Fleiri hlynntir en andvígir Borgarlínu

Öllu fleiri Íslend­ingar 18 ára og eldri eru hlynntir Borg­ar­lín­unni en and­vígir. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Íbúar Reykja­víkur, Hafn­ar­fjarðar og Kópavogs hlynntir en í Garðabæ eru fleiri and­vígir en hlynntir.

Öllu fleiri Íslend­ingar 18 ára og eldri eru hlynntir Borg­ar­lín­unni en and­vígir. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Um 45 pró­sent eru hlynnt Borg­ar­lín­unni en hátt í 28 pró­sent and­víg. Þá eru tæp­lega 27 pró­sent í með­al­lagi hlynnt eða and­víg Borg­ar­lín­unni.

Ungt fólk er hlynnt­ara en eldra. Svar­endur á aldr­inum 18-39 ára eru hlynnt­astir en þeir sem eru 50-59 ára eru and­víg­astir Borg­ar­lín­unni. Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru jafn­framt hlynnt­ari Borg­ar­línu en aðrir Íslend­ingar. Milli 53 og 54 pró­sent Reyk­vík­inga eru hlynnt henni og naum­lega 26 pró­sent and­víg.

Íbúar nágranna­sveita­fé­laga Reykja­víkur eru ekki jafn hlynntir Borg­ar­lín­unni en þó segj­ast um 43 pró­sent þeirra hlynnt en rúm­lega 28 pró­sent and­víg.

Þeirsem hafa háskóla­próf eru tals­vert hlynnt­ari Borg­ar­lín­unni en þeir sem hafa grunn­menntun og fram­halds­skóla- eða iðn­menntun. Um 56 pró­sent háskóla­mennt­aðra eru hlynnt henni, en aðeins um 34 pró­sent grunn­skóla­mennt­aðra og 36 pró­sent fram­halds- eða iðn­mennt­aðra.

Afstaða til Borg­ar­lín­unnar er afar breyti­leg eftir stjórn­mála­skoðun. Um 8-17 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk, Fram­sókn­ar­flokk, Miðflokk og Flokk fólks­ins eru hlynnt henni á móti um 69-81 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata og Við­reisnar.

Sama spurn­ing var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu í jan­úar síð­ast­lið­inn. Nokkur breyt­ing hefur orðið á við­horfi Íslend­inga á Borg­ar­línu síðan þá, en 53 pró­sent voru hlynnt henni í jan­úar, sam­an­borið við 45 pró­sent nú í júní. Fleiri eru nú and­vígir eða segj­ast í með­al­lagi hlynntir/and­vígir Borg­ar­lín­unni en í jan­úar. Viðhorf kvenna hefur breyst tölu­vert, auk þess sem íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru ekki eins hlynntir Borg­ar­lín­unni og í jan­úar. Mesta breyt­ingin varð þó á við­horfi íbúa Vest­ur­lands og Vest­fjarða, auk Suð­ur­lands og Reykja­ness, þar sem færri eru nú hlynntir Borg­ar­lín­unni en í jan­úar.

Viðhorf nokk­urra kjós­enda­hópa hefur breyst mikið síðan síð­asta mæl­ing fór fram, en hlut­fall and­vígra meðal kjós­enda Flokks fólks­ins, Mið­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur hækkað mikið og nú er meiri­hluti allra þess­ara kjós­enda­hópa and­vígur Borg­ar­lín­unni. Fleiri kjós­endur Við­reisnar eru nú hlynntir Borg­ar­lín­unni en í jan­úar.

Af þeim sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru íbúar mið­borg­ar­innar, Vest­ur­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness ásamt þeim sem búa í Hlíðum, Laug­ar­dal, Háaleiti og Bústöðum hlynnt­astir Borg­ar­lín­unni, eða yfir 58 pró­sent. Hafn­firð­ingar og Kópa­vogs­búar hafa svipað við­horf til Borg­ar­línu en sveit­ar­fé­lagið Garðabær sker sig úr hvað við­horf til hennar varðar, því þar eru fleiri and­vígir en hlynntir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár