnu­fé­lög eða önnur lög.

Hvert er þá rétt­hæfi slíks félags ef sam­þykktir þess brjóta í ýmsum greinum gegn gegn lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög og sam­vinnu­fé­lög? Og það þrátt fyrir að hafa hlotið stað­fest­ingu ráðu­neytis, ítrekað og ára­tugum saman, líkt og emb­ætt­is­menn hafi ljáð sam­þykkt­unum stimpil ráðu­neyt­is­ins í blindni og þar með við­ur­kenn­ingu ráð­herra? Og hve bætir það rétt­hæfi slíks félags ef það hefur ára­tugum saman hvorki sinnt því að færa sam­þykktir sínar til rétts vegar, sam­kvæmt lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög og sam­vinnu­fé­lög, og fá lög­lega stað­fest­ingu ráðu­neytis sam­kvæmt því, né heldur að skrá félagið sem slíkt, að réttum hætti, í fyr­ir­tækja­skrá, og skila árs­reikn­ingum lögum sam­kvæmt, hvað þá heldur að senda sam­vinnu­fé­laga­skrá til­kynn­ingar um stofnun og sam­þykktir og um hinar ýmsu breyt­ingar á stöðu félags­ins, t.d. breyt­ingar á heim­il­is­fangi, stjórn eða sam­þykktum?

Samtök aldr­aðra voru stofnuð á 8. ára­tug síð­ustu aldar og voru ára­tugum saman skráð á meðal almennra, skipu­lags­bund­inna félaga­sam­taka sem starfa í þágu ófjár­hags­legs til­gangs, undir ÍSAT atvinnu­greina­flokk­un­ar­núm­er­inu 94.99.9. Það var fyrst í nóv­em­ber 2015 að félagið var skráð í fyr­ir­tækja­skrá sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, m.ö.o. sem sam­vinnu­fé­lag, enda ber bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lögum að vera skráð sem slíkt félag. Eru stofn­gögn og sam­þykktir félags­skap­ar­ins skráð sama dag, 20. nóv­em­ber 2015, þrátt fyrir að nýj­ustu sam­þykktir á þeim tíma hefðu verið stað­festar af ráðu­neyt­inu tæpum ára­tug fyrr, 3. apríl 2006, og að kennitala félags­ins – 580377-0339 – bendi til stofn­dags nær­fellt fjórum ára­tugum fyrr, eða eigi síðar en 28. mars 1977.

Önnur gögn er ekki að finna í fyr­ir­tækja­skrá (sam­vinnu­fé­laga­skrá) RSK um Samtök aldr­aðra nema til­kynn­ingu um breytt heim­il­is­fang frá árinu 2008, frá því 7 árum fyrir dag­setn­ingu stofn­gagna, og til­kynn­ingu um breyt­ingu á stjórn í nóv­em­ber 2016. Ekki getur þar í neinu nýrra sam­þykkta sem vel­ferð­ar­ráðu­neytið stað­festi þó hinn 28. mars s.l. – nákvæm­lega 40 árum eftir stofndag sam­kvæmt kenni­tölu en um einu og hálfu ári eftir skrá­setn­ingu félags­ins sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags – ekki frekar en að fyr­ir­tækja­skrá greini frá hinum marg­vís­legu til­kynn­ingum sem sam­vinnu­fé­laga­skrá hefði átt að hafa borist á und­an­förum ára­tugum ef Samtök aldr­aðra hefðu verið rekin sem lög­legt bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag. Og þrátt fyrir ótví­ræða skila­skyldu bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­laga sem ann­arra sam­vinnu­fé­laga, þá hafa ein­ungis tveir árs­reikn­ingar, reikn­ings­ár­anna 2015 og 2016, borist árs­reikn­inga­skrá rík­is­skatt­stjóra á sama tíma.

Geta slík sam­tök um full­komið hirðu­leysi kall­ast annað en óskipu­lagður skapn­aður af félagi að vera?

Eða hvert er rétt­hæfi félags­skapar sem ávallt hefur verið rang­lega og ólög­lega skráður og villt á sér heim­ildir gagn­vart almennum félags­mönnum sínum jafnt sem dóm­stólum sem öðrum?

Um réttarstöðu Samtaka aldraðra

Samkvæmt lögum um sam­vinnu­fé­lög ber öllum slíkum félögum, að bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lögum alls ekki und­an­skildum, rík skylda til að til­kynna sam­vinnu­fé­laga­skrá um fjöl­mörg atriði allt frá stofnun þess og hverju sinni sem breyt­ingar verða á form­legum högum félags. Að öðrum kosti skal bein­línis synja félagi skrán­ingar, svo sem m.a. kemur fram á vef fyr­ir­tækja­skrár RSK, með vísun til XII. kafla laga um sam­vinnu­fé­lög, nr. 22/1991, sbr. 62. grein. Skulu til­kynn­ingar ber­ast sam­vinnu­fé­laga­skrá innan mán­aðar frá stofnun eða frá því breyt­ing var gerð, sbr. III. kafla sömu laga. Á þetta m.a. við um heiti félags­ins, heim­ili og varn­ar­þing, til­gang þess og starfs­svið, nýjar eða breyttar félags­sam­þykktir, nöfn, stöðu, heim­il­is­föng og kenni­tölur stjórn­enda, vara­stjórn­enda, end­ur­skoð­enda, skoð­un­ar­manna og fram­kvæmda­stjóra – hvernig öllu sé háttað á hverjum tíma, að breyttu breyt­anda – og þá jafn­framt hver hafi heim­ild til þess að skuld­binda félagið með samn­ingum og hvernig und­ir­skrift sé háttað, hvernig boða skuli félags­mönnun fundi í félag­inu, fjár­hæð aðild­ar­gjalds o.fl.

Þrátt fyrir að félagið hafi staðið að fjöl­mörgum og miklum bygg­inga­fram­kvæmdum um ára­tuga skeið, og átt beinan hlut að sölu nýrra íbúða svo hund­ruðum skiptir og haft afskipti af end­ur­sölu hund­raða íbúða, jafn­vel svo telji nær þús­und, og haldið því stundum að við­skipta­mönnum sínum, verk­tökum jafnt sem félags­mönnum og aðstand­endum þeirra, að það væri bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, m.ö.o. sam­vinnu­fé­lag – og þó því aðeins og þá sjaldan sem for­svars­mönnum hefur þótt það henta – hafa stjórn­ar­menn þess og aðrir for­svar­svars­menn, að lög­mönnum félags­ins, skoð­un­ar­mönnum og end­ur­skoð­endum síst und­an­skildum, trassað algjör­lega að hlíta lögum þeim sem hér eru til umræðu.

Skv. 74. grein laga um sam­vinnu­fé­lög eru stofn­endur, stjórn­ar­menn, fram­kvæmda­stjórar, end­ur­skoð­endur og skoð­un­ar­menn sam­vinnu­fé­lags skyldir til að bæta félag­inu það tjón sem þeir hafa valdið því í störfum sínum hvort sem er af ásetn­ingi eða gáleysi. Sama gildir þegar félags­að­ili eða aðrir verða fyrir tjóni vegna brota á ákvæðum lag­anna eða sam­þykktum félags. Skv. 78. grein sömu laga varðar það sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum að skýra vís­vit­andi rangt eða vill­andi frá högum sam­vinnu­fé­lags eða öðru er það varðar, og skv. 81. grein skal sá sæta sektum eða fang­elsi allt að einu ári sem van­rækir til­kynn­ingar til sam­vinnu­fé­laga­skrár. Hver er þá rétt­ar­staða slíks félags frammi fyrir dóm­stólum?

Í 9. gr. lag­anna er skýrt tekið fram að sam­vinnu­fé­lag skuli skrá­sett sam­kvæmt þeim lögum og að það geti þá fyrst öðl­ast rétt­indi á hendur öðrum aðilum með samn­ingi og aðrir á hendur því. Og er reyndar allur vafi tek­inn af um rétt­ar­stöð­una með þessum orðum: Óskrá­sett sam­vinnu­fé­lag getur ekki verið aðili að dóms­málum.

Í seinni máls­grein sömu laga­greinar er skýrt tekið fram hverjir beri þá ábyrgð­ina, og þá eðli­lega jafnt fyrir dóm­stólum sem á öðrum sviðum: Ef lög­gern­ingur er gerður fyrir hönd óskrá­setts félags bera þeir, sem átt hafa þátt í gern­ingnum eða ákvörð­unum um hann, óskipta per­sónu­lega ábyrgð á efndum.

Loka­setn­ing 9. greinar kveður síðan á um að við skrán­ingu félags, sem sagt sem sam­vinnu­fé­lags, taki það við þeim skyldum sem leiddi af stofn­samn­ingi eða sem félag hefur tekið á sig eftir stofn­fund. En samkv. 11. grein skal stjórn til­kynna það til skrán­ingar innan mán­aðar frá því það var stofnað og samkv. 12. grein allar breyt­ingar á stofn­gögnum og sam­þykktum innan sam­svar­andi tíma. Og samkv. a-hluta 64. greinar 4. tölu­liðar skal bein­línis slíta félag­inu hafi félagið van­rækt að senda sam­vinnu­fé­laga­skrá til­kynn­ingar sem því er skylt sam­kvæmt lög­unum.

Hafi skrán­ing sam­vinnu­fé­lags alls ekki farið fram, svo sem var í til­viki Samtaka aldr­aðra allt frá stofnun sam­kvæmt kenni­tölu árið 1977 til hausts 2015, þegar það var loks­ins skráð sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, þá hlýtur ábyrgð á öllum gjörðum félags­ins, þar sem því hefur verið beitt sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lagi, m.ö.o. sam­vinnu­fé­lagi, verið óskipt og per­sónu­lega á hendi for­svars­manna félags­skap­ar­ins. En þar sem skrán­ingin 2015 var með öllu ólög­leg, svo sem hér mun nánar verða sýnt fram á, þá hefur hún ekk­ert gildi – er ábyrgðin á öllum gjörðum félags­ins því eftir sem áður óskipt og per­sónu­lega á hendi for­svars­manna þess.

Öll dóms­mál sem Bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lagið Samtök aldr­aðra hefur sótt eða hefur verið sótt til saka í, allt frá upp­hafi til dags­ins í dag, eru því ólög­leg og kunna að lúta að rétti til end­ur­upp­töku samkv. lögum um með­ferð einka­mála, nr. 91/1991, eftir atvikum 167. eða 169. grein, enda rétt­hæfi Samtaka aldr­aðra sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags alls ekk­ert – heldur ein­ungis ein­stak­ling­anna sem allt til dags­ins í dag hafa borið ábyrgð á gjörðum hins ólög­lega félags og villt hafa almennum félags­mönnum og ekki síst dóm­stólum sýn á rétt­hæfi og rétt­ar­stöðu félags­ins. Og gildir einu þótt sam­tökin hafi tapað öllum sínum dóms­málum – sök ábyrgð­ar­manna sam­tak­anna er hin sama, jafnt sem lög­manna sam­tak­anna er ekki hafa hikað við að segja ósatt um stöðu þeirra fyrir dómi sem á öðrum vett­vangi, nú sem fyrr.

Um falska réttarstöðu – falskt rétthæfi – fölsk flögg

Samtök aldr­aðra voru upp­haf­lega stofnuð árið 1973 í þeim til­gangi að vinna að marg­vís­legum vel­ferð­ar­málum aldr­aðra, þar á meðal ekki síst að stuðla að bygg­ingu hent­ugra íbúða fyrir eldri borg­ara. Fram til árs­ins 1981 störf­uðu sam­tökin fyrst og fremst að almennum vel­ferða­málum aldr­aðra, að þau hófu þá und­ir­bún­ing að bygg­ingu íbúða á eigin vegum, en hinar fyrstu voru teknar í notkun árið 1984.

Fyrir atbeina sam­tak­anna hefur sann­ar­lega verið unnið stór­virki í bygg­ing­ar­málum aldr­aðra. Það er því þyngra en tárum taki að laga­legur grund­völlur fyrir starf­sem­inni sé svo vafa­samur sem raun ber vitni, hvað þá hve sam­tökin hafa teygt sig langt út fyrir eig­in­legt verk­svið sitt og allan laga­legan ramma með afskiptum sínum af end­ur­sölu íbúða sem reistar hafa verið fyrir atbeina sam­tak­anna.

Fyrst framan af og fram eftir síð­ustu öld voru lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög mjög ströng hvað varð­aði ákvæði um end­ur­sölu íbúða, enda jafn­gilti þá lánsfé að drjúgum hluta nán­ast gjöf. Var það almennt bundið rík­is­á­byrgð til slíkra félaga, en þegar tímar liðu fram með lækk­andi verð­bólgu og frjáls­ari banka­við­skiptum voru ákvæði um end­ur­sölu rýmkuð og hafa þau nú um langt ára­bil ein­ungis falið í sér skorður við end­ur­sölu fyrstu 5 árin – um hríð fyrstu 5 árin frá lokum bygg­ingar en með núver­andi lögum, nr. 153 frá 1998, ein­ungis fyrstu 5 árin frá lóð­ar­út­hlutun, eða sem sam­svarar e.t.v. um 2 til 3 árum frá lokum bygg­ingar. Nær öll bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög eru löngu aflögð og eru nú ein­ungis tvö slík skráð í fyr­ir­tækja­skrá RSK, bæði reyndar undir ÍSAT Atvinnu­greina­flokkun 68.20.1 Leiga íbúð­ar­hús­næðis, svo und­ar­lega sem það kann þó að hljóða.

Um langa hríð var Bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag eldri borg­ara í Garðabæ hið eina slíka félag á skrá eða þar til Samtök aldr­aðra breyttu skrán­ingu sinni haustið 2015 í bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, frá því að vera skráð um ára­tuga skeið sem almennt félag án fjár­hag­legs til­gangs, undir ÍSAT flokk­un­ar­núm­er­inu 94.99.9.

Ljóst má vera og þarf vart vitna við, að Samtök aldr­aðra hafa aldrei leigt út eina ein­ustu íbúð, enda hafa sam­tökin aldrei átt neinar íbúðir nema að því leyti sem þau kunna að hafa verið skráð sem eig­endur að íbúðum í bygg­ingu áður en þær voru seldar félags­mönnum.

Þessi rang­snúni skiln­ingur Samtaka aldr­aðra á hlut­verki sínu sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá þarf þó ekki að koma neinum á óvart sem kynnt hefur sér sögu sam­tak­anna og það ger­ræð­is­lega vald sem stjórn­endur þeirra hafa tekið sér yfir félags­mönnum – og aðstand­endum þeirra eða erf­ingjum þegar á hefur reynt – og þá ekki síst í skjóli sam­þykkta sem brjóta í ýmsum greinum gegn lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög og þá lögum um sam­vinnu­fé­lög jafn­framt, sem nánar mun verða vikið að.

Eðlilega hafa for­svars­menn­irnir borið kinn­roða fyrir að skrá sam­tökin opin­ber­lega undir ÍSAT flokk­un­ar­núm­er­inu 68.31.0 Fast­eigna­miðlun – en til þeirrar greinar telst einmitt starf­semi fast­eigna­sala, milli­ganga við kaup og sölu á fast­eignum gegn þóknun eða sam­kvæmt samn­ingi, auk mats­þjón­ustu o.fl. Þvert ofan í upp­haf­legt mark­mið sam­tak­anna, sem var fyrst og fremst að byggja íbúðir, hefur end­ur­sala mörg hund­ruð eldri íbúða, jafn­vel svo telji nær þús­und, þó verið eitt helsta verk­efni Samtaka aldr­aðra hina síð­ari ára­tugi; geymir Vefsafn Lands­bóka­safns – Háskóla­bóka­safns urmul dæma um umsvifin hin seinni árin. Hafa sam­tökin þó ekki haft minnstu laga­legu heim­ild til fast­eigna­sölu en þá því frekar kosið að starfa í skjóli leppa, m.ö.o. lög­giltra fast­eigna­sala, þrátt fyrir að lög um fast­eigna­sölu strang­lega banni slíka með­al­göngu.

Svo sem hér hefur bent á þá er skýrt tekið fram í 9. gr. laga um sam­vinnu­fé­lög að hvert slíkt félag skuli skrá­sett sam­kvæmt þeim lögum og að það geti þá fyrst öðl­ast rétt­indi á hendur öðrum aðilum með samn­ingi og aðrir á hendur því. Ljóst má vera að sam­tökin hafa ekki getað öðl­ast neins konar lög­leg rétt­indi á hendur einum eða neinum með neins konar samn­ingum fram til þess tíma er þau voru fyrst skrá­sett sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag haustið 2015.

Hvað varðar tíma­bilið frá því sam­tökin voru skráð í nóv­em­ber 2015 til dags­ins í dag, þá gildir einu. Hvorki upp­haf­leg stofnun slíks bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags né neinar sam­þykktir höfðu verið til­kynntar til sam­vinnu­fé­laga­skrár um ára­tuga­skeið, hvað þá heldur nýj­ustu sam­þykkt­irnar á þeim tíma, frá árinu 2006, þrátt fyrir skýr ákvæði 11. og 12. greina laga um sam­vinnu­fé­lög um til­kynn­ing­ar­skyldu til sam­vinnu­fé­laga­skrár innan mán­aðar frá því til­kynn­inga­skyldir gern­ingar áttu sér stað. Félaginu hefði þvert á móti borið að slíta sér samkv. 62. grein lag­anna, sem hér verður nánar vikið að á eftir, en hinu opin­bera, sam­vinnu­fé­laga­skrá rík­is­skatt­stjóra, hefði að öðrum kosti borið að hlíta ákvæðum 13. greinar lag­anna og bein­línis synja félag­inu skrán­ingar, svo sem greinin kveður skýrt á um, hvað þá þegar félags­stjórn hefur gerst sek um svo margra ára­tuga van­rækslu.

Um ábyrgð velferðarráðuneytisins/félagsmálaráðuneytisins

1. grein laga um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög kveður skýrt á um, að félag, sem ákvæði lag­anna taka til, skuli hafa orðið „bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag“ í nafni sínu og jafn­framt að öðrum félögum sé óheim­ilt að bera slík heiti.

2. grein lag­anna kveður jafn­framt skýrt á um – að um félags­stofnun, skrá­setn­ingu, félags­stjórn og félags­slit bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags fari, eftir því sem við getur átt, eftir ákvæðum laga nr. 22/1991 um sam­vinnu­fé­lög, og að óheim­ilt sé að skrá­setja bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag fyrr en sam­þykktir þess hafi verið stað­festar af félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Það heyrir til hreinna und­an­tekn­inga að þess sé getið í skjölum eða papp­írum frá hendi Samtaka aldr­aðra að þau líti á sig bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, hvað þá heldur á vef­síðu sam­tak­anna eða í frétta­bréfum – hvað þá að þess hafi í nokkru verið getið á félags­skír­teinum. Þess hefur aldrei verið getið á umsókn­ar­blöðum um aðild – um ára­tuga­skeið – að um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag væri að ræða, þrátt fyrir skýr ákvæði lag­anna, nema í allra sein­ustu tíð, eftir skrán­ing­una haustið 2015, að skamm­stöf­un­inni BSVF hefur verið skeytt aftan við Samtök aldr­aðra, án þess þó að það sé frekar útskýrt fyrir hinum öldr­uðu umsækj­endum hvað BSVF tákni.

Nær ein­ungis í sam­þykktum félags­skap­ar­ins hefur verið vísað til bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags svo að ekki verði um villst. Er þar jafn­framt tekið skýrt fram í 23. grein hvaða lögum félagið lúti:

„Um skrá­setn­ingu félags­ins og félags­slit fer eftir lögum um sam­vinnu­fé­lög. Sama er um öll önnur atriði, sem ekki eru tekin fram í sam­þykktum þessum en fjallað er um í þeim lögum, lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög og lögum um fjöl­eign­ar­hús eftir því sem við á.“

Sé hins vegar litið til ann­arra greina sam­þykkt­anna kveður gjarnan við allt annan tón, engu lík­ara en að Samtök aldr­aðra lúti allt öðrum lögum en þarna er frá greint, eða bein­línis svo að Samtök aldr­aðra hafi sett sér sam­þykktir ofar öllum lögum, alls burt­séð frá 23. grein eigin sam­þykkta, og að félags­mála­ráðu­neytið hafi svo ávallt stað­fest sam­þykkt­irnar blint og mögl­un­ar­laust, nýjar eða breyttar – án þess þó að „bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lagið“ hafi hirt um að til­kynna þær til sam­vinnu­fé­laga­skrár frekar en flestar aðrar breyt­ingar á högum sínum.

Eftir því sem næst verður kom­ist mun vel­ferð­ar­ráðu­neytið/félags­mála­ráðu­neytið hafa stað­fest fernar sam­þykktir sam­tak­anna – á árunum 1977, 1981, 2006 og 2017 – þrátt fyrir að þær brytu í veiga­miklum atriðum gegn lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög. Engar þess­ara sam­þykkta hafa verið til­kynntar til sam­vinnu­fé­laga­skrár nema sam­þykkt­irnar frá árinu 2006 (sem voru þó ekki til­kynntar fyrr en á „stofndegi“ níu árum eftir sam­þykkt, árið 2015...), þrátt fyrir marg­nefnda til­kynn­ing­ar­skyldu.

Í sam­þykkt­unum segir og hefur löngum verið sagt, að sá sem hafi fengið íbúð að til­hlutan félags­ins megi ekki selja íbúð­ina nema að stjórn félags­ins hafi áður hafnað for­kaups­rétti. Og jafn­framt að sölu­verð íbúðar, sem reist hafi verið á vegum félags­ins, megi aldrei vera hærra en sem nemi kostn­að­ar­verði hennar að við­bættri verð­hækkun vísi­tölu bygg­ing­ar­kostn­aðar, með hlið­sjón af breyt­ingum og lag­fær­ingum að mati dóm­kvadds mats­manns, hversu oft sem eig­enda­skipti kunni að verða.

Lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög kveða hins vegar ein­ungis á um slíkan íhlut­un­ar­rétt stjórnar fyrstu fimm árin frá lóð­ar­út­hlutun, sem svarar e.t.v. til 2ja eða 3ja ára frá lokum bygg­ingar, svo sem áður er rakið. Þannig er ekki ein­ungis skellt skolla­eyrum við hinum skýru laga­á­kvæðum um íhlut­un­ar­rétt­inn heldur kveða sam­þykkt­irnar jafn­framt á um að kaup­endur að eldri íbúðum, er reistar hafa verið á vegum félags­ins, greiði sam­tök­unum 1% af end­ur­sölu­verði í þóknun fyrir umsjón með fast­eigna­söl­unni, burt­séð frá hvort hið áskilda fimm ára tíma­bil frá lóð­ar­út­hlutun sam­kvæmt lög­unum sé liðið, sem það þó nær ávallt er, og þrátt fyrir að Samtök aldr­aðra hafi ekki og hafi aldrei haft minnstu heim­ild til að ann­ast almenna fast­eigna­sölu, hvorki sam­kvæmt lögum um sölu fast­eigna, lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög né sam­kvæmt öðrum lögum. Lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög heim­ila heldur ekki slíka gjald­töku nema í eitt skipti fyrir öll af hverri nýrri íbúð, er nemi allt að 1% bygg­ing­ar­kostn­aði, sbr. b-lið 3. greinar lag­anna – en alls ekki af neins konar end­ur­sölu íbúða.

Þá má jafn­framt ljóst vera að allar mats­gerðir skoð­un­ar­manna félags­ins eru algjör­lega and­stæðar lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög, enda hafa skoð­un­ar­menn þess aldrei verið dóm­kvaddir, þrátt fyrir skýr fyr­ir­mæli lag­anna þar um, heldur hafa þeir ein­ungis verið kosnir á félags­fundum. Þó ekki væri nema fyrir þá sök eina eru allar mats­gjörðir skoð­un­ar­manna félags­ins með öllu ólög­legar og að engu haf­andi, enda slíkar blekk­ingar raunar skýrt brot á 158. grein og 186. grein almennra hegn­ing­ar­laga, nr. 19/1940.

Með athöfnum sínum í skjóli sam­þykkta sinna, er félags­mála­ráðu­neytið hefur þrá­fald­lega stað­fest, þvert ofan í lög, hafa Samtök aldr­aðra brotið á stjórn­ar­skrár­vörðum eign­ar­rétti mörg hund­ruð félags­manna sinna við end­ur­sölu íbúða þeirra á und­an­förnum ára­tugum, eða eftir atvikum erf­ingja þeirra, og valdið þeim fjár­tjóni og marg­vís­legum skaða og miska, auk þess sem sam­tökin hafa beitt þús­undir manna í fast­eigna­kaupa­hug­leið­ingum blekk­ingum á und­an­förnum ára­tugum með því að meina þeim við­skipti við ein­staka eig­endur íbúða á full­kom­lega fölskum og ólög­legum for­sendum.

Hafa sam­tökin þannig komið í veg fyrir hugs­an­leg fast­eigna­við­skipti lögum sam­kvæmt, ekki síst með hót­unum um svipt­ingu félags­að­ildar, hlýddu félags­menn ekki hinum ólög­legu skil­yrðum.

Í nýj­ustu sam­þykktum sínum, sem sam­þykktar voru í júní 2016, ganga sam­tökin enn lengra en áður gegn lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög með því að vísa jafn­framt til mats­manns félags­ins – en ekki, svo sem áður ávallt var, til dóm­kvadds mats­manns ein­vörð­ungu, svo sem lögin þó áskilja afdrátt­ar­laust í 6. grein – og beit vel­ferð­ar­ráðu­neytið höf­uðið af skömm sinni með því að stað­festa sam­þykkt­irnar þannig umorð­aðar umyrða­laust þann 28. mars s.l. Gildir þó einu – hinar nýju sam­þykktir hafa ekki verið til­kynntar til sam­vinnu­fé­laga­skrár fremur en svo fjöl­mörg önnur gögn sem stjórn félags­skap­ar­ins hefur van­rækt að til­kynna á mörgum und­an­förnum ára­tugum, gögn sem í mörgum greinum stang­ast þó alvar­lega á við lög.

Eða hve langt getur eitt ráðu­neyti gengið á vegum lög­leysu með því að skjóta ávallt skjóls­húsi yfir svo algjör­lega óskipu­lögð sam­tök? Samtök, sem hefðu aldrei getað öðl­ast rétt­hæfi til opin­berrar skrán­ingar ef skrán­ing­ar­gögn, sam­þykktir sem annað, hefðu verið metin að réttum lögum, hvorki sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag né félag af neinu öðru tagi, nema að veru­lega breyttum sam­þykktum og að gjör­breyttu við­horfi stjórn­enda félags­skap­ar­ins, stjórn­ar­manna og ann­arra ábyrgð­ar­manna, til lag­anna – hvað þá að sam­tökin hefðu rétt til aðildar að dóms­málum, svo sem hér hefur verið bent á, sbr. 9. grein laga um sam­vinnu­fé­lög.

Séu óskipu­lögð og rang­lega reifuð sam­tök engu að síður skráð líkt og skipu­lögð væru að réttum lögum – m.ö.o. í trássi við lög og í sýnd­ar­skyni, og þá raunar í blekk­ing­ar­skyni – hljóta ein­stak­ling­arnir að baki þeim, ráða­menn og ábyrgða­menn þeirra, að taka fulla ábyrgð á öllum gjörðum sam­tak­anna, líkt og óskráð væru og skipu­lags­laus, sem hver annar sauma­klúbbur eða óform­legt veiði­fé­lag, svo lengi sem kenni­tölur ein­stak­ling­anna lifa.

Ábyrgð ráðu­neytis á þátt­töku í slíkum sýnd­ar­gjörn­ingum, að ekki sé talað um blekk­ing­ar­leik, er þó til muna og marg­falt meiri, enda um opin­bert stjórn­vald að ræða sem byggir á trausti allra lands­manna til fram­kvæmda­valds. Er því raunar ætlað sam­kvæmt öllum lögum og stjórn­ar­skrá að stuðla að rétt­ar­ríki en ekki að nið­ur­rifi slíks ríkis með ábyrgð­ar­lausum stað­fest­ingum á ólög­legum sam­þykktum félaga eða félaga­sam­taka.

Um ábyrgð ríkisskattstjóra

Þann 20. nóv­em­ber, 2015, með­tók rík­is­skatt­stjóri, fyr­ir­tækja­skrá, beiðni fyrir hönd „Bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags­ins Samtök aldr­aðra“ um leið­rétt­ingu á skrán­ingu, sem „teygði sig allar götur til árs­ins 1977“, svo sem beiðnin er fag­mann­lega orðuð og und­ir­rituð af þá nýlega kjörnum for­manni og löngum lög­manni félags­skap­ar­ins, Magnúsi Birni Brynj­ólfs­syni, reyndar hæsta­rétt­ar­lög­manni til margra ára.

Með beiðn­inni vísar Magnús til fyrri sam­þykkta frá 1977 og 1981, sem stað­festar hefðu verið af við­kom­andi ráðu­neyti, og bendir á að í þeim báðum sam­þykktum hafi upp­haf­lega verið talað um Bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lagið Samtök aldr­aðra og hefði því að sjálf­sögðu borið að skrá félagið sem slíkt í upp­hafi. Hins vegar virt­ist, að hans sögn, hafa orðið mis­brestur á því og væri því með beiðn­inni óskað eftir leið­rétt­ingu á skrán­ingu félags­ins.

Ítrekar hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn að lokum þá kröfu félags síns, að það fái að halda sömu kenni­tölu eft­ir­leiðis sem því hafi verið úthlutað á árinu 1977 – eins og skráð hafi verið í upp­hafi, þ.e. 580377-0339.

Hér var að sjálf­sögðu ekki ein­ungis verið að óska eftir skrán­ingu félags í fyr­ir­tækja­skrá heldur bein­línis eftir skrán­ingu félags í sam­vinnu­fé­laga­skrá (í sam­ræmi við lög um sam­vinnu­fé­lög nr. 22/1991) sem fyr­ir­tækja­skrá ber sam­kvæmt lögum að halda utan um. Fylgdu beiðn­inni þáver­andi sam­þykktir félags­skap­ar­ins frá árinu 2006 (og raunar hinar einu sem til­kynnt hefur verið um til sam­vinnu­fé­laga­skrár til þessa, þrátt fyrir allan annan „mis­brest“), líkt og enga mein­bugi væri að finna á því skjali frekar en öðrum frá hendi sam­tak­anna – og reyndar þrátt fyrir að hvergi gæti und­ir­rit­unar f.h. félags­mála­ráðu­neyt­is­ins né stimp­ils til stað­fest­ingar.

Skemmst frá að segja varð fyr­ir­tækja­skrá/sam­vinnu­fé­laga­skrá rík­is­skatt­stjóra við beiðni Magnúsar Björns án ann­arra krafna en við­véku þáver­andi end­ur­skoð­endum félags­ins, að þeir skyldu leystir frá störfum – sem Magnús Björn tjáði félagið þá þegar hafa orðið við með bréfi til Bjarna Hlíð­kvists, lög­fræð­ings stofn­un­ar­innar, 30. des­em­ber 2015, jafn­framt því að hann árétt­aði þá kröfu félags síns, að það fengi að halda sinni gömlu kenni­tölu.

Enda má hverjum þeim sem horfa vill til félags­ins frá form­legu sjón­ar­miði vera ljóst hví­líkt lífs­hags­muna­mál það hefur verið því að fá að halda sinni gömlu kenni­tölu (öfugt við flestan annan nútíma­fé­lags­skap!) – hvað þá í ljósi und­an­geng­inna dóms­mála jafnt sem þeirra er nú eru í gangi – alls burt­séð frá allri end­ur­skoðun, sem íslensk félög og fyr­ir­tæki hvort eð er líta oft­ast og einatt á sem hégóma, og hið opin­bera gjarnan sem form­legan hégóma.

Í huga lög­fræð­ings stofn­un­ar­innar hefur því áður­nefnd 74. grein sam­vinnu­laga síst komið upp – að stofn­endur, stjórn­ar­menn, fram­kvæmda­stjórar, end­ur­skoð­endur og skoð­un­ar­menn sam­vinnu­fé­lags gætu verið skyldir til að bæta félagi tjón sem þeir kynnu að hafa valdið því í störfum sínum hvort sem væri af ásetn­ingi eða gáleysi – svo sem laga­greinin kveður þó skýrt á um – eða vegna „mis­brests“ svo sem hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn og for­maður félags­skap­ar­ins kaus að orða það, sem má þó heita sam­nefn­ari fyrir „ásetn­ing“ eða „gáleysi“ sem laga­greinin einmitt byggir á! Hvað þá að lög­fræð­ingur stofn­un­ar­innar hafi leitt hug­ann að því hvaða afleið­ingar „mis­brest­ur­inn“ gæti hafa haft á félags­að­ila eða aðra sem orðið hefðu fyrir tjóni vegna brota á ákvæðum lag­anna eða sam­þykktum félags, sem síð­ari hluti 74. grein­ar­innar einmitt fjallar um.

Ekki fremur en að lög­fræð­ingur stofn­un­ar­innar hafi hugað að áður­nefndri 78. grein sömu laga – um sam­vinnu­fé­lög – sem bein­línis kveður á um sektir eða fang­elsi allt að tveimur árum fyrir að skýra vís­vit­andi rangt eða vill­andi frá högum sam­vinnu­fé­lags eða öðru er það varðar, hvað þá hugað hafi að 81. grein, þar sem afdrátt­ar­laust er kveðið á um að sá sem van­ræki til­kynn­ingar til sam­vinnu­fé­laga­skrár skuli sæta sektum eða fang­elsi allt að einu ári.

Eða gæti verið að sam­svar­andi „mis­brestur“ hafi orðið í námi lög­fræð­ings stofn­un­ar­innar og hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins, for­manns marg­um­rædds félags­skapar – að upp­aldir hafi verið í lög­fræði­deild­inni við sömu hégóm­legu við­mið og end­ur­skoð­end­urnir í við­skipta­fræði­deild­inni?

Það gildir þó einu þótt rík­is­skatt­stjóri hafi hunsað allar ábend­ingar um rang­hæfi Samtaka aldr­aðra, hvort sem hann hefur kosið að skrá félags­skap­inn sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag, hvað þá undir svo rang­snúnu hlut­verki að félagið muni starfa að leigu íbúð­ar­hús­næðis, líkt og skrán­ing und­an­farin tvö ár hefur borið með sér, eða sem félag á borð við átt­haga­fé­lög, rótarý­klúbba eða trú­fé­lög er starfi án fjár­hags­legs til­gangs, líkt og skrán­ingin ára­tugum saman á undan bar með sér.

Það gildir einu. Samtök aldr­aðra eru og hafa ávallt verið rang­lega skráð, í trássi við öll lög, ekki síður en eigin sam­þykktir, réttar og rangar, og eiga sér því í raun­inni engan til­veru­rétt að lögum, þ.e.a.s. sem skipu­lags­bundið félag, heldur ein­ungis ein­stak­ling­arnir sem að rekstri félags­skap­ar­ins hafa staðið. Ábyrgð þeirra er eigi lítil, að ekki sé meira sagt, og þó hégómi sam­an­borið við ábyrgð hins opin­bera – ráðu­neyta og ráð­herra, rík­is­skatt­stjóra og þó ekki síst sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Um afsal eignarréttar – og ábyrgð sýslumanns

Lög banna mönnum ekki að afsala sér eign­ar­rétti, að hluta til eða að öllu leyti, eða að stofna félög um slíkt afsal. Eðlilega er bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lögum þó ekki stætt á að setja rík­ari kvaðir um slíkt afsal en lög­gjaf­inn sjálfur hefur mælt fyrir um, að öðrum kosti hlyti öll lög­gjöf að vera vita til­gangs­laus. Lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög heim­ila heldur ekki slíkt afsal félags­manna sinna nema að mjög tak­mörk­uðu leyti, sbr. 6. grein lag­anna, og þá ein­ungis til fimm ára frá því lóð­ar­út­hlutun fór fram.

Samkvæmt grein­inni nær tak­mörkun eign­ar­rétt­ar­ins ein­ungis til ákvörð­unar um sölu­verð íbúðar innan til­skyldra fimm ára frá lóð­ar­út­hlutun – að skuli ekki vera hærra en upp­haf­legt kostn­að­ar­verð hennar að við­bættri verð­hækkun sam­kvæmt bygg­ing­ar­vísi­tölu, að teknu til­liti til fyrn­ingar sam­kvæmt mati dóm­kvaddra manna, jafn­framt því að sala skal lúta for­kaups­rétti bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags á fimm ára tíma­bil­inu. En neyti félag eigi for­kaups­réttar er eig­anda heim­ilt að selja hverjum þeim sem félags­stjórn hefur sam­þykkt sem félaga – og að fimm árum liðnum frá lóð­ar­út­hlutun hverjum sem er, án afskipta félags, eðli máls og lög­unum sam­kvæmt.

Aug­ljós­lega eru lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög – sem önnur lög – sett til að tak­marka gjörðir manna og leggja mönnum sam­fé­lags­legar línur. Eða til hvers væru lög ann­ars, ef réttur manna, hvað þá rétt­lausra félaga­sam­taka, til að toga lögin og teygja að vild, væri jafn­vel tak­marka­laus?

Menn geta því ekki innan vébanda bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags komið sér saman um neins konar sam­þykktir er ganga gegn lögum um slík sam­vinnu­fé­lög né gegn öðrum lögum, hvað þá gegn ákvæðum stjórn­ar­skrár, hvorki um eign­ar­rétt né annan rétt, og gildir einu þótt ráðu­neyti hafi horft fram hjá lögum og rétti og stað­fest slíkar sam­þykktir.

Á hitt ber að líta að hverjum og einum er í sjálfs vald sett að setja kvaðir á eign sína, svo fremi að kvöð brjóti ekki gegn lögum að breyttu breyt­anda og að kvöð sé þing­lýst lög­form­lega og af aðila er hafi til þess fullt og óvé­fengj­an­legt umboð og rétt­hæfi.

Þannig hefur það almennt verið tal­inn óum­deil­an­legur réttur hinna ýmsu félaga­sam­taka, er byggt hafa íbúðir fyrir aldr­aða á und­an­förnum ára­tugum, að leggja á kvaðir um lág­marks­aldur eig­enda, t.d. 55, 60 eða 63 ár, að sjálf­sögðu svo fremi að hafi verið lög­legir selj­endur og með fullt, laga­legt rétt­hæfi.

Laga­legur réttur slíkra félaga­sam­taka til að leggja þing­lýstar kvaðir á eignir um for­kaups­rétt eða útleigu­rétt eða kvaðir um aðild eig­anda að félaga­sam­tök­unum, og þar með að við­kom­andi sé bund­inn af sam­þykktum félags­skap­ar­ins um aldur og ævi, hlýtur á hinn bóg­inn að vera afar umdeil­an­legur, væg­ast sagt, nema að því marki sem rúmist innan hins áskilda fimm ára tíma­bils frá lóð­ar­út­hlutun samkv. lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög – a.m.k. sé félag af slíku tagi. En væri félag af öðru tagi, hvað þá umlukið laga­legri þoku líkt og sam­tökin sem hér eru um rædd, hlyti það að verða að færa sönnur á lög­form­legan rétt sinn til íhlut­unar. Hvorug leiðin er Samtökum aldr­aðra fær, enda getur ekk­ert félag verið hvort tveggja í senn – bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag og ekki slíkt félag.

Hvað þá heldur að nokk­urt félag hafi laga­legan rétt til að krefja eig­endur íbúða í heilu fjöl­býl­is­hús­unum um félags­gjöld árum og jafn­vel ára­tugum saman þótt félag sé löngu hætt afskiptum að nýbygg­ingum fyrir aldr­aða, svo sem nokkur dæmi eru um á meðal hinna ýmsu félaga eldri borg­ara, sem nota á hinn bóg­inn félags­gjöld íbúð­ar­eig­enda fyrst og fremst eða ein­göngu til að kosta almenna félags­starf­semi – þ.á.m. dans­skemmtan, söngvökur, far­ar­stjórn fyrir göngum, tungu­mála­kennslu eða tölvu­kennslu – alls burt­séð frá því hvort hinir kvaða­bundnu félags­menn hafi áhuga á eða hafi óskað eftir að fá að taka þátt í félags­starf­sem­inni, enda slík starf­semi aug­ljós­lega alls óvið­kom­andi almennum eign­ar­rétti manna að íbúð. Slík félags­gjöld eru þó smá­munir sem fæstir kippa sér upp við en öllu alvar­legra mál þegar félaga­sam­tök krefj­ast jafn­framt 1% af end­ur­sölu­verði eignar, mörg hund­ruð þús­unda króna af eign hverju sinni sem íbúð er end­ur­seld, líkt og þegar Samtök aldr­aðra eiga í hlut, þvert gegn lögum um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög, sem heim­ila slíka gjald­töku ein­ungis af nýbygg­ingum, í eitt skipti fyrir öll.

Samkvæmt fram­greindu verður með engu móti séð að bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lögum sé stætt á að setja rík­ari kvaðir um eign­ar­rétt en lög­gjaf­inn sjálfur hefur mælt fyrir um, hvort sem er um for­kaups­rétt eða annan íhlut­un­ar­rétt. Engu að síður hefur sýslu­mað­ur­inn á höðu­borg­ar­svæð­inu ítrekað hafnað að aflýsa kvöðum á íbúðum í hans umdæmi, sem reistar hafa verið fyrir til­stuðlan Samtaka aldr­aðra í skjóli laga um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög, þrátt fyrir að meira en fimm ár væru liðin frá lóð­ar­út­hlutun.

Og gildir einu þótt sýslu­manni hafi þrá­fald­lega verið bent á laga­legt van­hæfi Samtaka aldr­aðra og hvernig þver­brotið hafa lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög – hvað þá heldur að það hafi nokkurn tím­ann verið slíkt félag að lögum – og það þrátt fyrir að sýslu­maður sjálfur sé fyrrum for­maður Félags fast­eigna­sala og ætti að minnsta kosti sem slíkum að vera full­kunn­ugt um hverjum sé heim­ilt að stunda fast­eigna­miðlun, kunni hann lögin, og þá hver við­ur­lög eru við því að leppa slíka heim­ild­ar­lausa starf­semi.

Um rétthæfi samvinnufélags – og hvenær beri að slíta slíku félagi

62. grein laga um sam­vinnu­fé­lög fjallar um hvenær slíku félagi skuli slíta og með hvaða hætti slitum skuli vera háttað ef stjórn félags bregst ekki við. A-hluti grein­ar­innar fjallar í sex liðum um þau atriði sem leiða til slita félags. Skilyrði samkv. liðum nr. 2, 4 og 6 koma hér til álita og ætti stjórn hvers félags raunar að sjálf­gefnu að óska eftir slitum þess sam­kvæmt lög­unum, að skil­yrð­unum upp­fylltum:

Samkv. lið nr. 2 skal m.a. slíta sam­vinnu­fé­lagi ef það full­nægir ekki ákvæðum laga um sam­vinnu­fé­lög. Samkv. lið nr. 4 skal slíta sam­vinnu­fé­lagi ef það van­rækir að senda sam­vinnu­fé­laga­skrá til­kynn­ingar sem því er skylt sam­kvæmt ákvæðum sömu laga.

Samkv. lið nr. 6 skal slíta sam­vinnu­fé­lagi ef end­ur­skoð­aðir og sam­þykktir árs­reikn­ingar hafa ekki verið sendir árs­reikn­inga­skrá fyrir þrjú síð­ustu reikn­ingsár, sbr. ákvæði laga um árs­reikn­inga, um skil á árs­reikn­ingum.

B-hluti 62. greinar fjallar á hinn bóg­inn um með hvaða hætti slitum skuli vera háttað ef stjórn félags bein­línis van­rækir að óska eftir slitum þess. Skal hér­aðs­dóm­ari þá taka félagið til skipta að kröfu ráð­herra eða félags­að­ila.

Með ákvæð­inu um mögu­lega aðkomu ráð­herra að slita­skiptum eru lögin aug­ljós­lega að vísa til og und­ir­strika eft­ir­lits­vald hins opin­bera, líkt og ákvæði í lögum um hluta­fé­lög og einka­hluta­fé­lög heim­ila ráð­herra nokkuð sam­svar­andi afskipti þegar svo ber undir. Áhrifa­vald ein­stakra félags­manna í sam­vinnu­fé­lögum er þó almennt og mun veik­ara en ein­stakra hlut­hafa í hluta­fé­lögum, a.m.k. þeirra sem geta beitt sér í krafti hluta­fjár­eignar, og því enn frek­ari ástæða til að ráð­herra hafi svo sterkt íhlut­un­ar­vald um mál­efni sam­vinnu­fé­laga fari þau ekki að lögum.

Eðli máls sam­kvæmt eru félags­menn Samtaka aldr­aðra komnir yfir miðjan aldur og margir á efri ár og eru þeir því fremur ólík­legir til að standa í stappi við hér­aðs­dóm­ara, hvað þá við félags­stjórn, sem hefur ekki hikað við að hóta hverjum þeim brott­rekstri úr sam­tök­unum sem henni ekki þókn­ast.

Það er þá því frek­ari ástæða til að ráð­herra beiti laga­heim­ild sinni til að verja sam­fé­lagið ólögum og geri þá kröfu til hér­aðs­dóm­ara að taki hið ólög­lega Bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lag Samtaka aldr­aðra til skipta.

Samtök aldr­aðra standa í raun á milli tveggja elda, ef svo má segja – milli tveggja ráðu­neyta, vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, sem hefur haft í hendi sér ára­tugum saman að stað­festa ólög­legar sam­þykktir sam­tak­anna sem bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lags eða að fara að lögum og bein­línis synja þeim stað­fest­ingar, og atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, eða með réttu ráð­herra atvinnu­mála, sem hefur vald til að krefj­ast þess af hér­aðs­dóm­ara að bregð­ist við marg­hátt­aðri van­rækslu félags­stjórnar um ára­tuga­skeið og taki hið ólög­lega sam­vinnu­fé­lag til skipta, enda fer atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið með skrán­ingu fyr­ir­tækja og félaga og mál­efni fyr­ir­tækja­skrár og árs­reikn­inga­skrár samkv. for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands, sbr. lög nr. 1/2017, 2. gr. 4. tölu­lið, máls­greinar i og joð.

Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið má ljóst vera að ein­stak­ling­arnir, sem að rekstri Samtaka aldr­aðra hafa staðið, bera höf­uð­á­byrgð. Það er raunar ráð­gáta hvað stjórn­ar­mönnum félags­skap­ar­ins hefur gengið til. Varla fégirni en kannski trú­girni, svo blind trú á mark­mið, að í engu hafi verið skeytt um laga­legan grund­völl, enda skyldi til­gang­ur­inn helga með­alið. Ábyrgð þeirra er engu að síður gríð­ar­leg, og nær reyndar til þús­unda ólög­legra gjörn­inga á und­an­förnum ára­tugum, og er þó hégómi sam­an­borið við ábyrgð hins opin­bera – ráðu­neyta og ráð­herra, rík­is­skatt­stjóra og þó ekki síst sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem og dóm­stóla, sem hafa látið undir höfuð leggj­ast að kanna rétt­hæfi sam­tak­anna.

Höfundur er áhuga­maður um rétt­mæta stjórn­sýslu.

Helstu heimildir og ítarefni:

Vefur rík­is­skatt­stjóra: Stofnun félaga í atvinnu­rekstri / Félaga­sam­tök og önnur félög

Vefur Hagstofu Íslands: ÍSAT2008 – Íslensk atvinnu­greina­flokkun – Hagstofa Íslands 2009

Vefur Alþingis: Lög um bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­lög, nr. 153/1998 með síð­ari tíma breyt­ingum

Vefur Alþingis: Lög um sam­vinnu­fé­lög, nr. 22/1991 með síð­ari tíma breyt­ingum

Vefur Alþingis: Almenn hegn­ing­ar­lög, nr. 19/1940 með síð­ari tíma breyt­ingum

Vefur Alþingis: Lög um með­ferð einka­mála, nr 91/1991 með síð­ari tíma breyt­ingum

Vefur Samtaka aldr­aðra: http://www.aldradir.is/

40 ára afmæl­is­rit Samtaka aldr­aðra / Frétta­bréf 2013: 1. tbl. 28. árg. apríl 2013

Vefsafn Lands­bóka­safns – Háskóla­bóka­safns: Fast­eigna­aug­lýs­ingar Samtaka aldr­aðra 2008-2016

Vefsafn Lands­bóka­safns – Háskóla­bóka­safns: Fast­eigna­aug­lýs­ingar Samtaka aldr­aðra 2016-2017

Rík­is­skatt­stjóri: Öll fyr­ir­liggj­andi gögn í sam­vinnu­fé­laga­skrá RSK um Samtök aldr­aðra í júní 2017

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár