Unga „kúgaða“ kynslóðin sem gæti breytt öllu

Fólk á aldr­inum 15 til 30 ára er að mörgu leyti eins og kúg­aður minni­hluta­hópur, segir The Economist. Þessi kyn­slóð stendur frammi fyrir miklum erf­ið­leikum, en hún er um leið að hafa mikil áhrif á stjórn­mál og vöru­þróun.

Um 1,8 millj­arður manna á heims­vísu til­heyrir ungu kyn­slóð­inni (15 til 30 ára), sem fyr­ir­tæki eiga í mestu vand­ræðum með að skilja hvernig hugsar í stórum dráttum, og í stjórn­mál­unum virð­ist margt benda til þess að unga fólkið geti valdið straum­hvörfum. Hefð­bundin stjórn­mál eru ekki ofar­lega í huga þeirra en þeim mun meiri áhugi er á því að ýta undir sam­fé­lags­breyt­ingar.

Snjalltæki og fjárhagslegar hörmungar

Þetta er meðal þess sem kemur fram í sér­út­gáfu The Economist um stöðu ungs fólks og hvernig það horfir á áskor­anir sam­tím­ans. Fram kemur í ítar­legri umfjöllun rits­ins að fólk á þessum aldri eigi ekki allt sam­eig­in­legt, einkum þegar kemur að tæki­færum og félags­legri stöðu, sem sé breyti­leg eftir löndum og ríkjum, en eitt sam­eini þennan hóp fólks. Það er alið upp á öld snjall­tækja og í skugga alþjóð­legra fjár­mála­hörm­unga (Global financial disaster).

Undir smásjánni

Út frá þessu sam­eig­in­lega ein­kenni sé hóp­ur­inn undir smá­sjánni hjá ráð­gjöfum, sem reyni allt til að greina hvernig sé best að virkja þennan hóp til þátt­töku í hinum ýmsum mark­aðs­að­gerðum. Þetta hafi mörgum reynst erfitt, enda þessi mikla sam­fé­lags­lega breyt­ing, sem kalla má upp­lýs­inga­bylt­ingu, í reynd rétt að festa rætur. Ýmsir halda því síðan fram, sú mikla fjár­hags­lega rús­sí­ban­areið sem heim­ur­inn hefur verið að ganga í gegnum á und­an­förnum árum, sé rétt að byrja.

Kúguð af þeim eldri

Í leið­ara sér­rits­ins er sér­stak­lega tekið fram, að ein­blínt sé á þennan ald­urs­hóp í þró­uðum ríkjum, þar sem 85 pró­sent af honum er búsettur. „Við munum rök­styðja, að þessi hópur sé um margt kúg­aður af þeim eldri, sem reyni að halda aftur af honum,“ segir í leið­ar­anum. Ólíkt mörgum öðrum „kúg­uðum“ minni­hluta­hópum þá vilji eng­inn valda hópnum skaða, en með stefnu­mörkun sé verið að gera hópnum erfitt fyrir.

Erfið staða en mikil þekking

Til dæmis hafi inn­koma á vinnu­markað sjaldan verið erf­ið­ari, meðal ann­ars vegna þess að fyrri kyn­slóðir hafi lagt mikið upp úr því að hinir eldri gangi fyrir í störf, óháð hæfi til þess að gegna þeim. Víða séu umtals­verðar líkur á því að fólk á þessum aldri verið atvinnu­laust og sitji uppi með miklar skuldir. Samt búi þau yfir hæfi­leikum til að ná leift­ur­snöggt í allar heims­ins upp­lýs­ingar í gegnum snjall­síma sína, og þá sýni grein­ing á skóla­prófum að þessu ald­urs­hópur standi fyrri kyn­slóðum framar þegar kemur að almennri þekk­ingu og hæfni til að takast á við ýmis vanda­mál.

Áhyggjuefni í Evrópu

Sér­stak­lega er vikið að því í sér­rit­inu að atvinnu­leysi víða í þró­uðum ríkjum Evrópu sé ískyggi­lega hátt hjá fyrr­nefndum ald­urs­hópi, eða á milli 25 og 50 pró­sent. Minnst norð­ar­lega í álf­unni en mest í ríkj­unum sunnar í álf­unni. Á Spáni og Portúgal hefur atvinnu­leysi hjá þessum hópi lengi verið yfir 40 pró­sent, og eru þegar komin fram merki um að ungt fólk sæki kerf­is­bundið út fyrir landa­mærin til að freista gæf­unnar, þar sem fyr­ir­sjá­an­legt er að tæki­færi séu af skornum skammti heima fyrir. En í Evrópu er víða mikil sam­keppni um störf hjá þessum ald­urs­hópi, og því er oft stóra spurn­ingin hvert skuli haldið.

Ísland að upplifa svipuð áhrif?

Þó ekki sé sér­stak­lega vikið að stöðu mála á Íslandi hjá þessum ald­urs­hópi, þá má greina miklar breyt­ingar hjá þessum hópi miðað við fyrri kyn­slóðir. Ekki síst þegar kemur að við­horfum til stjórn­mála. Nýjustu kann­anir á fylgi stjórn­mála­flokk­anna benda til þess að yngsti ald­urs­hópur kjós­enda, 18 til 29 ára, forð­ist gömlu hefð­bundnu stjórn­mála­flokk­anna og fylki sér að baki Pírötum, sem boða helst þann boð­skap að „breyta kerf­inu“, eins og Helgi Hrafn Gunn­ars­son, for­maður flokks­ins, sagði í ára­móta­þætti Vikunnar á RÚV, og að færa valdið til fólks­ins með beinu lýð­ræði. Yfir helm­ingur ungs fólks styður Pírata, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR, og Píratar mæl­ast með ríf­lega 37 pró­sent fylgi.

Þessi við­horf virð­ast tóna vel við þá mynd sem The Economist fjallar um, þar sem unga kyn­slóðin tengir síður við íhalds­samar skoð­anir til mann­lífs­ins, heldur leitar nýj­ustu upp­lýs­inga – nán­ast alveg um leið – og mótar sér sýn á málin út frá því, alveg óháð stefnum stjórn­mála­flokk­anna.

Spekilekinn

En Ísland sker sig veru­lega frá mörgum öðrum ríkjum, þar sem atvinnu­leysi hjá þessum ald­urs­hópi er mun hærra í nær öllum öðrum ríkjum, enda atvinnu­leysi hér á landi með allra lægsta móti, í alþjóð­legum sam­an­burði. Atvinnu­leysi mæld­ist tvö pró­sent í des­em­ber­mán­uði en með­al­talið í Evrópu er yfir 10 pró­sent, og mun hærra í yngsta ald­urs­hópnum.

Líkindi eru þó með öðrum þáttum sem til umfjöll­unar eru, eins og speki­leka (braindrain) ungs mennt­aðs fólks sem mörg ríki Evrópu eru nú farin að finna fyrir. Til þess að Ísland geti haldið vel í þennan hóp fólks, til fram­tíðar litið, þarf atvinnu­lífið að fram­þró­ast í takt við þarfir hans og menntun. Annars verður tæki­færa leitað ann­ars staðar, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum heima fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár