Tímamót hjá SAS

SAS hyggst færa út kví­arnar og opna starfs­stöð í London og á Spáni. Þrátt fyrir að fljúga um allan heim, hefur félagið ekki áður stigið skref sem þetta út úr Skand­in­avíu. Borgþór Arn­gríms­son kynnti sér merki­lega sögu SAS.

Fyrir nokkrum dögum til­kynnti stjórn skand­in­av­íska flug­fé­lags­ins SAS að félagið hygð­ist opna starfs­stöðvar í London og á Spáni. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta rúm­lega sjö­tuga félag, sem lifað hefur tím­ana tvenna í rekstr­inum, opnar starfs­stöð utan Skandi­anavíu. Til­gang­ur­inn er að draga úr kostn­aði og styrkja rekstur félags­ins í síharðn­andi sam­keppni. Ekki er bein­línis hægt að segja að til­kynn­ingin um þessar breyt­ingar hafi komið á óvart. Fréttir um að stjórn­endur SAS myndu bregða á þetta ráð hafa af og til birst í nor­rænum fjöl­miðlum um nokk­urt skeið og nú er komið í ljós að sá ,,kvittur” eins og einn stjórn­enda SAS orð­aði það fyrir nokkru, reynd­ist ekki flugu­fregn.

Þrjú félög í eina sæng

Scandinavian Airlines System, eins og félagið hét upp­haf­lega var form­lega stofnað 1. ágúst 1946. Til­gang­ur­inn með stofnun SAS, eins og félagið hefur frá upp­hafi verið kallað, var að sam­eina milli­landa­flug þriggja félaga: Svensk Interkontinental Luft­trafik, Det Danske Luft­fartselskab og Det Norske Luft­fartsel­skap. Félögin þrjú héldu áfram inn­an­lands­flugi, hvert í sínu landi, næstu árin en eftir 1950 náði starf­semi SAS (sem nú heitir Scandinavian Airlines) einnig til inn­an­lands­flugs­ins.

25 klukkustundir frá Stokkhólmi til New York

Fyrsta flug­vélin undir merkjum SAS (Douglas DC-4) fór í loftið frá Stokk­hólmi 17. sept­em­ber 1946, för­inni var heitið til New York. Þetta var ekki neinn skreppitúr, flugið tók rúman sól­ar­hring, milli­lent í Kaup­manna­höfn, Glasgow og Gander á Nýfundna­landi. Það var ekki til­viljun að New York varð fyrir val­inu, flug­leiðin Stokk­hólmur - New York var fyrsta áætl­un­ar­leið félags­ins. Áður en þotu­öldin hófst urðu vélar SAS að milli­lenda til að taka elds­neyti á leið­inni til Ameríku. SAS vél­arnar lentu nær alltaf við bæinn Gander á Nýfundna­landi til að taka elds­neyti en þar var þá stór og mikið not­aður milli­lend­inga­flug­völlur. Flugmenn köll­uðu Gander ,,gatna­mót heims­ins”. Nokkrum mán­uðum eftir að SAS hóf áætl­un­ar­flug til New York byrj­aði félagið að fljúga til Suður-Ameríku, frá Stokk­hólmi til Rio de Janeiro og síðar til Montevideo í Uruguay og Buenos Aires í Argent­ínu. Ferðin frá Stokk­hólmi til Montevideo tók hátt í þrjá sól­ar­hringa, með fimm milli­lend­ingum og tveimur næt­ur­gist­ingum. Í dag flýgur SAS ekki til Suður- Ameríku. Árið 1951 hóf SAS, fyrst evr­ópskra flug­fé­laga, áætl­un­ar­flug til Japan, flogið var til Tókýó.

Innanlandsflugið sameinað 1950

Í upp­hafi gekk rekstur SAS brös­ug­lega og til þess að skjóta styrk­ari stoðum undir starf­sem­ina ákváðu félögin að stíga sam­ein­ing­ar­skrefið til fulls og eftir það náði starf­semin einnig til inn­an­lands­flugs­ins. Sú ákvörðun var tekin á fundi í Noregi í októ­ber 1950. Fjár­mála­ráð­herrar Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar mættu á þennan fund. Einn þeirra sagði síðar að valið hefði staðið um tvennt: hrökkva eða stökkva ,,við ákváðum að stökkva” sagði ráð­herr­ann. Ákveðið var að höf­uð­stöðvar SAS yrðu í Stokk­hólmi og keyptar voru sjö nýjar Douglas DC-6 flug­vélar (með þrýsti­jöfn­un­ar­bún­aði í far­þega­rým­inu) og sömu­leiðis voru pant­aðar tutt­ugu Convair flug­vélar ætl­aðar til notk­unar á styttri flug­leiðum.

Flogið yfir Norðurpólinn

Árið 1954 varð SAS fyrst flug­fé­laga til að fljúga áætl­un­ar­flug yfir Norð­ur­pól­inn, það ár hófust ferðir milli Kaup­manna­hafnar og Los Angeles, milli­lent var í Kangerlussuaq (Syðri- Straums­firði) og Winnepeg. Fimm árum síðar, 1959, eign­að­ist SAS fyrstu þot­una, franska Caravelle en félagið hafði tveimur árum fyrr pantað 21 slíka þotu. Caravellurnar, eins vél­arnar voru kall­aðar höfðu sæti fyrir 80 far­þega, flug­tím­inn milli Óslóar og Stokk­hólms var 45 mín­útur sem for­stjóri SAS kall­aði bylt­ingu. Caravellurnar reynd­ust SAS mjög vel, þóttu hins­vegar háværar og fékk félagið margar kvart­anir, einkum frá íbúum í nágrenni Bromma flug­vall­ar­ins við Stokk­hólm.

Hratt yfir sögu – Jan Carlzon

Ekki er ætl­unin í þessum pistli að rekja nákvæm­lega sögu SAS flug­fé­lags­ins, það er efni í heila bók. Starf­semi SAS jókst til muna á fyrstu ára­tug­unum sem félagið starf­aði en eins og margir vita er flug­rekstur mjög sveiflu­kenndur og árin í kringum 1980 reynd­ust SAS, eins og mörgum öðrum flug­fé­lögum, erfið. Þar kom margt til, sem ekki verður rakið hér.

Árið 1983 var Svíinn Jan Carlzon ráð­inn for­stjóri SAS. Hann ein­setti sér að ,,rífa SAS upp” einsog hann komst að orði. Hann vildi breyta ímynd félags­ins, gera það meira ,,skand­in­av­ískt”. Meðal þess breyt­ing­anna var útlit flug­vél­anna. Búkur vél­anna varð skjanna­hvítur og orðið Scandinavian mjög áber­andi en það sem mesta athygli vakti, og margir muna, voru fána­litir þjóð­anna þriggja, Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar, lóð­réttar rákir á fram­hluta vél­ar­innar. Þetta útlit hélst óbreytt til 1998 þegar núver­andi útlit, ljós búkur, rauðir hreyflar og blátt stél með hvít­mál­uðum SAS stöfum, leit dags­ins ljós.

Óhætt er að segja að SAS hafi allt frá upp­hafi, verið eins­konar þjóða­flug­fé­lag Skand­in­avíu, ef hægt er að tala um slíkt. Ríkin þrjú, Danmörk, Noregur og Svíþjóð eiga sam­tals helm­ings hlut í félag­inu, hinn helm­ing­ur­inn er í eigu ann­arra. Starfs­stöðvar félags­ins hafa fram til þessa ein­skorð­ast við löndin þrjú.

Ný öld og nýjar áskoranir

Um og eftir alda­mótin 2000 urðu miklar breyt­ingar í flug­rekstri. Hin svoköll­uðu lággjalda­flug­fé­lögum fjölg­aði mikið og létu æ meira til sín taka. Mörg eldri og rót­grón­ari félög, þar á meðal SAS, áttu í erf­ið­leikum með að mæta þess­ari nýju sam­keppni. Lággjalda­fé­lögin buðu lægri far­gjöld og minni þjón­ustu. Það var ekki lengur sjálf­sagt að hress­ing væri inni­falin í miða­verð­inu, ekki heldur ferða­taska. Iðulega var talað um ,,gripa­flutn­inga­vélar” lággjalda­fé­lag­anna og þar vísað til þess að þröngt væri í vél­unum. Allt slíkt tal breytti ekki því að lággjalda­fé­lögin náðu til sín æ stærri sneið af ,,far­þega­kök­unni”.

Lággjalda­fé­lögin voru sömu­leiðis sökuð um að borga lág laun og að for­svars­menn þeirra leit­uðu allra leiða til að halda kostn­aði niðri. Lyk­il­þáttur í þeirri við­leitni er hvar félagið er skráð. Skattar og gjöld, ekki síst þau sem varðar gjöld (önnur en laun) starfs­fólks­ins eru afar mis­mun­andi eftir löndum. Í þessum efnum standa skand­in­av­ísku löndin illa að vígi í sam­keppn­inni. Kostn­aður vegna hvers starfs­manns þar er rúm­lega fimm­tíu pró­sentum hærri en til dæmis í Englandi, Írlandi eða á Spáni og því segir sig sjálft að t.d. flug­fé­lag sem skráð er í Skand­in­avíu á erfitt upp­dráttar í sam­keppn­inni.

SAS hefur reynt að mæta sam­keppn­inni með alls kyns hag­ræð­ingu, upp­sögnum og launa­lækk­unum. Árið 2012 mun­aði minnstu að félagið kæm­ist í þrot en með marg­hátt­uðum aðgerðum tókst að bjarga rekstr­inum fyrir horn. Mörgum Skand­inövum þótti það óbæri­leg til­hugsun að starf­semi SAS liði undir lok, en önd­uðu léttar þegar ljóst var að SAS hefði áfram byr undir báðum vængjum. Með alls kyns aðgerðum hefur félagið náð að rétta nokkuð úr kútnum en í flug­rekstri er slag­ur­inn aldrei unn­inn og sífellt þarf að finna ný vopn í bar­átt­unni um far­þeg­ana.

Nýjar starfsstöðvar utan Skandinavíu

Fyrir nokkrum dögum til­kynnti yfir­stjórn SAS að félagið hygð­ist á næst­unni brjóta blað í starf­sem­inni og opna starfs­stöðvar (hub) í London og á Spáni. Sérstakt félag verður um þennan hluta starf­semi SAS og verður skráð á Írlandi. Þessi breyt­ing hefur í för með sér lægri launa-og launa­tengdan kostnað. Frétt­irnar af þess­ari breyt­ingu vöktu mikla athygli á Norð­ur­löndnum en yfir­stjórn SAS lagði mikla áherslu á að lang stærstur hluti starf­sem­inn­inar yrði áfram í Skand­in­avíu, og það gildi líka um flug­á­hafn­irnar. Tals­maður starfs­fólks­ins sagð­ist, í sjón­varps­við­tali, vona að yfir­lýs­ing stjórnar félags­ins væri ekki orðin tóm.

SAS er stærsta flug­fé­lag á Norð­ur­löndum (Norwegian er þó ekki langt undan) með um átta þús­und starfs­menn. Félagið ræður yfir um það bil 180 flug­vélum og flýgur til 130 áfanga­staða í 34 löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár