Yfir helmingur ungs fólks kýs Pírata

Lang­flestir á aldr­inum 18 til 29 ára ætla að kjósa Pírata í næstu Alþing­is­kosn­ingum, sam­kvæmt könnun MMR. Tekju­hæsta fólkið kýs flest Pírata og Sjálf­stæð­is­flokk og þeir tekju­lægstu aðhyll­ast Pírata sömu­leiðis.

Helgi Hrafn Gunnarsson, formaður þingflokks Pírata.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, for­maður þing­flokks Pírata.

Meira en helm­ingur ungs fólks, á aldr­inum 18 til 29 ára segj­ast myndu kjósa Pírata í næstu Alþing­is­kosn­ingum, eða 54 pró­sent. 15 pró­sent aðspurðra í sama ald­urs­hópi segj­ast myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Fylgi ann­arra flokka meðal ungs fólks er undir tíu pró­sentum; Sam­fylk­ing er með 4 pró­senta fylgi, Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð með 9 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur með 6 pró­sent, Björt fram­tíð 5 pró­sent og „annað” með 6 pró­sent.

Þetta eru nið­ur­stöður könn­unnar MMR á fylgi stjórn­mála­flokka sem gerð var á tíma­bil­inu 12. til 20. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Tekjuhæstu vilja Sjálfstæðisflokk og Pírata

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með mesta fylgið þegar kemur að elsta ald­urs­hópnum, 68 ára og eldri, með 25 pró­sent. Píratar koma þar á eftir með 21 pró­sent. Sam­fylk­ingin er með 18 pró­senta fylgi meðal eldra fólks, VG með 17 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur með 13 pró­sent, Björt fram­tíð með 1 pró­sent og „annað” með 3 pró­sent.

Þegar litið er til heim­il­is­tekna er lík­leg­ast að fólk með lægstar tekjur, undir 250 þús­und krónum á mán­uði, kjósi Pírata, eða 49 pró­sent. 18 pró­sent þessa tekju­hóps segj­ast myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk, 7 pró­sent Sam­fylk­ingu, 4 pró­sent VG, 12 pró­sent Fram­sókn­ar­flokk, 1 pró­sent Bjarta framíð og 10 pró­sent segj­ast myndu kjósa „annað”.

Þeir sem eru með milljón á mán­uði eða hærra eru lík­leg­astir til að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Pírata, 26 pró­sent og 25 pró­sent. 13 pró­sent kjósa Sam­fylk­ingu, 12 pró­sent VG og Framsókn, 8 pró­sent Bjarta fram­tíð og 5 pró­sent vilja aðra kosti.

Fleiri karlar styðja Pírata og konur VG

Karlar voru lík­legri en konur til að styðja Pírata en konur voru hins­vegar lík­legri en karlar til að styðja Vinstri-græna og Bjarta fram­tíð. Þannig sögð­ust 44 pró­sent karla styðja Pírata, borið saman við 29 pró­sent kvenna. 18 pró­sent kvenna sögð­ust styðja Vinstri-græn, borið saman við 8 pró­sent karla og 7 pró­sent kvenna sögð­ust styðja Bjarta fram­tíð, borið saman við 2 pró­sent karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár