Sagði SS-sveit sérfræðinga að sunnan koma í veg fyrir framfarir á Vestfjörðum

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagði að SS-sveitir sér­fræð­inga að sunnan kæmu í veg fyrir að atvinnu­líf, sam­göngur og virkj­anir fái að rísa á Vest­fjörðum. Hann sagð­ist ekki hafa verið að not­ast við lík­indi við sér­sveit nas­ista.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að SS-sveitir sér­fræð­inga að sunnan komi í veg fyrir að atvinnu­líf, sam­göngur og virkj­anir fái að rísa á Vest­fjörðum.

Þetta sagði Ásmundur í umræðum um Fiskeldi sem nú standa yfir á Alþingi. „Ég held að við þurfum að taka Vest­firð­inga og Vest­firði í faðm­inn og hjálpa þeim í gegnum þennan ólgu­sjó sem þeir eru í núna. Það er okkar hlut­verk. Ræðum það sem við þurfum að gera til að hjálpa þeim til. Veitum ráð­herr­anum þessa heim­ild, frestum þessum rétt­ar­á­hrifum, gerum það sem fyrst, stöndum vel að því og síðan munum við’ örugg­lega hafa almennt um fisk­eldi.“

SS-sveit­irnar voru öryggis- og her­sveitir þýska Nas­ista­flokks­ins sem stofn­aðar voru á þriðja ára­tugnum og voru starf­ræktar fram til árs­ins 1945. Þær voru þekktar fyrir mikla grimmd í garð óbreyttra borg­ara og stríðs­fanga og báru ábyrgð á feiki­legu mann­falli á meðan að á seinni heims­styrj­öld­inni stóð.

Smári McCarthy, þing­maður Pírata gerði athuga­semd við orða­lag Ásmundar og að hann not­aði lík­indi við sér­sveitir nas­ista í máli sínu við umræður á Alþingi. Ásmundur sagði að hann hafi ekki ætlað að nota slík lík­indi, heldur hafi SS staðið fyrir sér­fræð­inga að sunnan.

Verið að ræða bráðabirgðaheimild ráðherra

Nú standa yfir umræður á Alþingi um nýtt frum­varp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en sam­­kvæmt því mun verða mög­u­­legt að veita rekstr­­ar­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i, og féllu ummæli Ásmundar í þeim umræðum.

Frum­varpið var kynnt á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi í gær en í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að því sé ætlað að lag­­færa ­með almennum hætti ann­­marka á lögum um fisk­eldi til fram­­tíð­­ar. Sá ann­­marki birt­ist í því að sam­­kvæmt gild­andi lögum sé eina úrræði Mat­væla­­stofn­un­ar, í þeim til­­vikum sem rekstr­­ar­­leyfi fisk­eld­is­­stöðvar er fellt úr gildi, að stöðva starf­­semi henn­­ar.

Úrskurð­­ar­­nefnd umhverf­is- og auð­linda­­mála felldi úr gildi rekstr­­ar­­leyfi og starfs­­leyfi Fjarð­­ar­­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­­reks­­firði og Tálkna­­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­­ar­á­hrifa. Sam­tals voru leyfin upp á um 17.500 tonn en sveit­­ar­­fé­lögin á starfs­­svæði fyr­ir­tækj­anna hafa mót­­mælt stöð­unni sem komin er upp og kraf­ist aðgerða.

Drög að frum­varp­inu voru sem sagt sam­­þykkt á auka­fundi rík­­is­­stjórn­­­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­­­mála­­flokk­unum síð­­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fish og Fjarða­­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­­fjörðum verði sam­­kvæmt lögum og regl­­um. Aðspurður segir Krist­ján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­­ar­innar um að fella starfs­­leyfi fisk­eld­is­­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­­ar­­söm og tíma­frek.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár